Skutull - 23.11.1940, Blaðsíða 4
löO
SKtJTULL
vitaö, aö þessum málum var
svona háttað, hygg ég, að honum
heíði tæplega dottið í hug að
ásaka mig fyrir hina ímynduðu
deyfð í félagslífinu. Eq hvað sem
því líður, þá er hitt víst, að nem-
endurnir líta ekki á það sem
hlutverk skólastjórans að halda
félagslífínu uppi — um það gera
þeir fyrst og fremst kröfu til
sjálfra sín, enda eru þeir einskis
ámælisverðir fyrir, hvernig þeir
hafa snúizt við þeim kröfum og
þeirri ábyrgð í reyndinni.
Hannibal Valdimarsson.
Nýtt lýðræði.
Eins og mörgum er kunnugt,
ganga aliir bátar hér í bæ á þorsk-
veiðar, vegna hins háa veiðs, sem
greitt er fyrir fisk til útflutnings.
En þrátt fyrir hina miklu síldveiði
i sumar heflr forstjóii þess frysti-
húss, sem við höfum alltaf skipt
við — sumir í áratugi — að
likindum gleymt að aflla nægilegrar
beitu, enda setti smokkurinn fyrir
hann fótinn, þótt smávaxinn sé.
En hvað er svo tekið til bragðs,
þegar beitan þykir ekki nægileg?
Jú, viti menn: Ekki vantar lýðræð-
ið, frekar en vant er. Það er ráðizt
á garðinn, þar sem hann er lægst-
ur, eins og siður er margra þeirra
manna, sem nota aðeins fólkið til
þess að koma sjálfum sér upp,
en troða það svo.niður í skarnið.
Héðan ganga margir trillubátar,
og eru eigendur þeirra fátækir
fjöiskyldumenn, sem eru að reyna
að fleyta sér á þessum bátum,
meðan hægt er og einhver dráttur
fæst úr Djúpinu. Þessir t«átar
þurfa að fá beitu og hafa fengið
til þessa, en þegar sjáanlegt virð-
ist, að beitan muni ekki nægja til
vors, þá eru trillubátarnir útilok-
aðir. Trillubátunum er reyndar
boðinn píringur af smásild, sem
að allra dómi og reynslu er ónýt
beita, en hafsíldin, sem til er,
fæst ekki, þó að guli sé í boði.
Hana eiga stóru bátarnir alla, því
þeir ala forstjóra og þess háttar
fólk, sem þjóðfélagið má ekki án
vera, en trillukarlarnir hafa enga
svoleiðis menn á framfæri og geta
þess vegna hætt — eða ef þeir
vilja ekki hætta, beitt ónýtri smá-
síld eða grjóti. Þeir þuifa enga
hjálp. Þeir mega drepast. Peirra
er éngin þöif. — Þetta eru hin
óbeinu svör hjá íshúsinu, sem
trillukarlarnir hér og árabátamenn
hafa skipt við áium — og aumir
áratugum saman. Þetta er nú
lýðræðið og jöfnuðurinn, sem við
megum búa við, þótt sumum
kunni að finnast, að réttara væri
að nefna þetta einhverju öðru
og heldur Ijótara nafni.
Líklega verðum við ekki menn
til að launa fyrir okkur, jafnvel
í litlu!
Nokkrir trillubátakarlar.
HÍjómleikar á ísafirði!
Það er langt síðan ísfliðingar
hafa átt kost á annari opinberri
skemmtun en dansi og aftur dansi,
Að vísu eru þeir til, sem aldrei
veiða leiðir ó þeirri ágætu skemmt-
un, en allra skemmtiþörf full»
nægir dansinn þó ekki.
Nú heflr mér borizt til eyrna,
að þau Jóhanna Jóhannsdóttir
söngkona og séra Marinó Krist-
insson ætli að gefa ísfirðingum
kost á söngskemmtun á föstudag-
inn kemur. Er mér tjáð, að þau
muni fyrst syngja „duet“ og síð-
an „sóló* til skiptis — og svo aftur
„duet“ að lokum. Á söngskránni
veiða bæði íslenzk alþýðulög og
ítalskar aríur, eftir því, sem ég
hefl hlerað.
Það hefir því miður oft farið
svo, að söngskemmtanir hafa
reynzt hér miður sóttar en dans-
leikar. Ég vona þó, að í þetta
skiptið fari á annan veg. Ég veit,
að mörg hundruð bæjaibúa hafa
þegar oft og mörgum sinnum
notið ógleymanlegra stunda við að
hlýða á söng séra Mirinós, þegar
honum heflr tek’Zt bezt upp. Og
frú Jóhanna hélt hér einusinni
„konsert" fyrir mörgum árum
síðan. A hún frá því kvöldi og
af síðari viðkynningu fjölmennan
hóp aðdáenda meðal söngvina hér
í bænum.
