Heimdallur

Tölublað

Heimdallur - 07.12.1933, Blaðsíða 3

Heimdallur - 07.12.1933, Blaðsíða 3
HEIMDALLUR 3 HEIMDALLUR Ctgef. Samband ungra Sjálf- stæðismanna. Ritstjóri: Sigurður Kristjánsson. Auglýsingastjóri: Ulrik Z. Hansen. Ritsljórn og afgr.: Bankastræti 3 (Herbertsprent). Sími 4020. Kemur út annan hvern virkan dag, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga. Áskriftargjald kr. 1.00 á mánuði. f lausasölu 10 aura eintakið. Herbertsprent verður lægsta útkoman hlut- fallstala kosninganna. Síðan skal margfalda þá hlutfallstölu með tölu kjördæmakosinna þing- manna þeirra flokka, sem liafa fengið hærri útkomur en hlut- fallstöluna við deilinguna, og draga útkomurnar frá samtölum atkvæða hvers þeirra flokka. Mismunur sá, sem þá verður eft- ir hjá hverjum flokki, er sú at- kvæðatala, sem kemur til greina við úthlutun uppbótarþingsæta, og skal uppbótarþingsætum skipt á milli þessara flokka i hlutfalli við þessar atkvæðatölur þeirra, eflir venjulegum reglum hlut- fallskosninga, þannig, að deilt skal í atkvæðatölurnar með töl- unum 1, 2, 3, 4 o. s. frv. (sbr. 115. gr.), unz útkoman verður eins nálægt því að vera jöfn hlutfallstölu kosninganna og unnt er, og falla uppbótarsætin á hæstu útkomumar, þó aldrei fleiri en 11 samtals Verði útkomur tveggja eða fleiri flokka jafnar áður en lok- ið er útlilutun uppbótarþingsæta, og cigi báðir eða allir tilkall til uppbótarþingsætis, skal varpa hlutkesti um, hverjum flokknum skuli úthluta uppbólarþingsæti, og liaga blutkestinu á þann hátt sem fyrir er mælt í 119 gr.“ Iiér er lagt til að fylgt sé þeirri reglu, sem beitt er við all- ir hlutfallskosningar. Var víst öll stjórnarskrárnefnd i upphafi ráðin í þvi að fylgja þessari til- lögu, en eftir það að sósíalistar höfðu fengið umhugsunarfrest komust þeir að þeirri niðurstöðu, að ef beitt væri aðferð þeirri, sem í frumvarpinu er nú, njundu sósíalislar hafa fengið einu uppbótarsæti meira en þeim bar, eftir því sem atlcvæða- tölurnar féllu við síðustu kosn- ingar. Nú er auðvitað ekkert víst um það, að eins bæri að öðru sinni. En þeir sósialistarnir vilja auðvitað ekki sleppa hugsanlegu tækifæri til þess einhverntíma að geta grætt á rangsleitninni, og nú cr lýðræðisreglan þeim eklci lengur alveg heilög, því með þessu fyrirkonnilagi getur [)að ekki aðeins komið fyrir, að sá flokkur, sem hefir meiri hluta allra kjósenda, hafi minni- hluta þingsæta, heldur er mjög líklekt að svo færi einmitt oft- ast. Um það var nú deilí allan kvöldfundinn, hvorl grein þessi skyldi leiðrétt eða ekki. Kom í ljós, er á fundinn leið, að fleiri og fleiri Framsóknarmönnum 1*01111 hlóðið til skyldunnar og kippti i rauða kynið. Kröfðust sósíalistar að málið vrði tekið af dagskrá og atkvæðagreiðsl- unni frestað, sökum þess að Ey- steinn Jónsson er veikur, og svo vantaði Berg Jónsson. Sjálfstæðismenn kröfðust þess liins vegar að alkvæðagreiðsla færi fram. Minnti Ólafur Thors forseta á, að hann liefði fyrir skömmu neitað sér um frestun atkvæðagreiðslu, þegar alveg eins hefði staðið á: einn þm. veikur og annar fjarverandi af öðrum ástæðum. Sú alkvæða- greiðsla hefði þó varðað 150 þús. kr. fjárveitingu úr ríkissjóði. Sagðist liann nú að minsta kosti krefjast þess, að það yrði borið undir deildina, hvort atkvæða- greiðslunni skyldi freslað. Forseti neitaði að verða við nokkrum tilmælum nema þeirra rauðu, og tók málið af dagskrá og sleit fundi, án þess að bera það undir deildina. Ýmislegt. Tillagan um kaup á templara- lóðinni felld í efri deild. Till. um kaup á templaralóð- inni hefir verið mikið þrætuopli í þinginu (neðri deild). Frá tillögunni hefir áður ver- ið skýrt hér i blaðinu. Var hún afgreidd frá nd. í því formi, að ríkissjóður skyldi kaupa loð templara við Vonarstræti fyrir 75 þús. kr. og greiða templurum aðrar 75 þús. kr. í byggingar- styrk. Tillagan var til fyrri umræðu í ed. í gær. Fór atkvæðagreiðsla um hana svo, að hún var felld að viðhöfðu nafnakalli með 7 atkv. gegn 7. Voru með heiihi: Björn Kristjánsson, Bjarni Snæ- björnsson, Guðrún Lárusdóttir, Ing\*ar Pálmason, Jón Baldvins- son, Jón Jónsson og Jónas Jóns- són. Móti henni voru: Einar Árna- son, Eirikur Einarsson, Jón Þor- láksson, Kári Sigurjónsson, Magnús Jónsson, Páll Hermanns- son og Pétur Magnússon. 