Sunnudagsblaðið - 21.02.1926, Qupperneq 4
801
Sunnudagsblaðið.
------ RÆEIIR ------------
þessar fást á afgreiðslu Sunnudags-
blaðsins:
Rökkur, I. árg................kr. 3.00
Rökkur, II. árg.................— 2.00
Rökkur, III. árg...............— 2.00
Axel, eftir Tegnér, i bandi ... — 1.00
Redd-Hannesarrima, eftir Stgr.
Th..........................— 2.00
Ljóðaþýðingar, I. b., eftir Stgr.
Th., i bandi, lakari pappír. . — 5.00
Sama bók, betri pappir.......— 7,00
Sama bók heft, betri pappír . — 5.00
Sama bók heft, lakari pappir . — 3.00
Æfintýri íslendings, eftir A. Th. — 2.00
Útlagaljóð eftir A. Th.......— 2.00
N.B. Veröið á flestum bókunum
mikið lækkað. — Bækur sendar hvert
á land sem er gegn póstkröfu.
Amerisk timarit að jafnaði fyrir-
liggjandi:
The Pathfinder, hcftiö.........kr. 0.25
The Literary Digest, heftið . . — 0.50
The Saturday Evening Post . . —' 1.00
Photoplay................... — 2,00
JptW*
Hanes“
>r
nærfötin
eru nú komin aftur, og hefir verðið nú
lækkað.
»Hanes« nærföt eru viðurkend fyrir
gæði, þau eru þlý og þægileg, ódýr og
sterk.
rimaCdm ''fhnawt.
um, að koma og vökva sig. Líttu
þarna á kerara-tréð, sérðu ilöngunina,
hvernig það mænir á vatnskönnuna
mína um leið og það titrar i vind-
blænum? Bíddu eitt augnablik, þú
óþolinmóði skuggabróðir, heldurðu eg
ætli að gleyma þér?«
Þannig mælti Sakúntala og flýtti sér
að trénu til að sýna því ástaratlot og
færa þvi vökvun.
í*á tók hin vinstúlkan til orða og
sagði við Sakúntölu: Yndislega vafn-
ings-planta! þetta fer þér prýðilega.
Stattu stundarkorn enn hjá þinum
elskaða, og faðmaðu hann einu sinni
enn, svo við getum dáðst að þér eins
og hinum vafnings-plöntunum, systr-
um þínum. Yið segjum þá að varir
þínar séu orðnar að laufhnöppum,
þínir mjúku armar að ungum grein-
um og elskutöfrar æsku þinnar að
ilmandi blómskrúði«.
»Alténd ertu nógu sætmál«, svaraði
Sakúntala; »það var ekki um skör
fram að þú varst kölluð Príamveda«.*
| Bruna- og- sjóvátryg-gingar |
^ eru hvergi ábyg-gilegri en hjá ^
ITROLLE & ROTHE |
(Eimskipafélagshúsinu). ^
^ Sliaðabótn-algreiðsla hvergi fljótari. ^
j SSíini 235. - Hringid strax! ^
»Heyrðu góða mín!« sagði Príam-
veda við þá, sem fyrst hafði talað;
»ef eg mætti birta alt, sem Sakúntölu
býr í brjósti, þá gæti eg enda sagt
meira. Það er grunur minn, að hún
hafi hugann á einhverju öðru, þegar
hún er sem sætmálust við trén; hún
hefir þau vist til blóra. Ætli það vaki
ekki fyrir henni, að þetta eftirlætistré
sé einhver gjörfuglegur yngissveinn?
Þegar hún sér mangó-viðinn þarna
með vafnings-hrislunni alblómgaðri,
sem fléttar sig utan um hann, þá mun
hún hugsa með sjálfri sér: Þessi
mangó-viður fyrirmyndar mér einhvern
ágætismann, einhvern riddara eða
konung, sem siðar meir mun verða
minn brúðgumi; eg mun þá umvefja
hann örmum minum eins og hrislgn
þarna vefur sig um tréð, og í hriðinni
og storminum skal hann vera mitt
skjól. Skyldi mér þá auðnast að finna
slikan unnusta i þessum afskekta
einbúa-skógi?«
Sakúntala roðnaði um leið og hún
hallaðist fram með vatnskönnu sina og
mælti: iiÞað ert meira en spákona,
Príamveda! en samt held eg þetta
sem þú sagðir eigi fremur heima hjá
þér en mér«.
