Nýja stúdentablaðið - 13.04.1948, Qupperneq 17
NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ
15
HEINRICH HEINE:
Með hceversku hneigðum við okkur
og honum búðum inn.
VIÐ VORUM KRAKKAR, KÆRA
Við vorum krctkkar, kcera,
í kotinu, glöð og smá.
I heyi inni í hcensnakofa
við hreiðruðum okkur þá.
Við göluðum hátt eins og hanar,
svo hver, sem um veginn fór,
gat haldið, er hvein í okkur,
að hanar göluðu í kór.
Á holtinu bce við hlóðum,
og hagleg var bygging sú.
og síðan með rausn og ráðdeild
þar reistum við saman bú.
Frá grannanum oft sem gestur
kom gamalt kattarskinn.
Við spurðum um hag hans og heilsu
með hjartnœmum rómi og svip.
Og oft slíka samúð síðan
við sýnt höfum verri grip.,
Og stundum sem fullorðna fólkið
við fjösuðum um það i gríð,
hve rangsnúin veröldin vceri
og verri en á okkar tíð,
hve ástin og trúin vœri útdauð
og engum sýnandi traust,
hve rándýrt og rammt vœri kaffið
og ríkið peningalaust----—
En úti er bernskunnar yndi,
og allt fer sömu brú,
auður og heimur og aldir
og ást og von og trú.
Magnús Ásgeirsson, íslenzkaði.
Prófessor reisir sér hurðarés um öxl
Ætlar að sanna að Nordahl Grieg hafi verið búinn að snúa baki við fyrri
hugsjónum sínum, kommúnismanum, þegar hann féll í stríðinu. En það
sem rangt er verður ekki sannað, jafnvel þótt prófessor fjalli um málið.
.... Gylfi Þ. Gíslason upplýsti í lokaræðu sinni, að Nordahl Grieg hefði fyrir löngu verið búinn að snúa baki við kommún-
istum er hann féll í stríðinu. Kölluðu nokkrir kommúnistar þá fram í: „Hvaðan hefur þú það?“ En Gylfi svaraði um hæl. „Frá
honum sjálfum. . . . Alþýðublaðið 16. marz 1948 í lýsingu á stúdentafundinum í Sjálfstæðishúsinu 14. s. m.
Gylfi Þ. Gíslason, prófessor.
Þar sem ég er útlendingur er erfitt fyrir mig að láta í ljós
skoðun um ókunnan prófessor sem ég þekki ekki, og hef aldrei
hitt og kæri mig ekki um að særa. En bæði ég og allir vinir Nor-
dahls vitum tvímælalaust að hann var til æviloka bæði mikill
föðurlandsvinur og eldheitur marxisti og kommúnisti. .. . Ég get
ekki ímyndað mér annað en orð prófessorsins hljóti að stafa af
misskilningi, eins og oft vill verða, þegar menn tala mismunandi
ol Gerd Grieg í Þjóðviljanum 16. marz í svari til prófessors
Gylfa út af ummælum lians um Nordahl Grieg á stúd-
entafundinum.
.... Ég hef aldrei heyrt Nordahl Grieg lýsa því yfir, að hann
væri ekki kommúnisti. .. .
Gylfi Þ. Gíslason prófessor í Alþýðublaðinu 20. marz _
í grein, sem heitir Nordahl Grieg og kommúnistar.
Nordahl Grieg.