Dagblað - 15.02.1925, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
heimilisfang og varnarþing hér,
stjórnendur skulu eiga hluti í
því og eiga hér heimilisfang og
ríkisfang.
Seðlaútgáfa. Landsbanki ís-
lands hefir einkarétt í 50 ár til
að gefa út bankaseðla eða ann-
an gjaldmiðil, sem komið geti í
stað mótaðra peninga og getur
gengið manna á milli í stað
bankaseðla, með þeirri einni tak-
mörkun, er leiðir af lögum um
seðJaútgáfu íslandsbanka. (Leyf-
istími íslb. nær til 31. des. 1933).
í greinargerð segir:
Ymsir annmarkar eru þó á
þessu, sem beinlínis leiða af þyí,
að Landsbankinn hefir ekki
verið aðalseðlabanki landsins
hingað til, og að starfsemi hans
þar af leiðandi hefir beinzt
nokkuð mikið inn á aðrar braut-
ir en þær, sem eðlilegar eru
fyrir seðlabanka. þar á meðal
rekur hann meiri sparisjóðs-
starfsemi en æskileg er fyrir
seðlabanka.
BotflYörpuEgarnir ókomii.
Um 20 skip hefja leit í dag.
i ____
Svo sem frá hefir verið skýrt
hér í blaðinu, var varðskipið
Fylla sent héðan til þess að
svipast eftir þeim Leifi heppna
og Robertson. Kom frá henni
skeyti í gær siðdegis. Uafði hún
þá leitað á stóru svæði alt frá
Látrabjargi og langt vestur og
suður að Garðskaga, en einkis
orðið vísari.
Útgerðarmenn tóku sig sam-
an um það í gær, að senda út
öll þau botnvörpuskip, sem hér
eru, og sjófær geta talist, til
þess að leita, og lögðu þau á
stað í morgun snemma. Pað
voru þessi skip: Þórólfur, Arin-
björn hersir, Austri, Otur, Karls-
efni, Njörður, Apríl, Glaður og
Dane. Auk þess var skipum
þeim, sem nú eru fyrir sunnan
land, send loftskeyti um það að
koma og vera með í leitinni.
Munu þau vera 8 alls, og mæt-
ast skipin vestur í hafi og skifta
sér þar.
Borgin.
Sjávarföll. Ardegisflæður kl. 9,35.
Siðdegisflæður kl. 10,2.
Gnðsþjónnstnr f dag. Dómkirkjan,
kl. 11 f. h. (Bjarni Jónsson).
Fríkirkjan, kl. 2 e. h. (Árni Sig-
urðsson).
Landakotskirkja kl. 9 hámessa,
kl. 6 guðsþjónusta með prédikun.
Sjómannastofan, kl. lx/a síra
Friðrik Friðriksson.
Fnndi var skotið á i Ed. kl. 4 í
gærdag til þess að útbýta þar
stjórnarfrv. sem ekki voru tilbúin
fyr en nú.
Sonur Tarzans. Pessi spennandi
skáldsaga heflr verið tekin á kvik-
mynd með afarmiklum kostnaði og
fyrirhöfn. Er myndin löng, vist í
rúmlega 30 þáttum. Hún er nú kom-
in hingað og verður bráðum sýnd.
Þrestir endurtaka samsöng sinn
í dag, en eigi oftar.
Dane, einn af ensku botnvörpung-
unum, kom til Hafnarfjarðar i gær.
Var skipið með öllu óskemt undan
veðrinu, en hafði heldur lítinn afla.
St. Breidcrs, enskur botnvörp-
ungur, dró Earl Haig hingað, því
að skipið var hjálparlaust vegna
stýrisbilunar.
Tíðarfar. Ekkert samband var
enn við ísafjörð, en þar sem veður-
skeyti náðu i gær var 4—6 stiga
frost, norðanátt allhvöss víða og
bjart, nema snjókoma á Austurlandi.
Spáð er hægara veðri eg minni
snjókomu.
Dauflegt var á þingi í gær, enda
ekki nema eitt mál á dagskrá í Nd.
(Útsvar sjómanna) og var þvi orða-
iaust vísað til 2. umr. og allsherjar-
nefndar. Frv. Bjarna frá Vogi um
Mentaskólann hefir mentamálanefnd
fengið til meðferðar.
Sextugsafmæli átti B. H. Bjarna-
son kaupmaður í gær og i tilefni
af því gaf hann Sjúkrasamlagi
Reykjavikur 2200 krónur í banka-
vaxtabréfum Landsbankans.
Dorgarafnndnr verður lialdinn í
kvöld i G.T.húsinu og gengst um-
dæmisstúkan fyrir því. Rætt verður
um áfengislöggjöflna.
Peningar:
Bankar:
Sterl. pd............... 27,30
Danskar kr............. 101,79
Norskar kr.............. 87,34
Sænskar kr............. 154,16
Dollar kr.............. 5,73
n?£: HDagBlað. ,JjSk
I Arni Óla.
Ritstjórn: j G< Kr> Guðmundsson.
Afgreiðslal Lækjartorg 2.
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Augiýsingaverð: Kr 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Dagskrá
neðri deildar á morgun:
1. Lögð fram 5 stjórnarfrv.
2. Innlend skiftimynt, 2. umr.
3. Um verslun með smjörlíki
og líkar iðnaðarvörur og til-
búning þeirra, 2. umr.
4. Löggiltir endurskoðendur, 2.
umr.
5. Einkasala á áfengi, 1. umr.
6. Breyting á vegalögum, 1. umr.
7. Önnur breyting á vegalögum,
1. umr.
[Bmbæt tispróf
í Háskólanum.
Prír menn luku embættis-
prófi í Háskólanum í gær, tveir
í guðfræðideild og einn í laga-
deild. Guðfræðingarnir héldu
prófræður sínar í gær. Voru það
þeir Gunnar Árnason frá Skútu-
stöðum (I. einkunn) og Óli Ket-
ilsson (I. einkunn).
I lagadeild lauk prófi Garðar
I*orsteinsson með 1. eink. 124*/»
stig.
Stór flngbátnr. Englendingar
hafa nýlega smíðað stærsta flug-
bát heimsins. Á hann að vera
með flotanum og getur hann
verið á flugi dögum saman. 1
honum eru fjórar stórar Rolls
Royce vélar með nær 3000 hest-
öflum og knýja þær flugbátinn
áfram með 100 enskra mílna
hraða á klukkustund. Hann get-
ur borið mörg tonn. Skipverjar
eru sex og eru útbúin sérstök
svefnherbergi fyrir þá.