Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1993, Side 5

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1993, Side 5
B B Sæbys-hús frá 1886 Friðað 1978. Eftir endurbyggingu væri hægt að koma þarfyrir safni muna sem sýndi hvernig íbúðarhús voru um aldamótin 1900. Opið til skoðunar, kaffisala. Ferðaþiónusta á Siglufirði -Hugmyndir og tillögur endurvakin, síldarsöltun með gamla laginu, heimafengin skemmtiatriði. 4. Kvöldvökur - síldarball í brakka. Mjög mikilvægt er að leggja áherslu á hina sérsiglfirslu menningu. Gamall síldarbrakki endurgerður sem samkomustaður. Síldarréttir og veitingar í þjóðlegum stíl. Gamlir söngvar 3. Stórbrotið landslag- Sigiufjarðarskarð Umgjörð kaup- staðarins eru stórskorin og velgróin blágrýtisfjöll 600-900 metrar á hæð. Gamli akvegurinn yfir skarðið býður upp á óvenjulegan akstur og með honum opnast hringleið til og frá Siglufirði þannig að hann er ekki sama endastöðin og áður. Fornar reiðgötur og gönguleiðir um fjöllin gefa kost á fjölbreytilegri útivist. Með nokkurri lagfæringu á Skálarvegi væri hægt að aka ferðmönnum upp í Hvanneyrarskál. Nálægð Héðinsfjarðar, sem er fagur eyðifjörður í umdæmi Siglufjarðar, hefur mikið aðdráttarafl til ferðalaga og silungsveiða. 4. Nátturuskoðun - veiðar Siglufjörður er sannkölluð matarkista þar sem stunda má veiðar á bátum og stutt sigling er á enn gjöfulli mið. Ríkulegt fuglalíf er á staðnum. Allstórar sjófuglabyggðir er hægt að skoða úr landi og frá sjó. Þar má nefna fuglabjörg í Strákafjalli, í Hestinum við Héðinsfjörð og í Hvanndalabjargi. 5. "Skíðaparadísin" Siglufjörður er meðal þekktustu skíðastaða á landinu. Hér er landslag og öll tæknileg aðstaða eins og best verður kosið til að stunda margbreytilegar vetraríþróttir. Ferðamanna- þjónusta 1. Veitingar, gisting og þjónusta þar að lútandi. Að mörgu leyti skiptir þessi þáttur miklu máli við að laða að ferðamenn. Þessi þjónusta (ásamt annarri afþreyingu) gæti ráðið því hversu margir ferðamenn kæmu hingað og hve lengi þeir stöldruðu. 2. Síldarminjasafn í tveimur- þremur húsum. Fjöldi muna, kvik- myndir, mynda- sýningar og leiðsögn. Mögulegt að sýna þar gamlar vinnuaðferðir eins og söltun síldar. 3. Síldarævintýrið - útihátíðin vinsæla um verslunarmanna- helgina hefur tekið á sig ákveðna mynd. Síldarstemmingin sungnir. Boðið upp á harmonikkuball og gistingu í brakkanum. Þessi staður gæti verið rekinnn af hóteli eða í nánum tengslum við það. 5. Siglufjarðarskarð 620 m. hátt. Brött en tiltölulega stutt leið (11 km) yfir þennan gamla og fræga fjallveg. Vegurinn þarf að að vera í góðu lagi svo beina megi umferð á hann. Söltunarstöð ísfirðinga „Þróin til vinstri”og Róaldsbakki til hægri. Elías Roald lét byggja brakkann 1906, Kristján Sigurðsson á Eyri smíðaði nótabáta og trillur í „Þrónni". Myndin er tekin um 1960. 6. Vetraríþróttir. Skipulagðar hópferðir eða ferðir einstak- linga. Toglyftur með fjölbreytilegum skíðabrekkum í Skarðdal. - "Ölpum Norðurlands". Göngubrautir í Hólsdal og í fólkvangi í skógrækt.. Vélsleðaferðir um dali og fjöll: td. Siglunes- Héðinsfjörður. Boðið upp á sömu skemmtun og á sumrum: Söfn, skemmtun í síldarbrakka o.fl. 7. Siglingar. Góður hraðskreiður bátur til náttúruskoðunar og veiða. 8. Héðinsfjörður - skipulagðar ferðir þar sem skiptast á sigling, göngur og reiðtúrar. Leiðsögn - nesti. 9. Hvanneyrarskál. Stuttur akvegur upp í Skál, óvenjulegt sjónarhorn, útsýnisskífa, borð og bekkir. 10. Gönguleiðir - reiðgötur. Siglufjarðarskarð, Hvanneyrarskál, Hestskarð, Dalaleið, Hólsskarð og Siglunes. Stuttar eða langar ferðir sem gefa kost á stórkostlegu útsýni og nánum tengslum við landið. 11. Ökuferð með hestvagni. Bærinn og fjörðurinn skoðaður í 1-2 klst. ferð. Hugmynd að dagskrá fyrir ferðamenn 1. Komið til Siglufjarðar um hádegi. Málsverður. 2. Síldarminjasafnið skoðað. 3. Valið um siglingar, fjallgöngu, reiðtúr, ökuferð um Siglufjarðarskarð eða Hvanneyrarskál (nesti með í för). 4. Kvöldskemmtun í brakka, síldarréttir og aðrar þjóðlegar veitingar. Síldarball - harmonikka, fiðla. 5. Kvöldsigling til miðnætursólar. 6. Gisting á hóteli eða síldarbrakka. 7. Brottför að morgni. Mjög æskilegt er að svona dagskrá sem ferðamanninum er boðin sé í tengslum við skipulagðar ferðir um nágrannasveitir okkar, Skagafjörð og Eyjafjörð. Svæðið Skagafjörður og Siglufjörður verði kortlagt sem heild þar sem sýna mætti fjölbreytilegt landslag, mannlíf og margskonar söfn. Frá sveitastörfum til sjávarútvegs: Glaumbær - Hólar - Síldarbærinn. A tveimur til þremur dögum gæfist ferðamönnum kostur á að kynnast lífi þjóðarinnar í fortíð og nútíð. FRETTABREF Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni Pósthólf 8564 128 Reykjavík bætið við Má setja ófrímerkt í póst Vinsamlegast ■ lagfærið ( strikið yfir það sem EKKI á við.) ■ félagaskrá Siglfirðingafélagsins. Nafn Kennitala Heimili Sveitarfélag

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.