Dagblað - 13.01.1926, Qupperneq 4
4
Garnet-hyeiti er ný hveiti-
tegund nefnd, sem farið er að
rækta i Canada og nær fullum
þroska á styttri tima en þær
hveititegundir sem þar hafa
verið ræktaðai; áður. Talið er
að þetta nýja hveiti verði full-
þroska á 100 dögum í stað 110
og 120 daga sem aðrar hveiti-
tegundir þurfa þar til að verða
fullþroska. Stærsti atvinnuvegur
Canadamanna er hveitiræktin
eins og kunnugt er, og getur
þetta því haft mikla þýðingu
fyrir afkomu mikils hluta
þjóðarinnar, og gert þennan
aðalatvinnuveg þeirra tryggari.
Er talið líklegt að þetta nýja
hveiti muni útrýma öðrum
seinþroskaðri hveititegundum áð-
ur en langt um líður.
Pjóðarauður Bandaríkjanna
er nú talinn meiri en nokkurs
annars lands, og i nýkomnum
skýrslum frá verslunarráðuneyt-
inn er fullyrt, að hagur almenn-
ings hafi aldrei staðið með
meiri blóma en einmitt nú.
Svo mikill peningaauður hefir
sáfnast þar saman síðan á
styrjaldar-timunum, að þeir geta
ekki ávaxtað hann heima, og
keppast þvi um að leggja
hann í arðvænleg íyrirtæki út
um allan heim.
Nýlega hefir Coolidge forseti
hvatt þjóðina til að lána nokkuð
að hinum mikla peninga-forða
sinum til útlendra iðnfyrirtækja
sem miða tií almenningsheilla,
en jafnframt hefir hann varað
við að veita lán til aukins her-
búnaðar eða viðhalds honum,
þvi hernaðarstefnuna ættu menn
sizt að styðja.
Skantasvell lætur bæjarstjórn
Winnipegborgar jafnan gera á
hverjum vetri víðsvegar um
borgina, og ver til þess miklu
fé. Þykir þessi ráðstöfun sjálf-
sögð þar vestra og mjög vinsæl
af almenningi, enda eru skauta-
svellin mikið notuð.
— Bæjarstjórn Reykjavíkur
ætti að taka sér þetta til fyrir-
myndar, þótt ekki væri nema á
einum stað. Sú »heiibrigðisráð-
stöfuna myndi óefað borga sig.
D'AGBLAÐ
Leikfélag Reykiavíkur.
Dansinn í Hruna
verður leikinn fimtudaginn 14. þ. m, kl. 8 síðd. í Iðnó.
Aðgöngumiðar verða seldir í dag frá kl. 4—7. og á
morgun kl. 10—1 og eftir kl. 2.
Pantaðir aðgöngumiðar sækist fyrir kl. 4 þann
dag sem leikið er, ella seldir öðrum. Sími 12.
i5. r>.
E.s. Nova
fer tióðan líklega ekki fyr en á íöstudaginn 15 þ.
m. kl. 6 siðd. kemur við i Vestmannaeyjum og Færeyjum.
Farseðlar sækÍHt sem fyrst.
Flutning’ur aíhejHlist nd þegar.
Nic. Bjarnafsíon.
Tóbaksverzlun lslands hf,
eru einkasalar vorir fyrir ísland og hafa ávalt heildsölu-
birgðir af hinum alþektu vörum vorum: t
Elephant sígarettum,
Honey Dew sigarettum,
Elephant reyktóbaki,
Golden Birds Eys reyktóbaki o. fl.
Tomas Bear & Söns, Ldt.
London.
Norðlendingamót
á að halda fimtudaginn 14. þ. m. kl. 81/* síðd. á Hótel ísland. Til
skemtunar verður: Ræðuhöld, sungnar gamanvísur, kvæði flu.tt 0,fl.
Mótið er haldið fyrir heilsuhæli Norölendinga og hefst það
með kafidrykkju, sem fylgir inngangseyri.
Aðgöngumiðar eru seldir í Laugavegs Apóteki og hjá GuðD®
A. Jónssyni skrautgripasala, Austurstræti 1.
Norðlendingar! Tryggið yður aðgöngumiða í tíma, því að eftir-
spurnin er mikil, en húsrúm ekki takmarkalaust.
Mótsnefndin.