Skutull

Árgangur

Skutull - 24.12.1961, Blaðsíða 6

Skutull - 24.12.1961, Blaðsíða 6
6 SKUTULL Veslri FIMMTUDAGINN þann 5. ágúst 1926 var haldinn fundur í Barna- skólanum til stofnunar knatt- spyrnufélags. Einar Oddur Kristjánsson stjórnaði fundinum. Þetta var gjört: 1. Samþykkt að stofna knatt- spyrnufélag og lagður fram listi sá, sem legið hafði frammi til undirskrifar, og voru stofn- endur þessir: Einar O. Kristjánsson Karl Bjömsson Bjarni Sigurðsson Finnur Daníelsson Jóhann Jóhannsson Guðjón Guðjónsson Samúel Jónsson Magnús B. Magnússon Skarphéðinn Jósepsson Þorsteinn Jóhannsson Kjartan Ólafsson Viggó Loftsson Haukur Helgason Jón Hjörtur Finnbjarnarson Finnur Magnússon Jón Rósmundsson Magnús Hólmbergsson. 2. Uppkast að lögum fyrir félagið lesið upp og samþykkt með nokkrum breytingum. 3. Stjórnarkosning. Þessir voru kosnir í stjórn: Kjartan Ólafsson formaður Karl Björnsson gjaldkeri Finnur Magnússon ritari. 4. Einar Oddur talaði nokkur orð til hinnar nýkjörnu stjórnar. Fundi slitið. F. Magnússon (ritari). Þannig hljóðar fyrsta fundar- gerð Knattspyrnufélagsins Vestra. Sextán drengir á aldrinum 16—18 ára komu þarna saman og stofn- uðu með sér félag, undir forustu þekkts íþróttafrömuðar, Einars Odds. Fyrsta félag, sem stofnað var hér í bæ og hefur iðkun knatt- spyrnu á stefnuskr sinni, var Fót- boltafélag ísafjarðar, stofnað 1914 og starfaði eitt að knattspyrnu- málum fram yfir 1920, að nokkrir meðlimir þess sáu, að ætti íþróttin að ná þeim þroska, sem æskilegt væri, þá yrðu félögin að vera minnst tvö til að fá eðlilega keppni. Þeir kljúfa því út úr Fót- boltafélagi Ísafjarðar og stofna Ksf. Hörð. Þessi tvö félög starfa svo í nokkur ár og leika nokkra kappleiki hvort gegn öðru og nokkra sameiginlega gegn skips- höfnum af dönskum herskipum og varðskipum, sem hér voru við land á þeim árum. 35 ára Vestfjarðameistarar í III. flokki 1932. Aftasta röð, frá vinstri: Ingólfur Geirdal, Gunnlaugur Pálsson, Magnús Jóhannsson, Guðni Ingibjartsson, Leifur Lárusson. Miðröð: Högni Jóns- son, Högni Helgason, Friðrik Vilhjálmsson. Fremsta röð: Pétur Geirdal, Hörður ólafsson, Guðmimdur M. Jónsson. Þó fer svo ,að lokum, að yngra félagið gengur af hinu dauðu, og málin standa þá eins árið 1926, og dauft yfir knattspyrnuiðkunum. Einar Oddur sá, að við svo búið mætti ekki standa og auglýsti því stofnun félags og lét lista liggja frammi til undirskriftar. Árangur- inn varð sá, að 16 drengir skrifa nöfn sín á hann, og með þessum drengjum stofnar svo Einar knattspyrnufélag, sem eftir nokkr- ar vangaveltur var vatni ausið og nefnt Knattspyrnufélagið Vestri. Einar er svo aðaldriffjöðrin fyrstu árin, því að allt voru stofnendum- ir ungir menn og óreyndir í félags- málum. Á þessum áram var knattspyrn- an hér á algjöra frumstigi, eng- inn hér, sem neitt kunni fyrir sér til að miðla nýliðunum, enginn völlur, sem nothæfur gæti talizt, og samgöngur til þeirra staða, sem íþrótt þessi var lengra á veg komin, voru litlar sem engar. Gæfa Vestrapiltanna var sú, að strax á öðru ári félagsins fá þeir tilsögn hjá Gunnar Axelson íþróttakennara, sem dvaldi hér í nokkur ár. Hann hafði kynnzt þessari íþrótt erlendis og var því skrefi á undan mönnum hér. Nokkrar umræður urðu meðal fé- lagsmanna um það, hvort leita ætti eftir aðstoð hans og þá aðal- lega haft í huga, að slíkur kunn- áttumaður hlyti að taka hátt kaup fyrir vinnu sína. Var svo ákveðið að reyna að fá hann sem þjálfara félagsins, en þá að því tiiskyldu, að greiðsla til hans yrði ekki meiri en 16 krónur á mánuði. Gunnar bauðst strax til að segja þeim til og það íyrir ekki nokkurn eyri. Þessum kostakjörum var auðvitað tekið með miklum fögn- uði og æft var af kappi næstu árin undir htms leiðsögn. Ekki fjölgaði mikið í félaginu fyrstu árin, en þessi fámenni hóp- ur var samheldinn og starfaði að uppbyggingu félagsins. Sú bygging er sannarlega ekki reist á