Dagblað - 15.05.1925, Blaðsíða 4
4
DAGB LAÐ
Hvernig stendnr á því að ást-
arsögur enda þar sem fólk
giftir sig!
Stúlkur og piltarl
Hvað segir gifta fólkið um það?
Þér verðið að hjálpa til að laga
þetta ástand, svo að skáldin fái
efni til að semja ljuffengt áfram-
hald af sögunum. Ef þau geta
það, þá fara menn að hegða
sér eins.
Nú hefi ég látið yður hafa
hugmynd, en hún gæti kanske
skapað aðrar nýjar hjá yður?
Veröldin er einhvern veginn
þannig löguð, að samneyti fram-
leiðir svo margt. Hugmyndir
eins og annað. Það ætti því að
vera sérlega skemtilegt fyrir
stúlkur og pilta að skrifast á
og hugleiða framtíðina.
Ég vil gerast milliliður í þess-
um efnum fyrir yður, en fyrir
það þarf ég að fá 2 kr. í eitt
ár. Þér fáið þann tíma, frítt
sent, alla lista yfir þá sem þér
megið skrifa til. Sendið aðeins
utanáskrift yðar til Leifs Sig-
urðssonar í Eimskipafélagshús-
inu, ásamt 2 kr. og það getur
orðið til þess að þér finnið það
sem þér hefðuð annars aldrei
gert.
Ef gifta fólkið vill leggja eitt-
hvað til málanna lika, þá er
það velkomið.
Þeir sem vilja rita og fá svar
undir dulnefni, atvinnu eða öðr-
um upplýsingum, þeir verða að
fá tölunúmer hjá mér og skrifa
það á umslögin eða láta það
fylgja með, bréfið til mín sé
merkt »Orion« í hornið til trygg-
ingar fljótri afgreiðslu. Fyrir
ómakið þarf ég 10 aura fyrir
hvert bréf (má vera í frímerkj-
um), auk þess póstgjald á bréfið
til viðtakanda.
Þeir sem vilja hafa bæði dul-
nefni og rétt nafn, segi skýrt
til þess og greiði þá tvöfalt
gjald, 4 kr.
Hikið ekki! Tækifærið gæti
liðið hjá! Aukið viðkynninguna!
Leverhulme lávarður,
eða fullu nafni William Hesketh
Lever, er eins og kunnugt er
aðal maðurinn við hið heims-
fræga verksmiðjufyrirtæki: Lever
Bros. Ltd. — Lávarðurinn er
fæddur í bænum Bolton í Lan-
cashire í Englandi. Faðir hans
settist að í bæ þessum þegar
hann var af æskuskeiði og stofn-
setti þar nýlenduvöruverslun.
Þangað tók hann son sinn sér
til aðstoðar 1867 og var hann
þar í mörg ár.
Leverhulme Iávarður gekk að
eiga Miss Hulme frá Bolton
1874, en árið 1886 stofnaði
hann sápuverksmiðjuna í Port
Sunlight. Hann varð barón 1911
og fékk lávarðstign 1917.
Hann er frægur fyrir fleira
en dugnað sinn og framtaks-
semi við stóriðnað þann er
hann stýrir. Hugsjónir hans og
holl ráð hafa borið árangur á
mörgum svæðum á fósturjörðu
hans. Hann er ágætlega vel máli
farinn, hefir skýrar og ljósar
hugsanir og er mjög vel látinn.
Hefir honum tekist að bera
sættarorð milli vinnuveitenda og
vinnuþiggjenda, sem hafa borið
góðan árangur, er um vinnu-
deilur hefir verið að ræða.
Fyrir nokkrum árum voru helztu
ræður hans gefnar út og vöktu
piikla athygli meðal allra sem
sem verksmiðjuiðnað stunda í
Bretlandi og víðar. Var ræðu-
safni þessu gefið nafnið: Sex
tíma dagurinn.
Mun Dagblaðið innan skamms
flytja kafla úr einni af ræðum
þessum í íslenzkri þýðingu.
HU8MÆÐUR
Þvl NOTIÐ þÉR SÁPUDUFT
OG ALGENGAR SÁPUR, SEM
SKEMMA BÆÐI HENDUR
OG FÖT.
NOTIÐ HELDUR §V1LIGIIT SAPIT, SEM EKKI
SPILLIR FlNUSTU DÚKUM NÉ VEIKASTA HÖRUNDI.
Því kaupið þér íélegar sáputegundir,
sem að lokum munu verða yður tugum
króna dýrari í skemdu líni og fatnaði.
Pað er ekki sparnaður. Sannur sparnaður er fólginn í því
að nota hreina og ómengaða sápu.
SUNLIGHT SÁPAN er hrein og ósvikin.
Notið hána eingöngu og varðveitið fatnað yðar og hálslín.
I
Skrifstofa okkar
er ílutt í Pósthússtræti 17 (suöurdyr,
hús írú S. Claessen).
Friðrik Magnússon Co.
Sími 144.
Gufuþvottahús — Vesturgötu 20.
Afgreiðslan opin alla virka daga frá kl.
8 f. h. til kl. 6 e. h. Sími 1401.