Heimdallur - 12.07.1930, Side 2
H. EIMDALLUR
2
'framtíð. Benti hann á nauðsyn þess, að öll félö'gin myndaði
allsherjar samband með sér, hvert öðru til styrktar og
eflingar. Að lokum bar hann fram tillögu þess efnis, að
.Samband ungra Sjálfstæðismanna yrði stofnað þá þegar
af þeim félögum, er sent höfðu fuiltrúa á stofnþingið. Var
tillagan samþykkt með samkvæði allra þingheyjanda. —
Lagði fundarboðandi þá fram frumvarp til iaga handa
Sambandinu, er hann hafði samið, og lagði það fyrir fuil-
trúana. Tókij ýmsir tii máls um lögin og guidu þeim
flestir samkvæði. Var frumvarpið samþykkt sem lög sam-
bandsins með nokkrum smávægilegum breytingum. En til
þess, að menn viti gjör stefnuskrá Sambandsins, skal hér
birt 2. og B. gr. laganna, en þær eru á þessa leið:
2. gr.
Tilgangur sambandsins er:
a. að vinna að því, að ísland taki að fullu öll sín mál í
eigin hendur og gæði landsins ti! afnota fyrir lands-
menn eina.
b. að efla í landinu þjóðlega, víðsýna og frjálslynda
framfarastéfnu á grundvelli einstaklingsfrelsis, at-
vinnufrelsis og séreignar, meo hagsmuni allra stétta
fyrir augum.
3. gr.
Tilgangi þessum viil sambandið ná með því að útbreiða
stefnu sína meðal ungra manna, efla félög ungra sjálf-
stæðismanna og sameina þau til áhrifa á stjórnmái og
kosningar.
Va r þá gengið til kosningar á stjórn sambandsins, og
voru þessir kosnir: Torfi Hjartarson cand. jur. formaður,
Sigríður Auðuns, ungfrú, ísafirði (ritari), Kristján Stein-
grímsson, stúdent, Akureyri, (2. varaformaður). Árni Matt-
hiesen, lyfjafræðingur, Hafnarfirði, (gjaldkeri) og Guðni
Jónsson mag. art. Reykjavík, (1. varaformaður). En þessir
voru kosnir í varastjórn: Gunnar Thoroddsen, stud. jur.,
Reykjavík, Jóhann Möller, stud. jur., Reykjavík, Sigurður
Jóhannsson, framkv.stj.. Borgarnesi, Guðmundur Bene-
diktsson, lögfr., bæjargjaldkeri í Reykjavík og Thor Thors
framkvæmdastjóri í Reykjavík.
Stofnþingið fór að öllu leyti hið bezta fram- svo sem
hæfði merkilegum stað og stund og mikilvægu málefni, er
brátt mun bera ríkulega ávexti í íslenzku stjórnmálalífi og
eflast til góðra áhrifa. Skildu fui^darmenn glaðir og ánægð-
ir eftir að hafa sungið nokkra ættjarðarsöngva og hrópað
húrra fyrir Islandi og Sjálfstæðisflokknum. Munu þeir, er
þarna voru saman komnir lengi minnast þessarar morgun-
stundar uppi í Almannagjá og líklegt er, að.saga lands vors
verði einhvern tíma minnug þessa' atburðar, ef þjóðin er
ekki með öllu heillum horfin.
Mánudagskvöldið 30. júní bauð sambandsstjórnin öll-
um fulltrúunum til kaffidrykkju í K.-R.-húsinu í Reykja-
vík. Voru þar margar ræður haldnar og aldrei minnist sá,
sem þetta ritar, að hafa séð jafn almennan og lifandi áhuga
meðal ungra manna sem þar. Hver maður stóð upp á fæt-
ur öðrum til þess að láta í ljós ánægju sína yfir stofn-
un sambandsins og eggja félaga sína til öflugrar fram-
göngu og samtaka baráttu fyrir hugsjónum sjálfstæðis-
stefnunnar.
