Skutull

Volume

Skutull - 24.12.1961, Page 9

Skutull - 24.12.1961, Page 9
SKUTULL 9 „Háift rúgbrauð og dálítiU íeaarmou". 16. desember 1903: Þann dag fór nefndin á heimili tveggja húsmanna, sem sótt höfðu um styrk, og frömdu þar lögboöna aðsjónargjörð. „Hjá N.N., sem er giftur, en hefir enga ómegð, fannst ekkert annað en hálft rúgbrauð og dálítill feitarmoli. Ekkert eldsneyti hvorki kol né olía var þar til og heimilið því bjargarlaust. N.N. hefur auk konu sinnar 3 börn á aldrinum frá 2—6 ára. Þar fannst ekki annað en rúg- brauð, 2 p. grjón og á að giska 2—3 stk. af kolum, einnig dálítið af trosfiski í tunnu“. „Fannst ekkert, hvorki eldiviður né matur“. 20. janúar 1904: Tilefni fundarins var, að nefnd- inni höfðu borzt tvö bréf um beiðni á sveitarstyrk, annað frá N.N. en hitt frá N. N.-dóttur „Með því að hvorugt þessara þurfalinga eiga sveitfesti hér kom nefndinni saman um af fram- kvæma lögskipaða aðsjónargjörð. Fór nefndin á heimili N.N. og fannst ekkert, hvorki eldiviður né matur og alls engar eignir, sem hægt væri að koma í peninga. Heimilisástæður hans eru þannig, að hann býr með stúlku, sem hann hefur átt með eitt barn, sem nú er á öðru ári. Um ástæður N. N.-dóttur er það að segja, að henni hafði nýlega verið gefið eitt rúgbrauð, sem hún átti dálítið eftir af. Annað matar- kyns fannst ekki og ekki heldur neitt það, er hægt væri að verja í peninga henni til styrktar. Kven- maður þessi er einhleyp og á, eftir því sem hún segir, sveit í Súðavíkurhreppi.“ „Eignir: koffort, kistill, rúm og lélegt borð“. 23. febrúar 1904: „Fyrir tekin lánbeiðni frá N.N. að upphæð 50 krónur. Nefndin kom sér saman um, út af lánbeiöni þessari, að fram- kvæma aðsjónargjörð á heimili N. og fór þangað í þeim erindum. Á heimili N. fannst ekkert mat- arkyns sem teljandi er og heldur ekkert eldsneyti. Heimilisástæður N. eru þannig, að kona hans hefur legið rúmföst í 15 vikur og ung börn eiga þau tvö, annað 7 ára (dreng) og stúlku 3 ára. Hann hefir enga vinnukonu og verður því að stunda konuna sjálfur. Eignir eru alls engar nema rúm, koffort, kistill og lélegt borð“. „Þá telur nefndin ofreiknað emn Iíkmann“. 1. nóvember 1904: „Formaður lagði fram bréf og reikninga viðvíkjandi legu og út- fararkostnaði N.N., er andaðist 14. febrúar s.l. á Hofsstöðum í Gufu- dalssveit. Bera reikningar þessir með sér, að kostnaður þessi hefur orðið 107,45 en upp í þann kostnað hafa eftirlátnir munir hinnar látnu verið seldir fyrir 71,98 svo eftir standa 35,47 er sýslumaðurinn óskar að verði greiddar úr bæjar- sjóði, þar sem N. þessi mun hafa verið sveitlæg hér. Samkvæmt undirlagi bæjar- stjórnarinnar hefur fátækranefnd- in rannsakað hvort N. þessi hefir verið sveitlæg hér, og leikur eng- inn vafi á því, að því er nefndin hefur bezt getað komizt eftir. Því næst hefir nefndin rann- sakað hina sendu reikninga og hefir þetta við þá að athuga: 1. Þar sem eignir hinnar látnu ekki hrökkva fyrir útfarar- kostnaði ber presti ekkert af því, sem er á reikningi hans, og fellur því upphæð sú í burtu með ................. Kr. 5,45 2. Þá telur nefndin of- reiknað 1 líkmann .... — 5,00 3. Þá telur nefndin of- reiknað til 4 líkmanna — 4,00 4. Þá telur nefndin of- reiknað mat til líkm. — 5,00 5. Þá telur nefndin of- reiknað hest undir lík- burð ................. — 3,00 6. Þá telur nefndin of- reiknað ferð hreppstj að og frá Stað...........— 3,00 Alls ofreiknað Kr. 25,45 Leggur nefndin til við bæjar- stjórnina, að þessar 25,45 verði dregnar frá upphæðinni 35,47 og ^Gufudalshreppi þannig borgað kr. 10,02. „Mun krefjast að maðurinn með fjölskyldu verði fluttur fátækraflutningi“. 30. september 1912: Þann dag sendir nefndin bæjar- fógetanum á ísafirði eftirfarandi bréf: „Ég leyfi mér að tjá yður, herra bæjarfógeti, að N.N., sem sam- kvæmt æviskýrslu hans mun eiga framfærslusveit í Mýrahreppi, hefur fengið 25 króna styrk úr bæjarsjóði að tilstuðlan fátækra- nefndarinnar. I tilefni af þessu vil ég mælast til að þér við fyrsta þóknanlega hentugleika, fáið sveit- festisviðurkenningu frá fram- færslusveit hans og hlutizt til um, að honum verði ráðstafað, því fá- tækranefndin mun krefjast að maðurinn með fjölskyldu verði fluttur fátækraflutningi svo fljótt sem lög leyfa“. Matvörur frá landsstjórninni. 