Nýja stúdentablaðið - 01.05.1935, Page 11
NÝJA STÚDENTABLAÐIt)
11
sem vottur þcss, að bezti kjarnínn úr menntamönnum
þjóðarinnar taki afstöðu með verklýðshreyfineunni og
sósíalismanum og vilji beita kröftum sínum til þess að
skapa þá voldugu samfylkingu verkaiýðs og allra kúg-
aðra, sem ein getur leitt til sigurs yfír auðvaldi og
fasisma.
Svo sem yður mun kunnugt, hefir »Dagsbrún«, fjöl-
mennasta verkamannafélag landsins, einnig krafist sam-
fylkingar 1. maí og er mjög ákveðinn vilji fyrir hendi
í fleiri verklýðsfélögum í þá átt. Eu því miður hefir
hinsvegar fulltrúaráð verklýðsfélaganna ekki lialdið neinn
fund til að taka ákvörðun um þetta mál, þótt hinsvegar
einlægur vilji til samfylkingar sé fyrir hendi hjá mörg-
um meðlimum fulltrúaráðsins. Hefir flokki vorum því
ekki borist neitt svar við samfylkingartilboðinu frá rétt-
um aðiljum í AlþýðufJokknum. Hinsvegar hafa ýmsir
foringjar þess flokks ótvírætt gefið það í skyn í grein-
urn í Alþýðublaðinu, að ekki verði um samfylkingu að
ræða frá þeirra hálfu. Oss þykir þetta illt, en hinsvegar
tjáir ekki að láta þessar aðfarir hindra samfylkingu 1.
maí, þar sem vitanlegt er, að viljinn til samfylkingar
hefir aldrei verið eins mikill meðal Alþýðuflokksmanna
sem nú og jafnframt auðséð, að það eina, sem hugsan-
lega getur knúð foringja þess flokks frá afstöðu sinni,
er, að verkalýðurinn skapi samfylkinguna án þeirra. Við
skorum því á félag yðar, að taka þátt í útifundunum og
kröfugöngunni 1. maí með samfylkingunni, við hlið
Kommúnistaflokksins og annara samtaka, er samfylkingu
vilja. Bjóðum við hérmeð félaginu að hafa einn ræðu-
mann á útifundinum við Lækjargötu. Væntum við svars
yðar liið fyrsta.
Með beztu kveðjum.
Kommúnistaflokkur íslands, Reykjavíkurdeildin.
Einar Olgeirsson.
Þann 29. apríl var svo haldinn fundur í félaginu til
að taka afstöðu til bréfanna, sem neíndinni liöfðu bor-
izt. Var þar ítarlega rætt efni bréfanna og samþykkt, að
félagið skyldi taka boði Kommúnistaflokksins og ganga
sem heild í kröfugöngu samfylkingarinnar 1. maí. Hins-
vegar taldi félagið sig ekki geta tekið »boði« Alþýðu-
flokksins, þar sem það er sýnt, að forvígismenn þess
flokks vilja ekki samfylkingu á þeim grundvelli, sem
fél. lagði til.
Við stúdentarnir böfum vissub-ga okkar sérstöku kröf-
ur að gera, en þessi samþykkt Félags róttækra báskóla-
stúdenta sýnir, að nú er fleiri stúdentum en áður ljóst,
að sigursæla baráttu fyrir. áhugamálum okkar og kröfum
getum við ekki háð nema undir lorystu verklýðsstéttar-
innar og í nánu samstarfi við hana. Þess vegna göngum
við með henni út á götuna 1. maí. P.
Hafnarstúdentar!
Við róttækir stúdentar þökkum íslenzkum stúdentum
í Höfn og þá sérstaklega þeim róttæku félögum okkar,
sem frumkvæðið áttu, fyrir afskipti þeirra af atvinnu-
deildarmálinu og af baráttu okkar hér heima í sambandi
við það. — Ef íslenzk menningarmál og mál Iiáskólans
sérstaklega ættu slíkri árvekni og umhyggju að fagna hjá
öllum íslenzkum menntamönnum, væri þeim vel borgið.
Blái bordiim
TÍðurkeamdur
bezta smjörlíkið.
I
Sj a f ii a r - li a 11 d s á |> urn ai*
Rósarsápa, Möndlusápa, Baðsápa, Pálina-
sápa jafnast fyliilef»a á við beztu erlendar
sápur. Biðjið um Sjafnar handsápur.
Vorið er komið!
Það vita allir. En liitt
vita ekki allir, að beztu
og ódýrusfu sporthux-
urnar fást hjá
Gefjun
Laugaveg 12.