Skutull - 28.01.1949, Blaðsíða 3
S K U T U L L
3
Fjarðarstræti sbyggi ngarnar.
Byggingar bœjarins við Fjarðarstrœli eru nú koinnar allvel áleiðis.
lbúðir þessar eru byggðar skv. löguin uin opinbera aðstoð við byggingar
íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum, 3. kafla.
Með því að ekki mun öllum fullkunn þessi merka löggjöf, birtir Skutull
hér orðréttan 3. kafia laganna, er fjallar um útrýmingu heilsuspillandi
íbúða. (Leturbreytingar Skutuls).
III. KAFLI
Um íbúðarbyggingar sveitarfélaga.
27. grein.
1 kaupstöðum og kauptúnum, þar sem fólk býr í lieilsuspillandi íbúð-
um (bröggum, útihúsum, háaloftum, kjöllurum o.s.frv.) og ekki verður
úr bœtt á nægilega skömmum tíina að dómi sveitarstjórnar með þeirri
aðstoð ríkisins og sveitarfélaganna, sem um getur í I. og II. kafla þess-
arra laga, ber sveitastjórn kaupstaðarins eða kauptúnsins að ráða bót
á húsnæðisvandræðum og nýtur hún til þess þeirrar aðstoðar rikisins,
sem í þessum kafla segir.
28. grein.
Sveitarstjórn lætur safna skýrslum um fjölskyldur þær í kaupstaðnuin
eða kauptúninu, sem búa í heilsuspillandi íbúðum, og kynnir sér efna-
hag þeirra og atvinnu svo og fyrirætlanir þeirra um útvegun húsnæðis.
29. grein.
Að skýrslugerð þessari lokinni skal sv'eilarstjórn semja áætlun um,
hversu margar íbúðir þurfi að gera lil þess að bæta úr þörfum þeirra,
sein liúa í lieilsuspillandi íbúðum og ekki fá á annan veg tryggt sér við-
unandi liúsnæði, svo og kostnaðaráætlun og áætlun um hversu langan
tíma sú framkvæmd muni taka, og skal stefnt að því, að henni verði
lokið á fjórum árum.
30. grein.
Skýrslur þær og áætlanir, sem um getur í 29. gr., skal senda ríkis-
stjórninni ásamt rökstuðningi sveitarstjórnar fyrir því, að ekki verði
bætt úr húsnæðisþörfinni á nægilega skömmum tíma með þeim aðgerð-
um, sem í I. og II. kafla þessarra laga segir.
31. grein.
Nú fær sveitarstjórn félagsmálaráðuneytinu sönnur á, sbr. 29 gr., að
nauðsyn sé slíkra íbúðabygginga, sein hér um ræðir, og skal þá
ríkissjóður lána þeim sueitarfélögum, sem reisa slíkar íbúðir,
75% af byggingarkostnaði huerrar íbúðar, en þar skal ekki lóð
meðtalin. Lán þessi skulu uera til 50 ára með 3% ársuöxtum,
og greiðast uextir og afborganir með jöfnu árlegu gjaldi. llíkis-
sjóður leggur enn fremur fram 10% af byggingarkostnaðinum
sem uaxtalaust lán til 50 ára. Lán þessi eru afborgunarlaus
fyrstu 15 áirin, en greiðist síðan með jöfnu árlegum greiðslum á
35 árum. Ef sueitastjórn ákueður að afskrifa þau 15%, sem
sueitarsjóður leggur fram án atbeina ríkissjóðs, er ríkisstjórn-
inni heimilt að gefa eftir uaxtalausa lánið.
32. grein.
Til tryggingar 75% láni ríkissjóðs skal vera 1. veðréttur í húseignum
þeim, sem reistar eru, þar til lánin eru að fullu greidd.
34. grein.
Sveitarstjórn byggir íbúðir þessar og ræður gerð þeirra og stærð, allt
í samræmi við ákvæði byggingarsamþykktar staðarins og skipulagsupp-
dráttar, ef til er.
Ibúðir þær, sein byggðar eru samkvæmt III. kafla þessara laga,
skulu leigðar þeim, er í heilsuspillandi íbúðum búa, og
skulu þeir ganga fyrir, sem búa við lakast húsnæði og
erfiðastar heimilisástæður.
Slcal leitað álits heilbrigðisnefndar, ef til er, ella héraðslæknis, um
það i hverri röð menn fái íbúðirnar.
35. grein.
Ibúðir þær, sem reistar eru samkvæmt ákvæðum þessa kafla, eru
eign sveitarfélagsins og lcigjast þeim, sem þær eru byggðar fyrir,
Sjötugsafmæli.
Iíristín Guðmundsdóttir, kona
Ólafs Ólafssonar, skólastjóra á Þing
eyri, varð 70 ára 19. þ.m.
Fimmtugsafmæli.
Steinn Leós, skrifstofustjóri á
Bæjarskrifstofunum varð fimmtug-
ur 21. þ.m. Undanfarin ár hefur
Steinn starfað á Bæjarskrifstofun-
um og hefur hann þráfaldlega
gegnt þar störfum bæjarstjóra.
