Skutull

Årgang

Skutull - 10.01.1962, Side 1

Skutull - 10.01.1962, Side 1
BIRGIR FINNSSON: ísland oi uniheiinnrinn Afleiðing erlendra atburða síðastliðið ár er m.a. betri samstaða lslend- inga um aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu. Árið 1961 unnum við stórsigra í landhelgismálinu og liandritamálinu. Einangrun landsins er að fullu rofin, og á hinu nýbyrjaða ári stöndum við frammi fyrir þeim mikla vanda, að taka afstöðu til Efnahagsbandalags Evrópu. Dropi í hafi þjóðanna. Islendingar eru aðeins 170 þús- und, en samt hafa þeir haslað sér völl á alþjóðlegum vettvangi með margháttuðu samstarfi og samskiptum við aðrar þjóðir, margfalt stærri. Smæð okkar sést gleggst, þegar athugað er, t.d., að árleg fjölgun mannkynsins nemur 46—55 milljónum, en íbúatala heimsins 1960 er talin hafa numið 3000 milljónum. Síðastliðin 40 ár er talið að jarðarbúum hafi fjölgað um rúm- lega 1000 njilljónir. Þegar þetta, m.a., er haft í huga, þarf okkur í rauninni ekki að furða á því, þótt ekki fari mik- ið fyrir íslandi, eða málefnum þess í viðskiptum þjóða í milli, en hitt er staðreynd eigi að síður, að aldrei hefur okkur vegnað betur en eftir að við fengum að fullu og öllu stjórn allra málefna landsins inn á við og út á við í eigin hend- ur, og það umboð megum við aldrei fela öðrum. Sjálfstæðið er dýrmætt fjöregg, og ennþá eru margar þjóðir í heiminum, sem hafa aldrei eignazt slíkt fjöregg, eða þá glatað því aftur vegna of- beldisverka annarra þjóða. Sérhver þjóð verður sjáif að berjast fyrir frelsi sínu, en lalþjóðleg samtök geta veitt mikinn styrk í slíkri baráttu, og veitt vernd þeim þjóð- um, sem smæstar eru. Þess vegna erum við íslending- ar, þótt ekki séum við nema agn- arsmár dropi í hafi þjóðanna, virk- ir þátttakendur í alþjóðlegu sam- starfi á fjölda mörgum sviðum: 1 Sameinuðu þjóðunum, í Atlants- hafsbandalaginu, í Evrópuráðinu, í Norðurlandaráðinu o.s.frv., og þess vegna höfum við okkar eigin utanríkisþjónustu. Þessa þátttöku í alþjóðlegu samstarfi þurfum við frekar að auka heldur en minnka, þó af því leiði talsverðan kostnað fyrir hið fámenna þjóðfélag okkar. Með þeirri þátttöku styrkjum við sjálf- stæði landsins og tryggjum öryggi þess, eftir því sem föng eru á. Þetta alþjóðlega samstarf opnar okkur einnig leiðir til marghátt- aðra viðskipta og menningar- tengsla, sem ekki má vanmeta. Öryggi landsins. Meðan svo er ástatt i heiminum, að ekki hefur verið komið á al- þjóðlegu kerfi, sem tryggt geti varanlegan frið, og komið í veg fyrir ofbeldisárásir, hljóta Islend- ingar að skipa sér í sveit með þeim þjóðum, sem vilja varðveita frelsi og lýðræði, og byggja upp samtök sín í vamarskyni, en ekki til þess að hefja árásir á aði'a. Þessa stefnu styður meirihluti þjóðarinnar, en kommúnistar, og nokkrir „nytsamir sakleysingjar“, sem þeir hafa í eftirdragi, berjast gegn henni með litlum árangri. Þótt þjóðin hafi ekki verið ginn- keypt fyrir rússadekri íslenzkra kommúnista til þessa, þá skeði tvennt á árinu 1961, sem varð til þess að opna augu manna enn þá betur en áður fyrir eðli og bar- áttuaðferðum kommúnista: Rúss- ar rufu hið frjálsa samkomulag um bann við