Dagblað - 19.02.1925, Qupperneq 2
2
DAGB LAÐ
Ping-tíðindi.
Neöri deiid.
Nd. samþykti 2 frumv. við 3.
umr. í gær og sendi þau til Ed.
Voru það frv. um innlenda
skiftimynt og smjörlíkisgerð o.
fl. Verða þau tekin til 1. umr.
í Ed. á morgun, en hún hefir
verið atvinnulaus nú í nokkfa
daga.
Um Ræktunarsjóðsmálið og
búnaöarlánastofnunina urðu
nokkrar umræður. Fjármálaráð-
herra flutti alllanga inngangs-
ræðu. Minstinn hann fyrst á
hver þörf væri á lánsstofnun
fyrir landbúnaðinn. Fólk hefði
fækkað í sveitum á undanförn-
um árum og væri það því að
kenna, að landbúnaður hefði
eigi getað kept við sjávarútveg.
En þetta væri háskalegt, því að
íslenzk menning væri bænda-
menning og allir sem bæri hag
íslenzkrar þjóðar fyrir brjósti,
vildi viðhalda henni. — Jþá
mintist hann næst á aðdraganda
frv. stjórnarinnar og siðan á
frv. sjálft. Kvað hann það að
mestu bygt á frv. því, er nefnd
úr Búnaðarfél. hafði samið. En
í þeirri nefnd sátu þeir: Thor
Jensen, Halldór Vilhjálmsson
og Sigurður Sigurðsson. Skýrðí
fjármálaráðh. svo frá hverjar
breytingar stjórnin hefði gert á
frv. þeirra, bæði hverju hún hefði
slept úr og hverju hún hefði
bætt við.
Tryggvi Þórhallsson sagði, að
ástæða væri til að rekja þetta
mál alt ítarlega, en. kvaðst nú
hafa sent inn á þing annað frv.
um þetta efni, og væri það ná-
kvæmlega samhljóða frv. nefnd-
arinnar. Kvaðst hann mundu
geyma sér að taka málið til ræki-
legrar meðferðar, þangað til það
kæmi til umræðu. En þess gat
haiín, að á Búnaðarþinginu hefði
málið verið rætt og fulltrúar
bænda úr öllum landsfjórðung-
um hefði þar einum rómi lýst
yfir þvf, að ekki mætti sleppa
úr frv. þeim atriðum, er stjórn-
in hefði felt úr þeim.
Jakob Möller mintist á lögin
um Ríkisveðbanka og hverri
mótspyrnu þau hefði sætt. Þeg-
ar þau lög hefði verið til um-
ræðu hefði það verið talið bank-
anum til foráttu, að Ræktunar-
sjóður rynni inn í hann og að
vextir mundu hækka. Vildi hann
að í stað þessarar búnaðarlána-
deildar yrði Ríkisveðbankinn
stofnaður. f*ví hefði verið borið
við, að það væri ekki hægt
vegna féleysis, en um þessa
Búnaðarlánadeild væri hið sama
að segja. Að vísu væri gert ráð
fyrir þvi í frv. Tr. Þ. að Bún-
aðarlánadeildin rynni síðar inn
í Ríkisveðbankann. En að fara
að taka þetta út úr nú, gæti leitt
til þess, að upp risi önnur veð-
lánsstofnun fyrir kauptúnin og
mundu þá spilla hvor fyrir ann-
ari. Skilyröið fyrir því, að vaxta-
bréf seldust, væri, að þau gæfi
háa vexti. En öllum ætti að vera
það Ijóst, hverjir gæti greitt hærri
vexti, bændur eða kaupstaða-
búar. Mundu þá leikar fara svo,
að þau bréfin, er hærri gæfi
vexti, seldust, en hin ekki.
Út af þessu reis nokkur deila
milli þessara þriggja ræðumanna,
en hjaðnaði þó niður áður en
neilt sögulegt gerðist. Vænta má
að seinna komi að því, að sleg-
in verði drjúg brýna um málið.
