Dvöl - 01.12.1935, Side 4

Dvöl - 01.12.1935, Side 4
4 D V l. desember 1935 pabbi og mamma voru hátíðleg, næstum því hrærð, sjálfur varð hann að taka á til þess að verj- ast skeifu. Hvaða barnaskapur, var hann ekki orðinn fimmtán ára? Nú var lífið alveg dásamlegt. í næsta tíma var saga Svíþjóðar — Karl 12. — sem hann kunni eins og faðirvorið. Honum var ekki fullkomlega ljóst, hvort hann dáð- ist að Karli 12. af því að hann líktist Hit.ler, eða að Ilitler af því að hann líktist Karli 12. Ekki að útliti, heldur að hugrekki og hreysti. Þó var Karl 12. þyngri á metunum. Hann var sænskur. Fritz titraði af stolti og hrifningu við hugsunina um, að hann lagði sama land undir fót og Karl 12. Gustav Vasa! Engelbrekt! Meðan hann skálmaði eftir götunum, fannst honum hann vera sænskur inn að hjartarótum. Hvenær sem væri skyldi hann binda á sig skíð- m og þjóta um landið, safna bændunum um sig, hrífa þá með brennandi mælsku og leiða þá v móti óvinunum til að sigra eða falla. Aðeins að hann mætti rétta upp handlegginn, þó að ekki væri nema einu sinni, og hrópa húrra fyrir---------- í frímínútunum tók Jósefsson til máls. Hann var bekkjarbróðir Fritz. — Hamingjan góða! Að nokkur skuli þurfa að sitja og hlusta á þetta þvaður. Ö L — Hvað áttu við, spurði Fritz. — Konungahetjur! Rödd Jós- eíssonar var þrungin háði og fyr- irlitningu. — Heimskingjar, vit- firringar, sem ætti að--------- — Um hverja talarðu? — Um konungahetjurnar, heyr- irðu það ekki? — Gyðingur! — Nazisti! Klakk! Klakk! Bardaginn var þegar í algleymingi. Honum sleit fyrst við hringinguna. Fritz var ánægður með sjálfan sig, þegar hann hélt heim úr skólanum. Hann hafði komið Gyð- ingabjálfanum undir og látið hné fylgja kviði og lúskrað honum rækilega. Þetta eru þróttlausir aumingjar ....... Fritz hafði ekki geðjast illa að Jósefsson fyr en Hitler opnaði augu hans fyrir því hver hann eiginlega var. Áður höfðu þeir haldið saman í blíðu og stríðu, bæði í skólanum og sumarleyfun- um. Fyrir ári síðan hefði Fritz ekki aðeins sagt honum frá bátn- um sínum fyrstum manna, heldur og tekið hann með í fyrstu róðr- arferðina. Sólin skein, strákarnir léku sér að flugdrekum í sunnan- golunni, ísinn hlaut að leysa af vatninu innan skamms. Hann varð að fá Berg með í reynsluferðina. Bergur — hann var öruggur — gat sannað ágæti ættarinnar tíu, tólf liði aftur í tímann. Alveg eins og Fritz. Faðir hans var sannur Stokkhólmsbúi aí 'göml-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.