Skutull - 10.05.1952, Page 7
S K U T U L L
7
Ávarp til Isfiiðinga.
Framhald af 1. síðu.
— Slík úrslit sýna þroskaða kjós-
endur, enda er lýðræðisþroskinn
að vonum hvergi lengra á veg
kominn í heiminum, en einmitt í
Bretlandi, móðurlandi lýðræðisins.
„Þá var mörgu logið“, sagði
Gröndal forðum. í þessum kosn-
ingabardaga verður sjálfsagt
mörgu og miklu á mig logið bæði
af óverðskulduðu lofi og lasti. Það
skiptir raunar ekki svo miklu
máli. Hitt er aðalatriðið, að allt
það moldviðri verði bara ekki til
að fela hugsjónir jafnaðarstefn-
unnar fyrir augum ykkar, en
hennar fulltrúi er ég og vil ég
verða, eins og veikir kraftar leyfa.
Ég sé að aðalkeppinautur minn
lætur hefja kosningabaráttu sína
undir stríðsmerki Matthíasar
Bjarnasonar. Það gleður mig, en
ekki þykir mér ólíklegt að ein-
mitt það verði ýmsum velunnurum
Kjartans læknis fremur til ömun-
ar og hryggðar. Slíkt ávarp með
brigzlum um angurgapahátt og
glæframennsku andstæðingsins og
þar fram eftir götunum, mun
sennilega aldrei hafa verið borið á
borð fyrir nokkra kjósendur
nokkursstaðar á landinu, nema
hér í þetta sinn. Einsdæmin eru
verst. En ef til vill láta kjósendur
Sjálfstæðisflokksins ekki bjóða
sér allt.
Þó versnar enn orðbragðið, þeg-
ar lengra er haldið lestri blaðsins
og sóðalegast er það orðið á öft-
ustu síðu. Þar er ég orðinn ,,hund-
elt ólánsgrey“ og nafn mitt aldrei
nefnt svo að ekki sé um það flétt-
að fúkyrðum og smánaryrðum.
(En hverjir skyldu þeir þá vera,
hundarnir, sem elta mig?).
Þetta er nú bara forsöngurinn.
Þetta er fyrsta kosningablaðið.
Hvermg skyldi orðbragðið vera
orðið daginn fyrir kjördag. — Það
verður fróðlegt að vita.
Ég get fyrir mitt leyti verið á-
nægður með svona blaðamennsku
aðalandstæðingsins. Ég er viss um
að hún verður ekki Kjartani J. Jó-
hannssyni til framdráttar eða mér
til hnekkis. — Þvert á móti. Hún
mun verða mér til fylgisauka og
honum til fylgistaps. — En það er
auðvitað einkamál Kjartans J. Jó-
hannssonar, ef hann hefur ásett
sér að vinna þessa kosningu á
háttprýði og manngöfgi Matthías-
ar Bjarnasonar. — Hann um það.
Komi það fyrir, sem ég gæti
næstum trúað, að fé verði borið á
menn í þessum kosningum til að
falast eftir sannfæringu þeirra, þá
sé ég ekkert á móti því að það sé
þegið. Slíkt fé má sannarlega
verða áhættufé þeirra, sem bjóða.
En þá fyrst er um alvarlega glæp-
samlegt athæfi að ræða, ef menn
leggjast svo lágt að láta sannfær-
ingu sína fyrir mútur. Það má
engan Isfirðing henda. Það ríður
á að þeir, sem mútur bjóða, hvort
sem er í áheitaformi eða einhverri
annari mynd, séu vandir af slikri
lítilsvirðandi ósvífni í garð heiðar-
legra kjósenda.
Við alþýðuflokksmenn höfum
ekki fé til að hafa marga launaða
menn í þjónustu okkar til að vinna
að kosningunni. Við eigum nálega
allt undir því, að þið kjósendur
Alþýðuflokksins og velunnarar
mínir vinnið upp frá þessum degi
að kosningu minni hver í sínu um>
hverfi og meðal kunningja, skyld-
menna og vina. Nú þegar þarf að
hafa samband við fjarstadda kjós-
endur og gera þeim aðvart um að
kjósa nógu tímanlega, svo að at-
kvæði þeirra geti verið komin
hingað fyrir kjördag.
Á Alþingi mun ég líta á mig
sem fulltrúa verkalýðssamtakanna
jafnt sem Alþýðuflokksins. Og af
málefnum bæjarins mun ég leggja
höfuðkapp á að helga atvinnumál-
unum mína beztu krafta.
Með baráttukveðju.
Hannibal Valdimarsson.