25. október 1914: „Átti fátækranefndin fund með sér til þess að íhuga hvort panta þurfi matvörur frá landsstjórn- inni. Komst hún að þeirri niðurstöðu, að leggja til við bæjarstjórnina, að hún útvegi þær vörur, sem hér segir: 1. 100 poka af haframjöli. 2. 100 poka af hveiti (20 pk. pils- bury Best, 30 pk. Echo, 30 pk. Straights, 20 pk. Vernal). 3. 3 poka hrísgrjón (lpk. Rangoon 1 Amerísk, 1 Siam). 4. 4 poka af kaffi. Býst nefndin við, að þetta kosti hingað komið hér um bil 4000 kró“ Kornvörur frá stjórnarráðinu. 29. nóvember 1914: „Var fátækranefndarfundur haldinn til þess að ráðstafa korn- vöru þeirri, sem komin er frá stjórnarráðinu og sem samkvæmt framlögðu eftirriti af reikningi frá bæjarfógeta er að upphæð kr. 3,919,85 að viðbættum kostnaði kr. 203,00 eða alls kr. 4,122,85. í þessari upphæð eru vörur til Iðnaðarmannafélagsins og yfir- dómslögmanns G. Hannessonar. Með því að mikið vantaði af því, sem pantað hafði verið, varð það að samkomulagi milli nefndarinnar og stjórnar Iðnaðarmannafélags- ins, að þeir fengju af vörunum fyrir kr. 2,116,58. Þá var einnig afhent til G. Hannessonar, og voru það vörur fyrir kr. 196,55. „Þá var samþykkt að reikna verð á þessum vörum — (þ.e. vör- unum, sem fátækranefndin sá um sölu á) — þannig: Pilsbury Best 18 aura pundið, Echo 17 aura pundið Straights 16 aura pundið, Vernal 14 aura pundið, haframjöl 18 aui’a pundið, hrísgrjón 18 aura pundið, kaffi 83 aura pundið. Samkvæmt heimild frá bæjar- stjórninni réði fátækranefndin Jón gullsmið Eyjólfsson til að afhenda þessar vörur eftir tilvísun fá- tækranefndarinnar og var honum heitið 10% þóknun af innkaups- verði vörunnar og nemur það kr. 172,35, þar í er innifalinn allur kostnaður við vönina frá því hún kom ií höfn hér svo og svarar hann til undirvigtar.“ 2282 brauð. 20. niarz 1917: „Fátækranefndin hafði keypt hveitibirgðir nokkrar af Goðafoss- strandinu, og ráðstafaði hún þeim, með samningi dags 19. marz 1917 þannig, að hún seldi þær Bökimar- félagi Isfirðinga gegn því, að hún fengi 2282 brauð við því verði sem nú er á brauðum, kr. 1,10 hvert, og var fátækrafulltrúa Elíasi Páls- syni falið að útbýta þeim. honum afhent viðskiptabók við Bökunar- félagið, með þeim tilfærðum, sem inni eiga.“ Óskalisti til landsstj órnarinnar. 12. apríl 1917: „Ákveðið að krefjast þess af landsstjórninni, að hún sendi sem allra fyrst: a) 20 tons af sykri, með því að algerlega sé sykurlaust, vertíð að byrja og mjólkurleysi afar- mikið. b) 10 tons af feitmeti af sömu á- stæðum. Þetta er afar áríðandi að fá nú þegar. Auk þess verður mjög bráðlega þurrð á ýmsri matvöru, svo sem: hveiti, rúgmjöli, hafra- mjöli. Þarf að fá minnst 20 tons af hveiti, 40 tons af rúgmjöli og 10 tons af haframjöli.“ Mataiskömmtun og vaxandi dýrtíð. 26. apríl 1917: „Komið hafði til bæjarins með Gullfossi: 17 sk. maísmjöl, 44 sk Vernal, 160 sk. haframjöl, 60 sk. rúgmjöl, 8 sk. kaffi, 47sk strau- sykur, 200 p. 78 kassar (35 kg) sykur, 24 dunkar margarine, 24 föt steinolít. Beðið var með úthlutun á þess- um vörum eftir reglum frá stjórn- arráðinu, sem búist var við að kæmu. En með því að enginn kost- ur er á að draga lengur úthlutun á vörunum hefur verið ákveðið að úthluta þeim þannig. Hver heimilisfaðir fær J/2 kg. af mai-ga- rine fyrir hvem heimilismann, og er ætlast til, að það endist í hálfan mánuð minnst, og 1 kg. af sykri fyrir hvern heimilismann til þriggja vikna. Ákveðið að byrja úthlutun kl. 9—12 á morgun og afhendingu kl. 4—6. Vörurnar verður að hækka um 15—20y2“. „Engar kökur séu bakaðar“. 3. maí 1917: „Ákveðið að taka frá 50 skp. af kolum til væntanlegrar notkun- ar fyrir barnaskólann næsta vetur. Sömuleiðis láta Bökunarfélagið, samkvæt beiðni, fá 16 tons af kol- um og nokkra úrlausn af sykri og margarine, gegn því skilyrði, að engar kökur séu bakaðar og ekki kaffibrauð annað en bollur og tví- bökur. Sveinbirni Halldórssyni var einnig veitt úrlausn af sykri og margarine gegn sömu skilyrðum.“

x

Skutull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.