Ég er sannfærður um, að þeir,
sem ekki fara á söngskemmtun-
ina á föstudaginn, missa af
óvenjulega góðri skemmtun. Og
þess vegna tel ég það skyldu
mína að minna á hana ákveðið
og eindregið, meðan tími er til.
— Ég get ekki ímyndað mór
annað en að hvert sæti veiði
skipað í Alþýðuhúsinu á föstudag-
inn. í eyðimörk skemmtanalifs-
ins sé ég þarna a. m. k. s ó 1 -
skinsblett í heiði, og skora
á bæjaibúa að setjast þar fjöl-
mennir að heilbrigðri gleði í dimm-
viðrisdrunga skammdegisins.
Hannibal Valdimarsson.
Áraskip
heitir bók, sem Jóhann Bárðar-
son, áður kaupmaður hór á ísa-
flrði, heflr skrifað. Er Isafoldar-
prentsmiðja útgefandi bókarinnar,
og er bókin vel út gefln og í
henni margar myndir. Bókin fjall-
ar um útgerð og sjósókn í Bol-
ungavík síðasta áratuginn, sem
hinir gömlu atvinnuhættir hóidust
að mestu óbreyttir. Um bók þessa,
sem Jóhann hefir auðsýnilega haft
mikið fyrir, verður ritað í næsta
tbl. Skutuls.
Ritstjóri Skutuls
heflr hitt prýðilega greindan og
menntaðan erlendan sjómann, sem
kom til Rússlands árið 1925 og
svo nokkru fyrir stríðið. — 1925
var gleðibragur á hinum tötrum
Okkur vantar ýmislegt, en höfum þó flest,
sem þér þarfnist.
KAUPFÉLAGIÐ.
íslenzkt smjör!
Nei, vinur minn, en það eru fleiri en þú, sem
halda, að þeir séu að borða islenzkt rjómabússmjör,
þegar þeir borða
Stj örnn- eda Sólar-smj örlíki.
Og Sólarjurtafeitim er bezta bökun-
arfeitin. — Það vita allar húsmæðurnar ai
reynslunni.
Ný bók,
Aö iitam og sunnan,
eftir prófessor Guðbrand Jónsson,
er kotnin í bókaverzlanir.
Bók þessi hefir þá tvo kosti góðra bóka,
að vera bæði fróðleg og skemmtileg.
klæddu verkamönnum og þeir
fullir af ungum vonum. Einnig
fengu þá hinir erlendu sjómenn
að fara um allt, skoða iðjuver og
verksmiðjur. Hið síðara skiptið.
voru verkamennirnir betur búnir,
en dauflr í dálk, flóttalegir og
tortryggnir, alstaðar vopnuð lög-
regla eða hermenn — og hinir
erlendu sjómenn fengu hvergi
að víkja út af almannafæri. Stalin
hafði þá rikt í rúman áratug.
Arngrímur og skólamálin.
Arásir Amgríms vesturlandsrit-
stjóra á skólana hér í bæ munu
verða teknar til athugunar ekki
aðeins hór í blaðinu, heldur einn-
ig á öðrum vettvangi. En ekki
mun nú Arngrími lengi hlíft við
því hóðan af, að taka til athug-
unar afrek hans og aðstöðu um
uppeldi og fræðslu barna. Hann
hittir þá engan fyrir nema sjálfan
sig, ef hann upp hefur Ramakvein,
eins og hans er vandi, þá er hann
heflr fengið hýðingu.
Hjónaband, Gefln voru saman
í hjónaband á laugardaginn var
ungfrú Þórunn Björnsdóttir og
séra Marinó Kristinsson.
Bió Alþýðuhússins
sýnir:
laugardag og sunnudag kl. 9
Síðasta aðvörun
Mr. Moto.
Mjög spennandi leynilög-
reglumynd.
Aðalhlutverkið: Mr. Moto,
leikur Peter Lorre.
Sunnudag kl. 5
Drottnarar hafsins.
Siðasta sinn. Lækkað verð.
Ath, Reykingar eru strang-
lega bannaðar, meðan
á sýningu stendur.
Jarðarför konunnar minnar,
Sigrfðar Borgarsdóttur, fer fram
þriðjudaginn 26. þ. m. og hefst
með bæn að heimili sonar mins
Fjarðarstræti 21, kl. 1 e. h.
Fyrir mina hönd, barna minna
og barnabarna,
Jóhann Jóhannsson
ísafirði.