Dagblað - 03.11.1925, Qupperneq 1
Þriðjudag '&' JÍ* /. árgangur.
3. nóvember 7/ J ^9 120.
1925. 4r rflfy tölublað.
EINS og kunnugt er berast að
ströndum þessa lands áhrifa-
miklir sjávarstraumar úr
iveim áttum, annar heitur, hinn
kaldur. Petta er áþreifanlegur
sannleikur. Hitt er og ekki sið-
ur alkunna, að hingað til lands
stefna margir aðrir straumar.
Annarsvegar eru það straumar
andlegrar og verklegrar menn-
ingar, sem flytja yl og gróður
að landi, og gætir áhrifanna
meir og meir í hverju bygðar-
lagi, fjalls og fjöru í milli. Hins-
vegar berast einnig til okkar
kaldir straumar undirlægju- og
apaháttar, ómenningarog siðleys-
is. Aðalgreinar þessara strauma
liggja fyrst og fremst til kaup-
túnanna og þó einkum til Reykja-
víkur, höfuðstaðarins, og kvíslast
héðan yflr og umhverfis landið.
Þessutn straumum er misjafn-
lega tekið svo sem vænta má,
því áhrifin koma brátt i ljós,
hin betri og hin lakari. Inst í
afdölum og úti um yztu annes
gætir áhrifanna, og þess meir,
sem samgöngurnarbatnaog verða
hraðstígari. —
Eins og sjórinn er straumberi
holln og óholiu, heitu og köldu haf-
straumanna, þaunig eru menn-
ltrgartækin og mennirnir sjálfir
straumberar andlegra og verk-
tegra strauma. Og menningar-
tæki þau, sem mestu um valda
hvert stefnir, eru fyrst og fremst
hinir margvíslegu skólar og
mentastofnanir þessa lands, kirkj-
ur og kennimenn, blöð, bækur,
tímarit, iþróttafélög og leikfélög,,
mannúðarstofnanir og verkleg
samtök, hverju nafni sem nefn-
ast. Ennfremur heilar stéttir
^anna, embættismannastétt og
ekki sizt stéttir sjómanna og
Verslunarmanna, þeirra félög og
fr^mkvæmdastjórnir. Yfir öllu
þessn standa æðstu menn lands
°8 tyðs, löggjafar og lagaverðir,
ems Og áttavitar eða leiðarstjörn-
ur, sem allir mæna ósjálfrátt á
til leiðbeiningar og leiðréttingar
i orði og verki>
Mikii skylda hvílir því á herð-
um þeirra manna, sem bera og
þykjast bera háls og höfuð yfir
fjöldann og er því mikið undir
því komið, að þeir séu stöðu
sinni vaxnir. —
Utan úr heimi.
Khöfn, FB„ 2. nóv. ’25.
Merkilegar uppgötvanir.
Simað er frá Berlín, að þýzk-
um visindamönnum hafi tekist
að fullgera þá uppfyndingu, að
senda bréf og hverskonar prent-
mál þráðlaust ótakmarkaða fjar-
lægð á broti úr sekúndu. T. d.
verði hægt að senda skjal frá
New-York.láta undirskrifa það og
endursenda á sömu mínúta. Þetta
á að vera ódýrara en nemur
venjulegum póstgjöldum. Álitið
er, að hægt verði að senda út
kvikmyndir frá einni aðalstöð
og sýna sömu kvikmynd sam-
timis í öllum kvikmyndahúsum
heimsins. Álitið er að uppgötv-
unin muni hafa ákaílega mikla
þýðingu fyrir blöðin.
Hermálaráðherra látinn.
Simað er frá Moskva, að
Frunze hermálaráðh. sé látinn.
Sarrail kaliaðnr lieim.
Símað er frú París, að stjórn-
in hafi ákveðið að kalla Sarrail
heim frá Sýrlandi. Almenn á-
nægja yfir þessari ákvörðun
hennar.
* ■
Fiskiveiðar Færeyinga hér
við land.
Símað er frá Pórshöfn i Fær-
eyjum, að ákveðið hafi verið að
láta 20 mótorkúttera fara til ís-
landsveiða næsta ár.
Réttarrannsókn gegn Tyrkjum.
Simað er frá Genf, að Tyrkir
reyni að sporna við rannsókn-
um nefndar þeirrar, er sett var
til þess að rannsaka hvað hæft
væri í fregnum um misþyrm-
ingar þeirra á kristnum mönn-
um í Mosul.
Rdssar vilja eiga vingott við
Frakka.
Símað er frá París, að Rakov-
ski ætli að reyna af öllum
mætti að vingast við Frakka
og gera París að miðstöð fyrir
starfsemi Rússa í Vestur-Evrópu.
Fr. Nanseu heiðursrektor við
skozkan háskóla.
Símað er frá London, að stú-
dentar í St. Andrews háskólan-
anum i Skotlandi hafi kosið
Friðþjóf Nansen rektor.
Námuslys í Pýzkalandi.
Símað er frá Berlín, að í
kolanámu í Westphglen hafi
orðið sprenging. Fimtán manns
fórust.
Nyr háskdli í Danmörku.
Nefnd sem skipuð var fyrir
nokkrum árum til að athuga
stofnun nýs háskóla, Hefir nú
skilað áliti sinu og er sammála
um að þörf sé á þessari stofnun.
Stúdentafjöldinn við háskól-
ann í Kaupmannahöfn er nú
orðinn svo mikill, að það þyrfti
að stækka hann að mun ef hann
á að fullnægja. Pess vegna þyk-
ir nú betur við eiga, að fullnægja
ósk, sem lengi hefir verið vak-
andi meðal Jóta, að stofnaður
verði háskóli hjá þeim. Mikill
meiri hluti nefndarinnar vill hafa
nýja háskólann í Árósum, sem
er stærsti bær Jótlands með um
70 þús. íbúa. Sumir vilja hafa
hann í Vébjörgum, hinni gömlu
höfuðborg Jótlands (íbúar um
15000).
Ef háskólinn yrði settur á
stofn strax með öllum þeim
deiidum, sem áætlaðar eru, kost-