Nýja stúdentablaðið - 01.05.1935, Blaðsíða 6

Nýja stúdentablaðið - 01.05.1935, Blaðsíða 6
6 NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ inni. Hún er svona: »í fyrsta lagi fékk ég engan pott lánaðan, í öðru lagi var Iiann brotinn, þegar ég fékk hann, og í þriðja lagi var hann heill, þegar ég skilaði honum«. Heiður háskólans er ekki nýtt fyrirbrigði. Ágúst H. Bjarnason er það ekki heldur. Honum hefir oft gefizt tækifæri til að efla heiður háskólans. Fyrir allmörgum árum kom að læknadeildinni mjög hæfur kennari. Hann varð að hrökklast burt, af því að honum voru ekki fengin hér sæmileg kjör. Hver talaði þá um heiður háskólans? Dr. Sigurður Nordal var á för- um frá háskólanum. Hann fór að vísu ekki. Hygg ég, að þar hafi drengskapur lians sjálfs og tryggð við há- skólann meiru um ráðið en lítilfjörleg launauppbót og umhyggja Ág. H. Bjarnason, Guðm. Hannessonar & Co. fyrir heiðri háskólans. Hvað var um heiður háskólans, þegar Árna Pálssyni var veitt prófessorsembættið í sögu, en gengið var frarn hjá manni, sem af öllum dómbær- um mönnum var talinn honum miklu fremri vísinda- maður; ég á við dr. Þorkel Jóhannesson? — Fyrir tveim árum var ráðinn sem aukakennari að læknadeildinni Lárus Einarsson læknir. Hann er kunnur fyrir vísinda- starfsemi sína meðal sérfræðinga víðsvegar um heim. Laun hefir hann fengið hér eins og óbreytt skrifstofu- stúlka. Húsnæði var honum ekkert fengið undir vísinda- tæki sín, sem erlend stofnun hafði gefið honum, og er mér þó ekki grunlaust um, að slíkt húsnæði liafi verið til, ef yfirvöld skólans hefðu vel leitað. Hann verður nú að hrökklast héðan frá skólanum. Mér er ekki kunn- ugt um, að dr. Alexander Jóhannesson eða Ág. H. Bjarna- son hafi sungið hátt um lieiður háskólans í sambandi við það mál. Var það samboðið heiðri háskólans, er Guðm. Hannesson, prófessor í heilsufræði, fyllti dálka Morgunblaðsins liinum viðbjóðslegu prédikunum sínum um blessun áfengisnautnar? Eflaust hefir það verið að dómi þeirra »heiðursmanna« Ágústs og Alexanders; víst er um það, að þeir þögðu. Er það samboðið heiðri há- skólans, að kennarinn í íslenzku hafi ekki á takteinum algengustn vísnaskýringar? Var áðurnefnd ræða rökfræði- kennarans samboðin heiðri skólans? Eða t. d. »hráka- ræðan« alræmda? IJverjar kröfur gera þessir menn til háskólans, ef svo er? Fyrir 8 árum var heiður háskól- ans undir því kominn, að honum yrði lokað, a. m. k. sumum deildum; í haust sl. undir því, að deihlum yrði fjölgað. í fyrra stóð og féll lieiður skólans með því, að hin fyrirliugaða liáskólabygging yrði reist, núna með því, að hún verði ekki reist o. s. írv. Heiður háskólans byggist á því, að honum séu fengin hin beztu starfsskilyrði. Næg og góð húsakynni og áhöld og hæfustu menn, sem völ er á, svo vel launaðir, að þeir geti gefið sig óskipta vig kennslunni og vísindaiðk- unum sínum. En heiður háskólans byggist ekki á því, að við hann séu tengdir margir menn á borð við Guðm. Hannesson, Ágúst H. Bjarnason eða Alexander Jóhann- esson. Dómur kunnugra manna er sá, að þessir menn séu ekki hæfir kennarar. Út á við eru þeir blettur á háskólanum, svo framarlega sem hann á að vera vísinda- stofnun. Það þýðir ekki annað en horfast í augu við staðreyndirnar. Nú undanfarið hafa heyrst ákveðnar raddir um það úr hópi stúdentanna og frá þeim háskólakennurum, sem vilja háskólanum vel, að nauðsyn beri til að hefjast handa um, að efla gengi hans. Ég vil vona, að þær raddir þagni ekki fyr en a. m. k. það er tryggt, að á- byrgðarlausir loddarar sitji ekki í æðstu trúnaðarstöð- um háskólans. Ég vil vona, að unnendur háskólans horfi ekki í það, að fórna nokkrum peðum til þess að vinna þá skák, sem þeir nú tefla um framtíð og velferð hans. Menn mega ekki skilja þetta svo, að við háskólann séu fáir nýtir menn. Fullur helmingur af föstum kennurum skólans eru ágætir kennarar og fræðimenn, nokkrir þeirra skara mjög f'ram úr í sínum greinum. En í manna- vali verður að gæta þess, að rugla ekki saman fjarskyld- um hlutum. Menn geta haft áhuga á ýmsu, t. d. flug- málum, fasistisku ofbeldi, ljóðaþýðingum, bókabrennum, salernum o. s. frv., en það er hreint ekki víst, að sömu menn séu af þessum sökum færir um að kenna rökfræði, gotnesku eða iífeðlisfræði o. s. frv., svo einhver dæmi séu nefnd af handahófi. Auðvitað er það eitt af höfuð- skilyrðunum fyrir hollu og farsælu starfi hvers skóla, að giftusamlega takist um val starfskraftanna, og það verð- ur því einnig á hverjum tíma ein höfuðkrafa þeirra, er raunverulega vilja fullkominn íslenzkan háskóla, og kraf- an getur vissulega ekki talist ósanngjörn, svo framarlega sem háskólinn á að vera hlutverki sínu vaxinn. Hlutverk háskólans er að leita sannleikans og finna hann, ryðja honum braut út til landsins barna, að færa vísindin og þekkinguna út í hið daglega líf, gera þau að þjóðareign. Hann á ekki eingöngu að vera klakstöð fyrir embættismenn. Hann á fyrst og fremst að ala upp frjálshuga og víðsýna menntamenn, er miðla af þekk- ingu sinni, er út í lífið kemur. í draumum og vonum hinna beztu manna átti háskól- inn fyrst og fremst að vera griðastaður þjóðlegra fræða- og vísindaiðkana. Og svo er enn. Mörg svið íslenzkrar sögu og bókmenntasögu eru enn óbrotið land. Sagan er okkur ástfólgin. Hún geymir fræðin um baráttu þjóðar- innar við óblíð náttúruöflin og framandi vald, sigra hennar og ósigra, gleði hennar og sorg. Án þekkingar á sögunni og lögmálnm hennar, getum við aldrei skilið til fulls skáld vor og aðra velgerðamenn né verk þeirra eða hlutverk okkar. Háskólinn á einnig að vera griðastaður hinna hagnýtu fræða og heimspeki. Og líf hans og heið- ur er undir því kominn, að hann sé jafnan skóli hins nýja tíma, eilíflega ungur. En jafnvel þótt borgarastéttin íslenzka geti ekki lengur leyft sér þann »lúxus«, að éfla menninguna, er ég sannfærður um, að sá hópur er ekki smár, sem drengskap liefir til þess, að bera fram og berjast fyrir kröfunni um fullkomna menningu til handa íslenzkri þjóð, jafnvel þótt sú krafa verði byltingarsinn-

x

Nýja stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.