Skutull - 05.06.1943, Síða 4
70
SKUTULL
HVERGI
er betra að verzla en í
KAUPFÉLAGINU.
Tilkynning
frá ríkisstjórninni.
Brezka flotastjórnin hefir tilkynnt íslenzku ríkis-
stjórninni að nauðynlegt sé að öll íslenzk skip, 10 til 750
smál. að stærð fái endurnýjuð eins fljótt og hægt er
eftir 1. júní 1943, ferðaskírteini þau, sem um ræðir í til-
kynningu ríkisstjórnarinnar, dags. 7. marz 1941.
Skírteini þessi verða afgreidd sem hér segir:
I Reykjavík hjá brezka aðalkonsúlnum, á Akur-
eyri hjá brezka vice-konsúlnum, á Seyðisfirði hjá
brezku flotastjórninni og í Vestmannaeyjum hjá brezka
vice-konsúlnum.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 27. maí 1943.
SKRÁR
um tekju- og eignarskatt, stríðsgróðaskatt og verð-
lækkunarskatt íyrir árið 1943, liggja frammi á bæjar-
skrifstofunni dagana 5. til 12. júní, að báðum dög-
um meðtöldum.
Kærur útaf álagningu skattanna séu komnar til
bæjarstjóra eigi síðar en 12. júní að kvöldi.
ísafirði, 4. júní 1943.
Skattanefnd Isafjarðar.
Nýr kaþólskur biskup
yfir Islandi.
Séi’a Jóhannes Gunnarsson
Einarssonar Ásmundssonar al-
þingismanns i Nesi hefir verið
kjörinn hólabiskup í stað
Marteins Meulenbergs biskups.
Tekur Jóhannes Inskupsvígslu
i Ameriku innan skamms.
Séra Jóhannes er fyrsti ls-
lendingurinn, sem verður
kaþólskur biskup á Islandi,
siðan Jón Arason var ráðin ai
dögum þann 7. nóvember 1550.
Stærsta alíslenzka skipið.
Nýlega var stærsta skipi,
sem smiðað hefir verið hér á
landi, hleypt af stokkunum á
skipasmíðastöð Kaupfélags Ey-
firðinga á Akureyri. Skip þetta
er 160- smálestir að stærð og
lieitir Snæfell.
Far g j aldahækkun.
Viðskiptaráð hefir samþyklct
27% hækkun fargjalda með
bifréiðum á öllum sérleyfis-
leiðum. — Áður hafa fargjöld-
in á sérleyl'isleiðunum hækkað
um 106% miðað við verðið
1938. Þó að almenningi þyki
þetta e. t. v. mikil hækkun, þá
mun þó sérleyfishöfunum sízt
af henni veita vegna mikillar
verðhækkunar á vinnulaun-
um, bifreiðum og öllu, sem til
reksturs þeirra útheimtist.
Rafveitur fyrir allt Island
er rit, sem þú ættir að kaupa.
Verður selt næstu daga.
TILKYNNING.
Háls-, nef- og augnalækn-
ir væntanlegur með Brúar-
foss.
Héraðslæknir.
Prentstofan Isrun.
Tilkynning
Viðskiptaráðið hefur ákveðið eftirfarandi hámarks-
verð á smjörlíki, og gildir það frá og með þriðjudegin-
um 1. júní:
I heildsölu......kr. 4.20 pr. kg.
í smásölu ....... kr. 4.92 pr. kg.
Reykjavík, 29. maí 1943.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
TILKYNNING.
Viðskiptaráðið hefir ákveðið að frá og með 1. júní
n. k. megi ekki selja alsólningu á karlmannaskóm við
hærra verði en kr. 21.00. Aðrar skóviðgerðir skulu
verðlagðar í samræmi við það. Þar sem verð hefir ver-
ið lægra, er bannað að hækka það nema með leyfi Við-
skiptaráðsins.
Reykjavík, 29. maí 1943.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
TILKYNNING.
Viðskiptaráðið hefur lækkað hámarksverð á föstu
fæði og einstökum máltíðum, og er það nú sem hér
segir:
1. Fullt fæði karla.kr, 305.00 á mán.
Fullt fæði kvenna.— 285.00 - —
2. Einstakar máltíðir:
Kjötréttur ...... kr. 3.60
Kjötmáltíð (tvíréttuð) — 4.60
Að öðru leyti er auglýsing Viðskiptaráðsins dagsett
2. apríl s.l. í fullu gildi. Sérstök athygli skal vakin á því,
að í téðri auglýsingu var bannað að rýra magn eða gæði
þess, sem framreitt er, frá því, sem verið hafði.
Ákvæði tilkynningar þessarar ganga í gildi frá og
með þriðjudeginum 1. júní.
Reykjavík, 29. maí 1943.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
TILKYNNING.
Viðskiptaráðið hefir ákveðið, með tilliti til lækk-
aðrar vísitölu, að frá og með 1. júní n. k. megi sauma-
laun ekki vera hærri en hér segir:
1. Klæðskeraverkstæði:
Á klæðskerasaumuðum karlmannafötum mega
saumalaun eigi vera hærri en kr. 317.00 fyrir tví-
hneppt föt, en kr. 307.00 fyrir einhneppt. Fyrir
klæðskerasaumaðar kvenkápur mega saumalaunin
vera hæst kr. 176.00, en fyrir dragtir kr. 194.00. Fyr-
ir algenga skinnavinnu á kvenkápum má reikna
hæst kr. 19.00, auk hinna ákveðnu saumalauna.
2. Hraðsaumastofur:
Fyrir hraðsaumuð karlmannaföt mega saumalaun
vera hæst kr. 256.00. — Hjá klæðskeraverkstæðum
og hraðsaumastofum skulu saumalaun á öðrum teg-
undum fatnaðar en að ofan greinir lækka til sam-
ræmis.
3. Kjólasaumastofur:
Saumalaun á kápum mega hæst vera kr. 145.00,
nema ef um algenga skinnavinnu er að ræða, þá
hæst kr. 164.00. Fyrir saum á drögtum má hæst
taka kr. 158.00.
Reykjavík, 29. maí 1943.
VERÐLAGSSTJÓRINN.