Dagblað

Útgáva

Dagblað - 03.05.1925, Síða 2

Dagblað - 03.05.1925, Síða 2
2 DAGBLAÐ Innheimtustofa Islands Eimskipafél.húsinu 3. hæö. Semur sérstaklega um alla mánaöarinnheimtu fyrir versl- anir. Tekur einnig einstaka víxla og aðrar skuldakröfur til innheimtu kl. 10—1 á daginn. þeir auðsæju gallar sem komið hafa fram, eða með öðrum orð- um, að seðlaútgáfan sé skilin að fullu og öllu frá allri al- mennri bankastarfsemi. Mín tillaga í málinu hefir því verið sú, að seðlaútgáfan sé í framtíðinni falin sérstakri sjálf- stæðri stofnun lausri við almenn bankastörf og þá áhættu sem ávöxtun á annara fé getur haft í för með sér, eða með öðrum orðum, stofnun, er ekki hafi aðra útlánsstarfsemi með hönd- um en að eins útlán á sínu eigin fé. Að öðru leyti er það tillaga min að starfsemi stofn- unarinnar sé eingöngu bundin við það að gefa út og selja seðla fyrir gull eða ávísanir, er greiðast erlendis, er hvorttveggja sé svo látið vera til tryggingar fyrir seðlunum svo að þeir geti jafnan með ákveðnu verði á móts við gull orðið innleystir með erlendum gjaldmiðli nær krafist er. Hver trygging gegn verðfalli pappírspeninganna fólgin er í þessari tilhögun kemur glögg- lega fram, ef gert er ráð fyrir að hún hefði verið komið hér á fyrir stríðið. Af þeim inni- eignum íslands, er söfnuðust fyrir erlendis á striðsárunum, hefði þá tilsvarandi upphæð og seðlafjölguninni nam lent í höndum seðlaútgáfustofnunar- innar og verið því til trygging- ar að seðlunum hefði af sjálfu sér fækkað eins og þurfti til þess að verjast lággenginu, þeg- ar verðfallið eftir stríðið skall á. Þingið er nú að fjalla um ráðstöfun seðlaútgáfunnar í fram- tíðinni. En eins og stjórnin hefir lagt málið fyrir þingið sést ekki að tillaga mín hafi verið tekin til athugunar, og þykir mjer því ástæða til þess að minna á hana. Eggert Briem, frá Viðey. Bankabygg, Baunir, heilar, Baunir, hálfar, Bygg, Hafrar, Haframjöl, Hrísgjón, Hveiti, »Sunrise«, do. »Standard«, do. »Atlas« í pk. á 5 kg. Hænsnafóður, »Kraft«, Kartöflumiöl, Kartöflur, danskar, Maismjöl, Mais, heill, Melasse, Fóðurblöndun handa kúm, Rúgmjöl, Heilsigtimjöi, Hálfsigtimjöl, Sagogrjón, Kex, »Metropolitan«, »Snovflake«. Ávextir, þurk. Aprikosur, Epli, Sveskjur, Rúsínur. Cacao, Chocolade,5| Eldspýtur, »Spejder«, Export, Kaffi, Rio, Maccaroni, Marmelade, Mjólk, »Danco\v«, »Columbus«, »Fishery«, Ostur, »Sch\veitzer«, »Ejdammer«, »Gouda« 20%, Sápa, Sykur, höggvinn, steyttur, púðursykur, kandís, florsykur, toppasykur, o. m. fl. Sími 21 & 821. 744 er slmi DagWaösiDg. HDagBlaé. {Arni Óla. G. Kr. Guömundsson- 1 Lækjartorg 2. skrifstofa J Sími 744. • Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd. Prentsmiðjan Gutenberg hf. Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm. Blaðverð: 10 aura eint. Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði. Ást í meinum. Spennandi sjónleikur í 6 þáttum. Aðalhlutverk leikur hinn ágæti feikan Rodolpli Valentino. Sýning kl. 7V2 og 9. Barnasýning kl. 6: Baby Peggy. Borgin. Sjávarföll. Háflæður eru kl. 1,38 i dag og kl. 2,15 í nótt. Nætnrlæknir er í nótt Konráð R. • ráðsson, Þingholtsstr. 21. Sími 575. Nætnrvörðnr er í Reykjavíkur- Apóteki. Arinbjörn hersir kom af veiðum í gær meö um 90 tn. lifrar. E.s. Skald kom hingað í fyrradag frá Englandi með kol til h.f. And- vara á Önundarfirði. Héðan fór skipið samdægurs vestur. Kom hér aðeins við til að táka Arntsen hafn- sögumann, sem hér hefir dvaliö undanfarið. Fer hann með því tií Spitsbergen, en þangað fer skipiö strax og það hefir verið affermt á Önundarfirði. Á það að sækja þang- að kol. Sigurður Sigurðsson ráðunautur fór héðan í gær áleiðis auslur i Rangarvallasýslu, Fer hann í erind- um Búnaðarfélagsins og mun verða að heiman um 3 vikur. Samfund héldu ungmannafélagar í Iðnó í fyrrakvöld og er það síðasH samfundurinn, sem þeir halda, tfl næsta hausts. Fóru þar fram ræðu- höld, söngur og danz að lokum- Ungfrú Hulda Jónsdóttir af Akra- nesi söng þar nokkur lög og þótti takast mjög vel.

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.