Dagblað - 27.06.1926, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐ
hyggja að heppilegum stað fyrir
þjóðleikhúsið.
Einu sinni var talað um að
þjóðleikhúsið yrði bygt á Arn-
arhólstúni norðan Hverfisgötu
neðarlega, en siðan líkneski
Ingólfs var reist á Arnarhóli,
getur ekki verið um þann stað
að ræða, enda varla þótt svo
hefði ekki verið. Stórhýsi neð-
arlega á Arnarhólstúni myndi
algerlega taka fyrir útsýni til
líkneskisins úr Miðbænum, og
einnig eyðileggja útsýnið þaðan
að ofan.
Arnarhólstún, noiðan Hverfis-
götu og neðan Ingólfsstrætis,
verður hér eftir að vera óbygt
alla tíð, sem einskonar afdrep
og griðastaður fyrir götuþreytt-
an almenning. En óhjákvæmi-
legt er að laga túnið mikið, svo
það geti orðið sæmilegt útlits
og til meiri bæjarprýði en það
er nú.
Einhverjum mun einnig hafa
kornið til hugar að leikhúsið
yrði bygt ofar við Hverfisgötu,
miili Safnahússins og húss Jóns
sál. Magnússonar forsætisráð-
herra. En þar er svo aðkrept
að húsið fengi ekki notið sin
og einnig er að ýmsu leyti ó-
heppilegt að slik hús standi við
fjólfarna götu meö aðalinngangi
út að götunni, og sennilega
þeim eina, eins og þarna yrði.
— Einhverjir fleiri staðir hafa
e. t. v. komið til tals, en ekki
svo ákveðið, að um þá sé á-
stæða til að ræða sérstaklega
að þessu sinni.
Sá staður sem heppilegastur
virðist vera fyrir þjóðleikhús,
þegar á alt er litið, er upp af
Lækjargötunni norðan Amt-
mannsstig að Skólastræti, þar
sem Gimli og hús G. Björns-
son eru nú. Með tilliti til þess
sem sagt hefir verið um bygg-
ingu Ráðhússins, á Bernhöfts-
lóðinni, myndi ieikhúsið sóma
sér mjög vel við hliðina á þvi.
— Það er margt sem mælir
með því, að þjóðleikhúsið verði
einmitt bygt þarna.
Pað er sjálfgéfið að stórhýsi
▼erða bygð á þessum stað, því
óvíða geta veglegar byggingar
betur notið sín, en einmitt upp
af Lækjarbrekkunni. Aðstaðan
er svo ákjósanleg sem unt er,
og umhverfið beinlinis krefst
þess að þarna rísi falleg stór-
hýsi. Með tilliti til afnotanna
er þetta sérstaklega heppilegur
staður fyrir ráðhús (eins og
áður hefir verið sagt) og þjóð-
leikhús. Þarna yrði þjóðleik-
húsið sem næst miðdepli bæj-
arins með greiðum aðgangi á
tvo vegu. En er þó ekki við
aðalgötu, svo komist yrði hjá
þeim óþægindum, sem umferðar-
truflun myndi valda væri það
fast við einhverja fjölförnustu
götuna.
þegar á alt er litið virðist
þessi staður sjálfvalinn fyrir
þjóðleikhúsið og vonandi verð-
ur þess ekki langt að biða að
það rísi þar af grunni.
Borgin.
Nœtnrlœknir Kjartan Ólafsson,
Lækjargötu 6 B. Stmi 614.
Fnndnrhöld mikil hafa staðið yfir
hér í bænum stðustu viku og er sum-
um þeirra ekki lokið enn. Eru það
bæði aðalfundir stétttafélaga, svo sem
kennara og presta og einnig undir-
búningsfundir pólitisku flokkann, fyrir
landskjörið. — Um helztu fundina
er getið annarstaðar í blaðinu.
Lögjafnaðarnefndin dansk-íslenzka
hefir nú lokið störfum að þess sinni,
og fóru dönsku nefndarmennirnir
heimleiðis með íslandi á miðviku-
daginn.