Steinn hefur mikið starfað að leik-
starfsemi og er hann einn af beztu
leikurum í bænum. Steinn er góður
starfsmaður og hjálpsamur og hefir
áunnið sér traust þeirra mörgu er
við hann skipta og með honum
starfað.
Skotmót í Hróaldskeldu.
Borist hefur bréf til bæjarstjóra
þar sem átta Isfirðingum er boðið
til þátttöku í skotmóti í Hróalds-
keldu á Sjálandi í Danmörku. Skot-
ið skal þar í mark með skamm-
byssu (Grovpistol) og sænskum
handbyssum. Ekki er enn vitað hve
margir verða til að taka þessu
fyrsta vinaboði til Hróaldskeldu.
Skíöamót íslands.
Tilkynnt hefur verið að Skíða-
mót Islands 1949 fari fram hér á
Isafirði um páskana, eða da^ana
14.—18. apríl n.k. Skíðaráði Isa-
fjarðar hefur verið falið að standa
fyrir mótinu, en formaður þess er
Guttormur Sigurbjörnsson, forstöðu
maður Sundhallarinnar. Samtímis
verður ársþing Skíðasambands Is-
lands, Skíðaþingið, haldið á Isa-
firði.
Síðast var landsmót skíðamanna
haldið hér á Isafirði 1945.
Keyptu flakiö af Júni.
Botnvörpungurinn Júní frá Hafn-
arfirði, sem strandaði við Sauðanes
er nú farinn að liðast nokkuð sund-
ur, og hefur brimið kastað honum
nokkuð hærra í fjöruna en hann
var fyrstu dagana. Nokkrir menn
á Flateyri hafa nú keypt flakið og
munu þeir ætla að bjarga því sem
til næst úr því, í vor og sumar.
Hjónaefni.
Kunngjört hafa trúlofun sína ung-
frú Guðrún Magnúsdóttir, Fálka
götu 14, Reykjavík og Ásgeir Ás-
geirsson (Torfassonar) stud.
pharm. frá Sólbakka við önundar-
fjörð.
--------O-------
Ivaupgj aldsamningar í
Bolungarvík.
Verkalýðsfélagið í Bolungarvík
hefur sagt upp samningum sínum
við atvinnurekendur.
Fer verkalýðsfélagið fram á að
gerðir verði samningar um kaup og
kjör samliljóða þeim er gilda á Isa-
firði. Samningaumleitanir hafa
dregist á langinn og var í fyrra-
kvöld samþykkt, með alsherjar-
atkvæðagreiðslu að veita samninga-
nefnd félagsins heimild til vinnu-
stöðvunar. Vonandi þurfa verka-
menn og sjómenn i Bolungarvík
ekki lengi enn að standa'í þjarki
við atvinnurekendur um jafn sjálf-
sagt atriði, að þar gildi sama kaup
og hliðstæð kjör og á öðrum stöð-
um hér við Djúp.
Eyjólfur Jónsson,
Mánagötu 2, sá um útgáfu þessa
tölublaðs.
uið leigu, sem eigi má hærri uera en sambærileg leiga í leigu-
húsum af sambærilegri gerð, sem einstaklingar eiga. Heimilt er
þó sueitarstjórn að selja íbúðirnar þeim, sem þær hafa fengið
til íbúðar, á kostnaðarverði og með hagkvæmum greiðsluskil-
málum.
36. grein.
Sveitarfélög sera íbúðir reisir með þeirri rikisaðstoð, sem í þessum
kafla segir, skulu hafa sérstakt reiknishald fyrir húsbyggingar þessar og
starfrækslu þeirra. Skal leggja mánaðarlega leigu og afborganir, ef íbúð-
irnar eru seldar, í sérstakan reikning, og geymist fé þetta þar, unz að
gjalddögum kemur á lánum ríkissjóðs, en þá skal því varið til afborgana
og vaxtagreiðslna af þeim. Nú hrökkva tekjur af húseignum ekki
eitthuert ár til fullrar greiðslu, og skal þá greiða það sem til
vantar úr sveitarsjóði.
37. grein.
Með reglugerð, sem félagsmálaráðherra staðfestir, skal sveilarstjórn
kveða nánar á um einstök atriði varðandi framkvæmd á byggingum
ibúðarhúsa sveitarfélaganna svo og leigukjör, söluskilmála, viðhald og
hvað eina, sem nauðsynlegt verður talið að ákveða þar sérstaklega,
þ.á.m. hvernig fara skal að um sölu slíkra íbúða, ef eigendaskipti verða
eða eigandi vill losna við íbúð sina. Skal reynt að haga svo til, að
greiðslur einstaklinga fyrir hásnæði sueitarfélaganna verði í
sem mestu samræmi við greiðslur þeirra, sem hjá byggingar-
félögunum fá íbúðir. I reglugerð skal og ákveða þau viðurlög, sem
ástæða þykir að setja.