Dvöl - 22.12.1935, Blaðsíða 1
Jólaháh'ðin fep í hönd
28. hefti
l'
Hún er oft kölluð hátfð frlðarins, og þó hika ekki hinlr svokölluðu kristnu
menn við að drepa meðbræður sína með öllum þeim morðtækjum, sem mlsnotkun
vlslndanna hefir fært þeim i hendur, - einmltt sjálfa jóladagana. — Jólin eru
kölluð hátið barnanna og mörg börn njóta þá Ijóss og yls, en hversu mörg eru
þau börn ekki, sem klæðlítil, köld og hálfsvöng verða að hýrast i lélegum
og köldum hýbýlum sjálfa jóladagana eins og aðra. - Jólin eru kölluð hátið
göfugra hugsana og verka En eru þau ekki stærsta hátíð hinna likamlegu lifs-
nautna: Ofdrykkjunnar, ofátsins, prjálsins, tízkutildursins, - og þar sem aðal-
umræðuefnið er helzt fánýtt og lélega valíð slúður um náungann. — Jólin eru
kölluð’hátið 'góðgerða og hjálpsemf, og óneitanlega verða margir gjöfulli um
jólin en aðra tíma ársins. En er ekki sagan um Meistarann, sem jólin eru helg-
uð og sem fékk hvergi húsaskjól I mannahýbýlum fyrstu nóttina sem hann lifði,
alltaf að endurtaka sig? Er beztu mönnum ekki ennþá visað til úthýsanna? Þar
megi þelr i skársta lagi vera afskiftalausir. — Jólin eru kölluð að vera helguð
Kristl, sem var sérstakur málsvari smælingjanna. En hvernig eru jólahugsanir
og breytni okkar, sem taldir erum „betur megandi“, til þeirra, sem enga vinnu
geta fengið? Munum við eftir mönnunum- úti á sjónum, sem annast flutningana
um hin veglausu og úfnu höf, svo við sem i landi erum getum lifað „gleðileg
jól“? Munum við fátæku hjónin og börnin þeirra i lágreista heiðabýlinu, sem
verða að neita sér svo að segja um öll lifsþægindi? Og virðum við og munum
konuna er leggur í ofninn okkar, og sem vakir við að þvo gólfin, hreinsa og
fægja allt,[fyrir jólin, svo að hlýtt og þrifalegt sé umhverfis húsbændurna, og
beztu vini þeirra? Hættir okkur ekki einmitt við að gleyma þessu fólki? -
Jólin verða þá fyrst „sigurhátið sæl og bIíð“, þegar þau eru sönn hátíð þess
að^daginn'fer að lengja. Ijósið að nukast, birtan og bróðurkærleikurinn i hug-
um mannanna að vaxa. - Þegar hætt er að þvcrbrjóta jólaboðskapinn. ekki
aðeins á jólunum, heldur einnig að þeim liðnum, og sálin er snortin af sem
flestu er lyftlr huganum „duftsins fjötrum frá til frjálsra himinvega“, - þá er á-
stæða til að segja af alhuga: Gleðileg |ól!