21 mál. Á dagskrá ed. voru 21 mál i gær. Er það lengsta dagskráin á þessu þingi. í sameinuðu þingi voru 7 mál á dagslcrá, þar á meðal varalögreglumálið i 6. sinni. Ekkert mál var þó af- greitt, því fundi var slitið jafn- skjótt og hann hafði verið sett- ur. Ástæðan var sú, að forseti nd. vildi halda deildarfundi á- fram til þess að ljúka við kosn- ingarlagafrumvarpið, sem var þar á dagskrá til einnai* unu*æðu komið frá ed. En er komið var að atkvæðagreiðslu, tók for- seti málið af dagskrá og sleit fundi. Bæ jai*stjórnarf und ur verður í dag kl. 5 í kaupþings- salnum. Á dagskrá eru 8 mál. Umboðsmaður vátryggingarfé- laganna London og Phönix liefir senl blaðinu skýrslur fé- laganna frá seinasta ári. Sam- | kvæmt þeim, eru félög þessi sér- í staklega vel fjárhagslega stæð. Sbr. auglýsingu á öðrum stað í blaðinu. Fisksalan. Garðar hefir nýlega selt afla sinn í Englandi f>TÍr 880 stpd. Einnig liafa selt afla sinn ný- lcg'a línuveiðararnir. Huginn fyr- ir 610 slpd., Ólafur Bjarnason 380 stpd. og Jarlinn fyrir 180 stpd. Eimskip. Gullfoss lor frá Leith i fyrra- kvöld á leið lil Vestmannaeyja. Goðafoss er á leið til Hamborg- ar frá Hull. Brúarfoss kom frá ísafirði í nótt. Dettifoss kom frá Hull og Hamborg i fyrrakvöld. Lagarfoss er á Akureyri. Sel- foss er í Reykjavík. Um þingmál. Enn eru að ryðjast inn ný þingmál, og er þó gert ráð fyrir að þingi verði slitið fyrir næstu helgi. Fjöldi mála er enn hálfkar- aður. Meðal þeirra mála, sem fram voru borin i byrjun þings og þingið hefir legið á, er frumvarp þeirra Magnúsar Jónssonar og Péturs Magnússonar um það, að láta úrskurð þjóðarinnar um af- nám bannsins koma i gildi um næstu áramót. Allsherjarnefnd ed. klofnaði í þessu máli. Meiri lilutinn lagði tii að frumvarpið yrði fellt, en minnihlutinn hefir skilað eftir- ferandi áliti: „Mciri hl. nefndarinnar hefir borið fram rökstudda dagskrá þess efnis, að sú breyting á áfengislöggjöfinni, sem í frv. er fólgin, verði látin bíða full- komnari endurskoðunar áfengis- laganna. Minni hl. getur ekki falhzt á, að nokkur ástæða sé til þeirrar biðar. Hann játar að vísu, að nauðsyn beri til frekari lagfæringar á áfengislöggjöfinni, en getur binsvegar ekki séð, að ágallar hennar mundu á nokk- urn liátt aukast, þó afnumið væri málamyndabann það við innflutningi nokkurra tegunda áfengra drykkja, sem enn er í löguni. Minni lil. telur og, að Ódýrt. Rdion 0.45 pk. Persil 0.60 pk. Fl. Flak 0.55 pk. Rinso (stór) 0,50 pk. Stanga sápa 0.65 stöng- in. Bóndósin 1 krónu. Hand- sápa 4 stk. fyrir 1 krónu. Grettisgötu 57. Sími 2285. Verzl. FELL, Grettisgötu 57. Simi 2285. Jón Guðmundsson. Tpyggið hjá íslenzkn félagi. Speglar í ramma og rammalausir. Ný komnir. Mikið úrval. Ludvig Storr, Laugaveg 15 öll óþörf bið á afgreiðslu máls- ins brjóti í bág við þjóðarat- kvæðagreiðsluna 1. vetrardag, og leggur því til, að málið nái fram að ganga. Ef frv. verður samþ. við 2. umr., mun minni hl. bera fram eina brtt. við 3. umr.“ Kaupið og útbreiðið Heimdall.

x

Heimdallur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimdallur
https://timarit.is/publication/604

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.