sandi, því að nú eftir 35 ár er félagið orðið stærsta íþróttafélagið á Vestfjörðum og á góðum íþrótta- mönnum á að skipa í öllum íþrótta- greinum. Árið 1930 virðist félagið búið að harzla sér völl og skipa sér þann sess í hugum bæjarbúa, að þarna sé ekki á ferðinni nein dæg- urfluga, heldur félag, sem um ó- komin ár eigi eftir að láta að sér kveða í hinu alltof tilbreytingar- snauða íþrótta- og félagslífi bæjar- ins. Á aðalfundi þessa árs liggur fyrir inntökubeiðni frá 18 drengj- um á aldrinum 14—16 ára. Þeim var tekið fegins hendi og stofnuð fyrir þá yngri deild félagsins. Fyrstu árin var félagið ekki þungur ljár í þúfu fyrir stóra bróður, Hörð, og kom þar aðallega til æska félagsmanna, en upp úr 1930 fara þeir að eflast og fyrir- staðan að verða meiri, og fyrsti sigurinn kemur 1931. Þá sigrar Vestri í fyrsta sinn knattspyrnu- mót Vestfjarða I. fi. Vinna þeir Hörð þá með þrem mörkum gegn engu. Árið eftir er þessum sigri fylgt eftir, því að það ár vinnur íélagið Vestfjarðamótin i öllum flokkum, I. fl. með sex mörkum gegn einu, II. og III. fl. með þrem mörkum gegn engu. Þetta ár verður alltaf minnis- stætt í sögu félagsins, þvi að þarna næst í fyrsta skipti hinn til- ætlaði árangur margra ára þjálf- unar og félagsstarfs og sýnir svo ekki verður um villzt, hvað hægt er að ná með sterkum vilja og samheldni, enda segir blaðið Skutull 2. sept. það ár: „Snemma í ágúst fóru fram knattspyrnukappleikir milli Harð- ar og Vestra í I., II. og III flokki. Sigraði Vestri í þeim öllum. Síð- astliðinn sunnudag var svo sund- mót hér í bænum. 1 yngri flokki var keppt í hraðsundi og hlaut Jónas Magnússon fyrstu verðlaun. 1 eldri flokki var keppt í fegurð- arsundi og hlaut Haukur Helgason fyrstu verðlaun þar. Jónas og Haukur eru báðir í Ksf Vestra. Bæjarbúar sýndu íþróttum þess- um hinn mesta áhuga, enda getur varla betri skemmtun en horfa á knattspyrnu og sund í góðu veðri. Knattspyrnufélagið Vestri hefur náð glæsilegum árangri í öllum aldursflokkum að þessu sinni bæði í sundi og knattspyrnu og reynir nú á þann vandann hjá félaginu að gæta fengins fjár og heiðurs, en um það er engu minna vert en en öflunina. Árið eftir sigrar Vestri í I. og II. flokki en tapar í III. fl. Um II. fl. leikinn segir svo í annálum félagsins, en þeir eru skrifaðir á þessum árum af Finni Magnús- syni: „10. sept. kl. 5 e.h. hófst n. fl. mótið. Úrslit urðu þau, að Vestri sigraði með þrem mörkum gegn engu. Þama höfum við I Vestra góðu liði á að skipa, enda unnum við þennan leik. Harðverjar áttu markaval og kusu að leika undan sól, svo að Vestrangar höfðu sól- ina í augun og var það auðvitað miklu erfiðara. Högni byrjaði sem miðframherji (annars skiptust þeir Ingi Geirdal á um það leika það og miðverja). Lék hann knett- inum með hægri og vissri press- ingu til Jónasar v.innframherja, og áður en varði voru þeir komnir hindranarlítið upp undir markteig, en Harðverjar vissu við hverja var að etja, það vora eins og saman- tekin ráð þeirra. Þegar þeir sáu með hvaða hraða og öryggi þetta gerðist, hlupu þeir allir 11 að tölu í vörn, og þar voru þeir allan leik- inn. Þegar 5—10 mínútur voru liðnar af leiknum meiddist Guðni „ytriving“, hann tognaði á fæti, en Óskar kom inn í hans stað. Þrátt fyrir stöðuga sókn kom mark ekki fyrr en ca 10 mín. voru eftir af fyrri hálfleik, þegar Jónasi tókst að leika á fjóra Harðverja og skjóta, og 'knötturinn lá í net- inu. Maddi Guðmunds sýndi sér- staklega skarpa sókn. Var hann svo snarpur og öruggur að aðdáun sætti. Skaut hann oft, en aðstaðan til að skora var oftast slæm, því að 11 manna veggur stóð í mark- inu. Knötturinn kom varla yfir á vallarhelming Vestra, en ef svo var, þá kom hann strax til baka. Um það önnuðust þeir Gunnar Ólafsson og Pétur Geirdal, bak- verðir. Snemma í seinni hálfleik leikur Högni knettinum rólega til Inga,

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.