Vísað til 2. umr. og landbún-
aðarnefndar.
Hinum málunum svo að segja
þegjandi vísað til 2. umr. og
nefnda.
Dagskrá.
Enginn fundur í Ed. í dag.
Þessi mál eru á dagskrá í Nd.
1. Laxa og silungaklak.
2. Friðun rjúpna.
3. Fyrirspurn frá Bjarna Jóns-
syni frá Vogi til utanrikis-
ráðherra íslands; (hvort
leyfð skuli).
Borgin.
SjáTnrfðlI. Síðdegisflæður kl. 2,50.
Árdegisháflæður kl. 3,20 í nótt.
Jarðarför skipstjórans af þýzka
botnvörpuskipinu Bayern er fórst
við Hafnarbjarg, verður t dag kl. 2.
Líkið fanst rekið i Höfnum, skamt
paðan er skipið fórst, en ekki upp
á Mýruro, eins og stóð í blaðinu í
gær. Um það lik vita menn ekki
hver maðurinn heíir verið né held-
ur af hvaða skipi, þótt geturn hafi
verið að þvi leitt, að hann muni
Fimtud. /m /m fíí/m Jk 1 árg.
19.fc.br. JJClCjOLCÍÖ. í6. tölubl.
í Arni Óla.
Ritstjórn. | G. Kr. Guömundsson.
Afgreiðslat LæUjartorg 2.
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
hafa verið á þýzka bolnvörpn-
ungnum.
Skallagrímnr, sem einn var i leit-
inni að botnvörpungunum, varð að
hverfa frá vegna kolaleysis og kom
hingað í fyrra kvöld. Hafði hann
góðan afla — rúmlega 100 tunnur
af lifur.
Ter kom til Hafnarfjarðar í fyrra-
kvöld með 130 tunnur lifrar. Hafði
hann verið að veiðum á Selvogs-
banka.
Gylfl kom af veiðum að vestan i
gær. Skipstjóri þessa ferð va'r Einar
Einarsson frá Flekkudal. í mesta
garðinum lá skipið inni á Vestfjörð-
um og sakaöi ekki.
Belganm er nýfarinn til Englands
með isfiskfarm. Skipið hefir nú flutt
sig héðan úr Reykjavík fyrir skemstu
og er skráð í Hafnarfirði.
Fyrirspnrn til utanríkisráðherra
íslands, ber Bjarni Jónsson frá Vogi
fram í Nd. Er hún í 15 liöum og
þess vegna líklega lengsta fyrir-
spurn, sem komið hefir fram á Al-
þingi. Er þar meðal annars spurt
ura hvort nokkur ráðherranna sé
skipaður af konungi ráðherra fyrir
utanríkismál íslands, hvort utanrík-
ismál verði eigi látin hafa sína eig-
in skrifstofu, hvort danskir um-
boðsmenn íslands hafi íslenzk þjóð-
tignarmerki, er sýni að gerðir þeirra
fari fram i nafni íslands, hvað
stjórnin hafi gert til þess að fá við-
urkenning annara ríkja en Dan-
merkur á fullveldi íslands o. s. frv.
/
Botnla fer héðan til útlanda í
kvöld kl. 12. Meðal farþega verða
frú Anna Torfason, Hjalti Björns-
son stórkaupm., Árni iB. Björnsson
gullsmiður, frú Kristín Símonarson,
Ólafur Johnson konsúll, Guido Bern-
höft verslunarm., Jóhann Porsteins-
son kaupra. frá ísafirði, Andrés
Guðmundsson.
Lagarfoss er væntanlegur hingaö
í dag frá útlöndum. Skipið fer héð-
an til Vestfjaröa um helgina.
Tíðarfar. í gær var frostlaust við-
ast hvar. Pó var 12 st. frost á Hóls-
fjöllum, Veður var hægt og víðast