Danfdnmbraskólann á að stækka
á þessu ári ag hefir byggingin verið
boðin út. Þessi stofnun hefir hingað
til átt að búa við algjörlega ófull-
nægjandi húsakynni og verið altoí'
lítil. Er það mest að þakka forstöðu-
konunni frú Margréti Rasmus hve
mikið gagn hefir orðið að skólanum
þrátt fyrir óhæga aðstöðu. En með
stækkuninni verður mikið bætt úr
húsnæðisskortinum og verður skólinn
þá vonandi nógu stór fyrst um sinn.
Stórstúkuþingið var sett á fimtu-
daginn og hófst með guðþjónustu í
Fríkirkjunni. Prédikaði þar séra Árni
Sigurðsson. Er þetta 26. stórstúku-
þingið sem haldið er hér á landi, en
annars er Stórstúka íslands 40. ára
gömul. Þingið er venju fremur fjöl-
sótt einkum af Norðlendingum en
þeir hafa haft yfirstjórn reglunnar
sfðastl. ár og munu hafa allan hug á
að halda henni áfram.
Nova kom hingað í fyrradag norðan
um land, fór aftur í nótt. Með henni
fór fjöldi fólks einkum til Norður-
landsihs.
Dagblað.
Þjöðmála-, Bæjarmála-
og Fréttablað.
Ótgefandi: Félag i Reykjavík.
Ritstjóri: Guðm. Porláksson.
Afgreiðsla: Lækjartorg 2. —
Simi 744. Áskrifendagjald kr.
1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg h.f.
Esja kom úr hringferð á föstu-
daginn og fer héðan aftur 1 kvöld
vestur og norður uro land.
Aðalkiiattspyrnumót íslands stend-
ur nú yfir. Hófst það á fimtudags-
kvöldið og mun verða lokið um
næstu helgi. Fimm félög taka þátt í
mótinu, Reykjavíkurfélögin 4 og
Knattspyrnufélag Vestmannaeyinga.
Stúdentnprófnm er nú lokið við
Mentaskólann og útskrifuðust að
þessu sinni yfir 4O nýjir stúdentar.
Fóru þeir allir 1 gær til Þingvalla
eins og venja er til. — Skólauppsögn
fer fram á miðvikudaginn.
Prestastefna stendur nú yfir hér i
bænum. Hófst hún í fyrradag með
guðsþjónustu í dómkirkjunni, pré-
dikaði þar séra Þorsteinn Briem af
Akranesi. Um kvöldið flutti Sig. P.
Sivertsen fyrirlestur um kirkjuguð-
rækni og í-gærkvöld flutti biskupinn
erindi um manninn Pál frá Tarsus.
Gylfl er eini botnvörpungurinn
sem nú stundar veiðar héðan. Kom
hann inn á miðvikudaginn með 67
tn. lifrar og er farinn aftur út á
veiðar.
Ligtasýningin f Listvinafélagshúsinu
stendur yfir ennþá. Er hún daglega
opin og margt þar að sjá, sem at-
hyglisvert er.
Landskjörið á fram að farar á
fimtudaginn 1. júlf. Ýmsum getum er
að því leitt hver úrslitin verða, en
um þau er ekki gott að spá þótt
ekki væri óeðlilegt, að þau yrðu
nokkuð á annan veg en alment er
álitið.
Kennaraþingið, sem haldið er nú
orðið ár hvert, hófst á sunnudaginn
og var lokið á miðvikudagskvöld.
Þingið var tjölsótt þvf alls sátu það
um 70 kennarar. Voru þar rædd ýms
félagsmál og einnig alm. uppeldis og
fræðslumál. Af sérstökum erindum
sem flutt voru á þinginu má nefna:
Séra Jakob Kristinsson flutti fróðlegt
erindi um eyjuna Capri við Itallu og
sýndi skuggamyndir þaðan. — Séra
Friðrik Hallgrímsson flutti erindi um
kristindómsfræðslu og Aðalsteinn
Eiríksson um söngkenslu, voru það
hvorttveggja inngangserindi að um-
ræðum um þessi mál. Steinþór Sig-
urðsson stud. mag. flutti fyrirlestur