Til þess að menn fái nokkra hugmynd um það, hve
•öflug og víðtæk hreifing hér er á ferðinni og hve einhuga
æskan í landinu er að fylkja sér undir merki sjálfstæðis-
stefnunnar, skal þetta tekið fram að lokum:
Á stofnþinginu á Þingvelli voru mættir 45 fulltrúar,
eins og áður er iágt, en hver fulltrúi fór með umboð 25
félagsmanna. Samband ungra Sjálfstæðismanna hefir ]>ví
að baki sér og er stofnað í umboði 1125 ungra manna í
landinu. Þegar þar við bætist, að frá sumum félögunum
komu ekki allir þeir fulltrúar, sem þeim bar, samkvæmt
meðlimatölu þeirra, vegna forfalla, og nokkur ný félög
gátu engan sent, svo sem Sjálfstæðis- og framfarafélag
Hnappdæla og Sjálfstæðisfélagið í ólafsvík, mun það láta
nærri, að félagatala ungra Sjálfstæðismanna sé nú alls um
HOO manns. Er þessi árangur harla glæsilegur og talar
Pósthússiræti, Reykjavik.
Simar 542, 254 og 309 (framkv.stj.)
Alíslenzkt fyrirtæki. M
Allskonar bruna- og sjó- ||j
vátryggingar. Hvergi betri
né áreiðanlegri viðskiiti.
— Leitið upplýsinga hjá
næsta umboðsmanni. —
sínu skýra máli, þegar þess er gætt, að verulegur skriður
fór ekki að koma á hreifinguna fyrr en sne'mma á þessu
ári. Allmörg ný félög eru nú á úppsiglingu á ýmsum stöð-
um, verða stofnuð í haust og á vetri komanda. Og áfram
verður haldið; þangað ti! félög eru mynduð í hverju byggð-
arlagi í landinu, ]>ar sem óspillt æska vill rétta hönd til
viðreisnar hinum íslenzka málstað.
G. J.
A Þingvelli 1930.
Hér loga tindar hátt við hamra sal,
í hjörtum fólksins er sú saga fundin,
hér byggðf þjóð, er þekkti hlýjan dal,
við þrótt og vonir er sá þráður bundinn.
Með eld í huga og arfgengt ]irek í sinni,
og alfrjálst blóð, sem varð ei lokað inni.
Það iand var eldum ýmislega runnið,
með eyðisanda, jökla og brunageim;
stórleit sjón af sterkum viðum unnið
steypt í móti jökla og hvera eim;
en blómin geymdi brunafreðin alda,
svo búalýður mætti lífi halda.
Þennan tíma þúsund ár við bindum
er þjóðhelg minning skapar þenna völl;
ljósálfarnir léku hér á tindum,
lýstu þessa steyptu frelsishöll.
Hér gerðust lög, er landsmenn skyldu læra,
svo lífsins réttinn mætti endurnæra.
Hér þuldu svanir þýðlynd ástarljóð,
hér þreyttu ernir flug af bröttum tindum,
hér stigu meyjar danz við dýran óð,
hér dundu slög af fossins silfurlindum,
hér átti margur sekt og sannleik inni,
er sagt var fram af lögréttunni þinni.
Þú, víði geimur, veittir okkur grið,
þær viðjar bundust þínum helgu kröftum,
þú veittir okkur lífsbjörg, frelsi og frið,
þú færðir okkur lausn úr þrældóms höftum,
þú færðir okkur frið að loknum degi
og frelsis ljós, er sloknað hefir eigi.
Við megum ekki misnota þá gjöf,
sem mannvits löndin hafa fært í haginn.
Við megum til að muna þeirra gröf,
er mynduðu og steyptu frelsisbraginn.
Við höfum þökk að gjalda þessum sléttum
og þessum fornu landsins brenndu klettum.
DANÍEL HJÁLMSSON.