Dagblað

Tölublað

Dagblað - 15.02.1925, Blaðsíða 1

Dagblað - 15.02.1925, Blaðsíða 1
Sunnudag 15. febrúar 1925. I. árgangur. 13 lölublað. EITT af vandamálum þessa bæjar, og jafnvel ekki hið minsta, er uppeldi æsku- lýðsins. Börn eru hér í raun- inni friðlaus, eða voru það fyrir nokkrum árum. Síðustu árin hefir að vísu orðið nokkur breyting til batnaðar. Bærinn hefir látið gera leikvelli handa smábörnum, félag hefir myndast um það, að draga börn út úr mesta bæjarrykinu og annað fé- lag hefir útvegað mörgum börn- um sumarvist í Borgarfirði. Þelta er alt framför frá því sem áður var, en þó skortir enn mikið á, að vel sé. Hér í borginni er fjöldi barna allan sumartímann og eiga þau ekkert annað athvarf en götur bæjarins, eins og þær eru skemtilegar: ataðar í for í vætu- tíð, en svo rykugar í þurkum að þegar blæs, sér ekki út úr aug- unum fyrir moldroki. Þessi börn eru flest á því reki, að þau eru of stór til þess að vera á leik- völlunum (sem raunar eru eng- in fyrirmynd) og of ung til þess að sendast i sveit til snúninga. Það er nú svo, að bæjarstjórn er alls eigi treystandi til þess að ráða fram úr þessu vandamáli. Það verður að gerast með sam- tökum einstakra manna. Og það sem reynslan nær í því efni er hún góð. En betur má þó ef duga skal, og eflaust eru marg- ar leiðir til, enda augljóst, að ein leið nægir ekki. Börnin eru svo mörg að þeim verður ekki öllum séð borgið í einum hóp. Hér skal aðeins bent á eina leið og væri hún farin yrði þó ef til vill nokkrum tugum barna færra á götunum um sumarmán- uðina. Hér í borginni er gróðrarstöð, og þar þarf mikið að vinna. Er henni svo vel í sveit komið, að óviða í bænum mun vera holl- ara loftslag. Mætti sjálfsagt, ef vilji væri með, koma börnum þangað og láta þau læra garð- rækt, blómarækt og jarðrækt undir handleiðslu garðyrkju- stjóra. Með því móti fengi börn- in holla útivist, lærðu að vinna og fengi áhuga íyrir ræktun, en á hinn bóginn gæti vinna þeirra, þótt þau sé auðvitnð ekki af- kastamikil, orðið gróðrarslöðinni til mikils gagns. Þetta gæti orðið börnunum hvort tveggja í senn, sumarfrí og sumarskóli, en gróðr- arstöðin fengi ókeypis vinnu- kraít, og það er aldrei of mikið af honum. í erlendum borgum hefir það gefist ágætlega, að hafa börn við slíka sumarvinnu. Hún vekur bjá þeim áhuga, og áhug- inn skapar aftur starfslöngun og afkastasenri. Hér er ekki rúm til þess að ræða þetta mál rækilega. En mundi Búnaðarþingið ekki vilja taka málið til meðferðar og láta uppi álit sitt um þessa hug- mynd? Væri Búnaðarþingið henni hlynt, þá væri þegar mikið fengið. Um Einar Jónsson myndhöggvara ritar Ragnar Lundborg í sænska Aftonbladet og segir þar á þessa leið: — Fyrir nokkru var reist fag- urt listasafn í Reykjavík, höfuð- stað íslands. Þar eru einvörð- ungu geymd lislaverk Einars Jónssonar myndhöggvara. ís- lenzka ríkið stendur straum af safninu og hefir með því veitt einum af fremstu sonum sínum viðurkenningu, manni, sem er heimsfrægur fyrir list sína og hefir stutt að því, að afla Is- Iandi virðingar og frama út á við. I safnhúsinu er enn frem- ur vinnustofa og íbúð fyrir lista- manninn, og getur hann unnið þar í ró og næði að list sinnn Með þessu hafa íslendingar einu sinni enn sýnt það, á hve háu menningarstigi þeir standa. — — — Hér f Sviþjóð er Einar lftt þektur, en bæði i Englandi öj* Ameríku er hann frægut orð- inn. En þess er að væntá, að Norma Talmsjixig-e, frægasta leikkona heimsins, leik- ur í kvikmynd þeirri, er nú er sýnd í Nýja Bio. hann heimsæki oss áður en langt um líður. Listamönnum vorum væri það mikið háþþ, ef hægt væri þá samtimis að hafa hér sýningu á nokkrum listaverkum hans. Stjórnarfrumvörp* Skráning skipa. Eigi má slcip skrá á landi hér, og óheimilt er skipi að hafa isl. fána, nema fullnægt sé eítirfarandi skilyrð- um: Ef einstakur maður á skip, skal hann eiga ríkisfang á ís- landi og hafa átt þar heimilis- fang samfleytt síðasta árið eða 5 ár. Ef skip eru eign félags, þar sem allir eru fullábyrgir, skulu 2/3 félagsmanna fullnægja skilyrðum um ríkis- og heim- ilisfang. Hið sama gildir um þau félög, þar sem sumir eru aðeins fullábyrgir, en auk þess skal félagið eiga heimilisfang og varnarþing hér á landi, enda éigi hver af stjórnendum hluti i félaginu og fullnægi skilyrðum um heimilisfang og ríkisfang. Ef skip er eign félags með tak- markaðri ábyrgð, skal það eiga

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.