tilraunum með kjam- orkusprengjur, og gerðu hverja til- raunina á fætur annarri í and- rúmsloftinu með kjamorku- sprengjur af stærstu gerð, með ó- fyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir líf og heilsu þess fólks, sem verð- ur fyrir geislavirku ryki frá sprengingunum. í annan stað steyptu Rússar dýrlingnum Stalín af stalli, og ljóstuðu því upp, að hann hefði raunar verið argasti óþokki og glæpamaður alla þá ára- tugi, sem hann fór með æðstu völd í Rússlandi, og var dýrkaður með gapandi aðdáun af kommún- istum úti um allan heim, lika hér á landi. Hvað þarf nú meira en þetta tvennt til þess að opna augu manna fyrir því, hverskonar fyrir- brigði kommúnisminn er? Þegar hulu fortíðarinnar er svipt frá, sjást Stalín og böðlar hans myrð- andi félaga sína, í sjúklegri valda- streitu, en í nútíðinni horfum við á Krútschev ógna öllum heiminum með mestu morðtólum, sem upp hafa verið fundin. Það má segja um þá menn, sem ennþá trúa á kommúnismann í ein- lægni, að sjáandi sjá þeir ekki og heyrandi heyra þeir ekki, en mesta ófriðarhættan í heiminum í dag stafar frá útþenslustefnu komm- únista, sem nota það kænskubragð EITT HELZTA VIÐFANGSEFNI kvennasamtakanna í landinu hefur verið barátta fyrir fullkomnu launajafnrétti kvenna og karla, þ.e. að sömu laun séu greidd fyrir sömu vinnu, hvort sem það er karl eða kona, sem verkið leysir af hendi. öflugastan stuðning við þetta réttlætismál kvennanna hafa verkalýðssamtökin sýnt, sem um árabil hafa markvisst stefnt að fyllra launajafnrétti með þeim á- rangri, að bilið milli launa karla og kvenna hefur minnkað ár frá ári. Undir þetta réttlætismál hafa hin pólitísku samtök alþýðustétt- anna, Alþýðuflokkurinn, tekið af festu og drengskap, og leitast við, eins og jafnan, að bera málið fram til sigurs í stamstarfi við aðra aðila, og á þann hátt, að um raunverulegar kjarabætur væri að ræða, en ekki sýndarskrum eitt, Birgir Finnsson til að villa á sér heimildir, að bregða yfir sig hjúpi hlutleysis, og tala fagurlega um „friðsamlega sambúð“ þjóða með ólíka skipu- lagshætti. Meðan ófriðarhættan er eins á- þreifanleg og raun ber vitni, hljót- um við að treysta varnir landsins með nánu samstarfi við vinaþjóðir okkar í Atlantshafsbandalaginu. Fnamhald á 3. síðu. sem strax yrði að engu gert. Á síðasta þingi náði loks fram að ganga, í góðri samvinnu við liinn stjórnarflokkinn, Sjálfstæðis- flokkinn, tillaga, sem fram var borin af nokkrum þingmönnum Al- þýðuflokksins, þess efnis, að launajafnréttið skyldi koma til framkvæmda í áföngum, — þ.e. að konur, sem vinna verkakvenna- störf, iðnaðarstörf eða verzlunar- störf, skuli í sex áföngum á árun- um 1962—1967 ná kaupi karla í þessum greinum athafnalífsins. Fullyrða má, að einmitt þessi lausn var sú viturlegasta, þegar á allt er litið, enda hafa þær þjóðir, sem bezt tryggja farsæld og jafn- rétti þegna sinna, leyst málið á hliðstæðan hátt. Nú skyldu menn ætla, að hinir orðmörgu og baráttuglöðu „vinir“ alþýðunnar, kommúnistarnir, hafi fagnað því, að fyrir lá jákvæð lausn langþráðs baráttumáls al- Lamiaiafiirétti hvciinn oú karla

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.