Skutull - 16.09.1971, Blaðsíða 2
2
SKUTULL
SKUTULL
tltgefandi: Alþýðuflokkurinn í Vestfjarðakjördœmi
Blaðnefnd: Sigurður Jóhannsson, ísafirði, ábm.. Ágúst
H. Pétursson, Patreksfirði, Hjörtur Hjálmarsson,
Flateyri, Ingibjörg Jónasdóttir, Suðureyri og Krist-
mundur Hannesson, Beykjanesi.
Innheimtumaður: Haraldur Jónsson, Þvergötu 3.
Prentstofan ísrún hf.
Framboöslistinn...
Framhald af 1. síðu.
er hún eina konan, sem möguleika hefur á því,
að verða kjörin bæjarfulltrúi.
Önnur ný nöfn á lista flokksins eru: Jens
Hjörleifsson og Geirmundur Júlíusson, Hnífsdal
og Gestur Halldórsson og Jón B. Sigvaldason,
Isafirði. Allir eru þessir menn kunnir í héraði og
því óþarfi að fara mörgum orðum þar um.
Alþýðuflokkurinn væntir stuðnings bæjarbúa
í þessum kosningum. Listi flokksins er skipað-
ur ungu fólki að megin hluta, konum og körlum,
sem tekið hafa virkan þátt í bæjarmálum og hin-
um almennu félagsmálahreyfingum bæjarfélags-
ins. Þetta unga fólk hefur sýnt það og sannað,
með þeim trúnaði, sem því hefur verið sýndur, að
því er treystandi til að láta hagsmuni bæjarfé-
lagsins sitja í fyrirrúmi er til alvörunnar kemur.
Komi Alþýðuflokkurinn sterkur út úr kosning-
unum er það lóð á þá vogarskál, að takast megi
að mynda styrka stjórn í hinum nýja ísafjarðar-
kaupstað.
Fnndur þingmanna
Ofl sveitastjórna
í samþykktum bæjarstjórn-
ar ísafjarðar og hreppsnefnd-
ar Eyrarhrepps varðandi sam
einingu sveitarfélaganna var
ákveðið að efna til fundar
með alþingismönnum Vest-
fjarðakjördæmis, um málefni
og framtíðarverkefni kaup-
staðarins.
Þessi fundur var haldinn í
fundarsal Kaupfélags ísfirð-
inga mánudaginn 6. þ.m.
Helztu málaflokkar, sem
rætt var um, og framsögu-
menn voru þessir:
Sig. J. Jóhannsson.
Samgöngumál.
Jón Guðl. Magnússon:
Hafnarmál.
Högni Þórðarson:
Heilbrigðismál.
Menntaskólalóðin, ríkisá-
byrgð vegna kaupa á mann
virkjum.
Jón Páll Halldórsson:
Atvinnumál og skólamál.
Aage Steinsson:
Raforkumál og vatnsmál.
Guðmundur H. Ingólfsson:
Málefni Eyrarhrepps.
Ennfremur var rætt um
framkvæmdaáætlun fyrir
kaupstaðinn, Vestfjarðaáætl-
un, skipulagsmál og staðsetn-
ingu ríkisstofnana út um
land.
Allir alþingismennirnir tóku
þátt í þessum umræðum og
tjáðu sig reiðubúna, til þess
að vinna að framgangi mál-
efna kaupstaðarins.
Fundur þessi var mjög gagn
legur og var rætt um að
halda slíka fundi með alþingis
mönnum a.m.k. árlega.
Síðar verða einstök mál, sem
til umræðu voru, tekin til
meðferðar hér í blaðinu.
Jón B. Sigvaldason Geirmundur Júlíusson
Níels Guðmundsson
Ástvaldur Björnsson
Sigþrúður Gunnarsdóttir
Bjarni L. Gestsson
Halldór M. Ólafsson
Hákon Bjarnason
Björgvin Sighvatsson
Beðið
fyrir
Fiðlukennsla við Tón-
r
listarskóla Isafjarðar
Aage
Það væri synd að segja, að
hann Aage þyrfti að örvænta
um sinn hag. „Samtökin"
hafa fallið á kné og biðja
þess nú, að honum auðnist að
fá fylgi út fyrir raðir eigin
flokks.
Út af fyrir sig er þetta fag-
ur hugsunarháttur. Hitt er
svo annað, að viðkomandi
frambjóðandi mun hálft í
hvoru draga í efa, að hugur
fylgi máli. Hvort það svo
getur kallast vanþakklæti
eða ekki látum við öðrum
eftir að dæma.
Tónlistarskóli ísaf jarðar tek
ur til starfa um næstu mán-
aðamót og hefst innritun nem
enda í næstu viku.
Sú nýbreytni verður á starf-
semi skólans að ráðin hefur
verið fiðlukennari frú Aldís
Jónsdóttir. Hún var í átta
ár við nám hjá Birni Ólafs-
syni, en leikur einnig á píanó
og hefur stundað tónfræði ofl.
er að tónlistarfræðum lýtur.
Skólinn og Verzl. Jónasar
Tómassonar mun verða vænt-
anlegum nemendum hjálpleg
að kaupa sæmileg en ódýr
hljóðfæri. Gert er ráð fyrir
að frú Aldís verði a.m.k. ráð-
in til þriggja ára svo að þeir,
sem nú hefja námið geta
treyst því að fá tilsögn fram-
vegis er þessum vetri lýkur.
Ólafur Kristjánsson mun
annast stjórn Lúðrasveitar
skólanna, en vinsældir hennar
voru miklar sl. ár.
Skólastjóri verður Ragnar
H. Ragnar og flestir hinir
sömu kennarar, en þó má
vera að einhverjar breytingar
verði á kennaraliðinu, en það
er ekki fullráðið ennþá.
Þá mun verða söngkennsla
og hefur frú Hanna Bjarna-
dóttir hin velþekkta söng-
kona lofað að kenna á tveim
ur námskeiðum fimm vikur
hvert.