--------0--------
ðalfundur V.l.f. Baldurs
var haldinn 7 .apríl s.l. Skuld-
laus eign félagsins er 112.908,27
kr. Eignaaukning s.l. ár var kr.
4.350,37.
Eignir hinna einstöku sjóða fé-
lagsins er þessi:
Sjúkrasjóður kr. 104.736.58
Verkfallssjóður — 7.983,73
Orlofssjóður — 505,15
Félagssjóður, skuld — 317,19
Við kosningu stjómar og ann-
ar trúnaðarmanna kom aðeins
fram einn listi og var hann því
sjálfkjörinn.
Stjóm félagsins skipa:
Guðmundur G. Kristjánsson, for-
maður, varaformaður Guðmundur
B. Albertsson, gjaldkeri Sverrir
Guðmundsson, fjármálaritari Hall-
dór M. ólafsson, ritari Björgvin
Sighvatsson.
Samninganefnd Baldurs skipa:
Kristján Bjarnason, Tangagötu
19, Helgi Finnbogason, Jón Jóns-
son frá Þingeyri, Guðmundur Eð-
varðsson og Jóhannes Guömunds-
son.
Sökum stórkostlegrar dýrtíðar-
aukningar, sem kemur hart niður
á fjárhag verkalýðsfélaganna ekki
síður en einstaklinganna sá félag-
ið sér ekki annað fært en að hækka
árgjöldin enda er V.lf. Baldur í
nokkur ár búinn að hafa lægri árs-
tillög^en önnur hliðstæð félög, og
hefir dregið það of lengi að hækka
árgjöldin til samræmis við önnur
félög og vaxandi dýrtíð.
Árgjöldin eru nú kr. 100,00 fyr-
ir karla, kr. 60,00 fyrir konur og
unglinga og kr. 140,00 fyrir bíl-
stjóra. Árgjöld meðlima í Dyngju
og Sjöfn kr. 65,00 og árgjöld í
Dröfn kr. 110,00.
Eftir að aðalfundarstörfum var
lokið var rætt um atvinnumál og
tóku margir til máls.
Tilkynning.
Nr. 8/1952.
Fjárhagsráð hefur ágveðið eftirfarandi hámarksverð á brauðum
smásölu: Án söluskatts: Með söluskatti
Franskbrauð, 500 gr kr. 2.62 kr. 2,70
Heilhveitibrauð, 500 gr — 2,62 — 2,70
Vínarbrauð, pr. stk — 0,68 — 0,70
Kringlur, pr. kg — 7,67 — 7,90
Tvíbökur, pr. kg — 11,65 — 12,00
Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr. — 4,36 — 4,70
Normalbrauð 1250 gr. ... — 4,56 — 4,70
Séu nefnd brauð bökuð með annarri þyngd en að ofan greinir, skulu
þau verðlögð í hlutfalli við ofangreint verð.
Á þeim stöðum, sem brauðgerðir em ekki starfandi, má bæta sannan-
legum flutningskostnaði við hámarksverðið.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið á rúgbrauðum og
normalbrauðum vera kr. 0,20 hærra en að framan greinir.
Reykjavík, 5. maí 1952,
VERÐLAGSSKRIFSTOFAN.
Nr. 6/1952.
Tilkynning
Fjárhagsráð hefur ákveðið nýtt hámarksverð á smjörlíki sem hér
segir:
Niðurgreitt
Heildsöluverð án söluskatts...... kr. 4,01
Heildsöluverð með söluskatti ...... — 4,31
Smásöluverð án söluskatts ......... — 5,00
Smásöluverð með söluskatti......... — 5,10
Reykjavík, 29. apríl 1952,
VERÐLAGSSIÍRIFSTOFAN
Óniðurgreitt
kr. 9,83 pr. kg.
— 10,13--------
— 10,88--------
— 11,10---------
AÐALFUNDUR.
Aðalfundur Vélbátaábyrgðarfélags ísfirðinga verður haldinn á skrif-
stofu félagsins sunnudaginn 25. maí n.k. kl. 2 e.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Isafirði, 5. mai 1952.
STJÓRNIN.
Aðalfundur.
Aðalfundur Ishúsfclags Isfirðinga h.f. verður haldinn laugardaginn
21. júní n.k. í skrifstofu bæjarstjórans á Isafirði.
DAGSKRA:
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Atvinnuleysiskráning
Samkvæmt lögum fer fram atvinnuleysisskráning á Isafirði dagana
12.—15. maí n.k. Skráningin fer fram á bæjarskrifstofunni kl. 10—12
f.h. og 13—15 daglega.
ísafirði, 9. maí 1952.
BÆJARSTJÓRI.