Dagblað - 04.06.1925, Side 1
Fimtudag 'f' JÍ* I. árgar,
* m TlJ /7 /"i h I/7 A m
1925. 4É/M4/ v ífct w iölubU
AÐ er ekki von að bæjar-
búar geti alment fylgst svo
vel með hverju einu sem
gerist í nefndum og í bæjar-
stjórn, að þeir geti undir eins
látið uppi álit sitt um hvað
eina. Og til þess er bæjarstjórn,
að borgarar megi varpa sinni
áhyggju upp á hana. En bæjar-
stjórn getur yfirsézt eins og öðr-
um. Fer því oft svo, að það er
þá fyrst er til framkvæmda
kemur á samþyktum hennar,
að það er eins og hún vakni
upp við vondan draum. Og við
einn slíkan vondan draum hljóta
margir bæjarfulltrúar að hafa
vaknað, er þeir sáu hvernig
haga á hinni nýju byggingu í
Hafnarstraeti.
Eins og bæjarbúar verða að
varpa áhyggju sinni upp á
bæjarstjórn og treysta því að
hún beri umhyggju fyrir bæn-
um, svo verður og bæjarstjórn
að treysta nefndum þeim, sem
fjalla um hin sérstöku mál. Og
í byggingarmálum ætti það að
sýnast óþarfi fyrir bæjarfulltrúa
að fara að hnýsast eftir hverju at-
riði, því að svo vandlega eiga
þau að vera athuguð áður en
þau koma til úrskurðar bæjar-
stjórnar, þar sem byggingarfull-
trúi, byggingarnefnd, skipulags-
uefn, fasteignanefnd og guð má
vita hvað mörg gáfuhöfuð hafa
athugað alt í sambandi við þau.
Og auk þess á borgarstjóri að
vera á vaðbergi og lita eftir
því að engin afglöp sé ger.: í
þessum nefndum og sjá um að
mál komi þannig til bæjarstjórn-
ar, að hún þurfi ekki annað en
greiða atkvæði um þau. En í
þessu máli hefir orðið mikill
misbrestur á, eins og hver mað-
Ur getur séð með eigin augum,
ef hann vill líta á það hvernig
á að hafa hina nýju byggingu
i Hafnarstræti austan Kolasunds.
Og þegar maður íhugar þetta
uaál, verður manni á að spyrja
siálfan sig, hvort ekki vanti enn
e*nn athuganda í byggingarmál-
um svo sem t. d. félagsskap
meðal borgaranna sjálfra til
þess að ónýta þær samþyktir
nefnda og bæjarstjórnar er fara
svo hrapalega í bág við þá
stefnu að reyna að koma sæmi-
legu skipulagi á bæinn.
Eg vona að bæjarfulltrúar
geti viðurkent það, að bygg-
ingarnefnd hafi flekað þá í þessu
máli og að þeir láti það ekki
óátalið að einstökum mönnum
sé leyft að þverbrjóta þær regl-
ur, sem bærinn hefir sett sér
að fara eftir. —
Bæjarstjórn hefir viljað halda
dauðahaldi í húsaleigulögin,
meðal annars til þess að hver
íbúð í bænum sé notuð til ibúð-
ar. En um leið og leyfi var veitt
til þess að reisa hús þetta, varð
bæjarstjórn að setja það skil-
yrði, að húsið, sem er á bak
við hið nýja hús, megi ekki
nota til íbúðar! þar hafa þó
verið íbúðir fram að þessu og
gæti æðimargir menn búið þar,
ef alt húsið væri haft til íbúðar.
Eitt vil eg enn minnast á.
Það mun ekki vera rétt, sem
sagt var í Dagblaðinu um dag-
inn, að eigendur lóðanna beggja
megin Kolasunds, ættu sundið
úr Hafnarstræti og niður á
hafnarbakka. Thomsen mun
aldrei hafa náð eignarrétti á
þessu sundi og þeir sem keypt
hafa húsin þarna, hafa þvi eigi
heldur getað öðlast eignarrétt á
því. Bærinn átti og mun eiga
sundið og mættu bæjarfulltrúar
gjarna rannsaka það mál. Og
sé svo að þetta reynist rétt, þá
hefir bæjarstjórn enn frekari
ástæðu til þess að taka í taum-
ana.
Tíðarfar. í morgun var 11 stiga
hiti hér og 10 st. norðan og vestan
lands. í Kaupmannahöfn, Utsire og
Leirvík var 11 stiga hiti, en 16 st. í
Tynemouth. Á Jan Mayen var 3 st.
hiti. í gær var 7 st. hiti í Angmag-
salik. Loftvægislægð er fyrir suð-
vestan land. Búist við suðaustan átt
og úrkomu viða.
Fyrirbrigðin
í Vestmannaeyjum.
Dagblaðið hefir tvívegis flutt
fregnir af hinum einkennilegu
lækningatilraunum, sem fullyrt
er að fram hafi farið i Vest-
mannaeyjum fyrir áhrif dulveru
þeirrar er kallar sig Friðrik
huldulækni. Einnig hefir verið
skýrt frá fundum þeim, er hald-
nir voru í Vestmannaeyjum í
sambandi við þessi fyrirbrigði.
Nú hefir Hallgrímur Jónsson
kennari í Eyjum sent Sálarran-
sóknarfélaginu hér, ítarlega
skýrslu um viðburði þessa, og
var hún lesin upp á fundi fé-
lagsins síðastl. fimtudag ásamt
vottorðum frá ýmsum mönnum.
Það skal tekið fram, að Sál-
arrannsóknarfélagið hefir ekki
tekið neina ákveðna afstöðu til
málsins, en hinsvegar eru þessi
fyrirbrigði svo mjög umtöluð og
þykja af mörgum svo merki-
leg, að Dagblaðinu þykir hlýða
að gefa lesendum sínum kost á
að kynnast þeim nokkru nánar.
Verður hér að mestu farið eftir
skýrslu Hallgrims kennara og
þeim vottorðum sem henni fylgja.
Margt fólk í Vestmannaeyjum
hefir undanfarið misseri skrifað
til Margrétar Jónsdóttur á Öxna-
felli og leitað þann veg lækn-
ingaáhrifa frá hinum dularfulla
Friðriki huldulækni sem Margrét
virðist vera í merkilegu sam-
bandi við.
Mestum áhrifum frá binum
ósýnilega lækni, hefir frú Guð-
rún Guðmundsdóttir í Berjanesi
orðið fyrir. Er hún ættuð úr
Rangárvallasýslu og búa^foreldr-
ar hennar i Hellnatúni í Ása-
hreppi.
»Seint á síðastliðnu hausti
skrifaði hún norður að Öxna-
felli eftir ákveðnum fyrirmælum
í ósjálfráðri skrift. En áður en
það bérf var farið af stað komst
hún undir áhrif og stjórn þess
dularfulla máttar, er siðan hefir