Skutull - 16.09.1971, Blaðsíða 1
FRAMBOBSLISTI ALBfBLFLOKKSIlS
við bæjarstjórnarkosningarnar á ísafirði 3. október 1971
Á sameiginlegum fundi Alþýðuflokksfélaganna
á ísafirði, sem haldinn var 31. ágúst sl. var
endanlega gengið frá framboði flokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar 3. okt n.k.
Helzta breytingin á listanum frá því í kosn-
ingunum á sl. ári er sú, að Björgvin Sighvatsson
hefur kosið að draga sig í hlé og skipar því
svonefnt heiðurssæti að þessu sinni. Björgvin
hefur verið bæjarfulltrúi síðan 1954. Hann var
í mörg ár varaforseti bæjarstjórnar, en eftir
kosningarnar 1966 var hann kjörinn forseti og
því starfi gegndi hann þar til í byrjun þessa árs.
Hann átti löngum sæti í bæjarráði, auk þess
sem hann starfaði í fræðsluráði og hafnarnefnd \
auk fjölda annarra trúnaðarstarfa, sem honum
voru falin, sem bæjarfulltrúa.
Öll þau fjölþættu störf er Björgvin voru falin
1 þágu bæjarfélagsins leysti hann af hendi af
þeirri samviskusemi og dugnaði, sem honum eru
eiginleg. Við lausn sérhvers máls sátu hagsmunir
bæjarfélagsins ætíð í fyrirrúmi, en hann var
manna gleggstur við að koma auga á aðalatriðin
hverju sinni.
Alþýðuflokkurinn stendur í mikilli þakkarskuld
við Björgvin Sighvatsson fyrir öll hans miklu
og heilladrjúgu störf í þágu ísafjarðarkaupstað-
ar. Er vissulega skarð fyrir skildi, er maður
með jafn mikla þekkingu og reynslu í bæjarmál-
um og Björgvin hverfur úr bæjarstjórninni
Ekki skal fjölyrt um frambjóðendur Alþýðu-
flokksins að þessu sinni. Að megin hluta er list-
inn skipaður sama fólki og í kosnigunum á sl.
ári. Þó eru fimm ný nöfn á listanum. Ber þar
fyrst að nefna Auði H. Hagalín, er skipar þriðja
sætið. Auður hefur ekki átt sæti fyrr á lista hjá
Alþýðuflokknum. Hún hefur starfað mikið að fé-
lagsmálum og þá einkum að málefnum æskufólks
og valist til trúnaðarstarfa þar að lútandi. Skal
á engan hátt leynt, að við bindum miklar vonir
við störf Auðar í þágu bæjarfélagsins, en hvar
vetna hefur hún getið sér góðan orðstí. Skal á
það bent, að miðað við seinustu kosningaúrslit
Framihald á 2. síðu
Sigurður Johannsson
Petur Sigurðsson
Gunnar H. Jónsson
Jens Hjörleifsson
Gestur Halldórsson
Marías Þ. Guðmundsson
Auður H. Hagalín
Gunnlaugur Ó. Guðmundsson
Kristín Ólafsdóttir