»Nei, ekki er eg spákona«, ansaði
Príamveda, »eg þarf sannarlega ekki
að vera það til þess að geta sagt þér
fyrir, besta vina mín! að þú munt á
sinum tíma eignast þann mann, sem
öllum er ágætari; en það er ekki
heldur nema jafnræði, þar sem þú
sjálf hefir þvilíkt andans og líkamans
atgjörfi til að bera«.
Sakúntala ætlaði að svara henni og
færast undan lofinu, en þá kom að
hendi nýtt atvik, sem varð til að slíta
þessu tali þeirra. í þvi hún seildist
niður með hendina til að kippa upp
blómstri einu, þá flaug að henni illi-
leg og áfjáð býfluga og vildi stinga
hana. Hún varð hrædd við býið og
varðist því eins og hún gat með hönd-
unum og hopaði undan til hliðar. t*að
var alt til einskis, býið varð æ því á-
leitnara. f*á bað Sakúntala vinstúlkur
sína að hjálpa sér, en þær gerðu ekki
annað en hlóu og striddu henni.
»Kallaðu á Dússianta konung«, sögðu
þær, »bann hvað vera kominn hingað
í dag; einbúalundurinn er undir hans
vernd, og honum er því næst að verja
þig fyrir þessum friðarspilli«.
„Konaii6* heitir einhver frægasta
kvikm. Normu Talmadge. Meðleik-
endur hennar eru Wallace Mac Don-
ald, Bradon Hurst, Paulette Duval o.
fl. Einkar fögur mynd af Normu
Talmadge í þessari kvikm. er birt
i 25. tbl. Sunnudagsblaðsins. í þessu
hlutverki fær Norma Talmadge tæki-
færi til að sýna hve f|ölhæf leikkona
hún er. Hltverkið er sem skapað fyrir
hana. Hún leikur dansmærina Polly
Pearl, er allir Lundúnabúar þyrptust
til þess að sjá. Hún varð ásthrifin af
ungum aðalsmanni, er skildi við hana,
þá er hún var þunguð orðin af hans
völdum. Spor hennar liggja til Mar-
seille og þar elur hún sveinbarn.
Einnig það var frá henni tekið. Á-
takanlegur þáttur í kvikm. er leit
hennar að drengnum. En hún finnur
hann ekki. Og árin líða. Hún erfir
velgerðarkonu sina i Marseille. En
hún ber sifelt sorg i huga. Móður-
hjarta hennar er altaf jafnheitt.----
En í styrjöldinni miklu var margt
enskra hermanna. í Marseille Og enn
vonaði hún, að hún mundi finna dreng-
inn sinn. Og tilviljun ein réði, að svo
varð, og lýkur þar raunum hennar.
Kvikm. þarf engra meðmæla. Enginn
kvikmyndavinur efast um, að Norma
Tahnadge leysi slíkt hlutverk snildar-
lega af hendi.
Nýir áskrilendur
fá eina af þessum bókum í kaupbæti:
Rökkur II.,.........verð kr. 2.00
— III., *........ — — 2.00
Redd-Hannesarríma ... — — 2.00
Ævintýri Islendings ... — — 2.00
eða 2. krónu afslátt af þeim bókum
öðrum, sem fást á afgreiðslu blaðsins.
Þessi kaupbætiskjör eru bundin því
skilyrði, að menn hafi gerst áskrif-
endur frá byrjun árgangsins og greitt
andvirði hans (kr. 5.00) að fullu. Sömu
kjör gilda fyrir gömlu áskrifendurna.
Til þess að fá kaupbæti sinn þurfa
þeir að eins að sýna kvittun fyrir
andvirði II. árg. á afgreiðslunni, sem
er opin dagl. ?kl. 4—7.
SunnudagsblaOið.
* P. e. loftunga.