Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 1993, Qupperneq 8

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 1993, Qupperneq 8
✓ Nú höldum við SILDARBALL! Aðalfundur Síron 1993: Spilakvöld og dans að aíloknum fimdarstörfum Síldarballið- hin árlega stórskemmtun Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni verður haldin þann 9. október n.k. að Félags- heimili Seltjarnarness kl. 22.00. Miðaverðinu er stillt í hóf eða kr. 1.750,- og mun hljómsveitin Stælar sjá um að halda uppi því fjöri sem að Siglfirðingar gera kröfu til! Nú sem fyrr eru Siglfirðingar hvattir til að bregða undir sig betri fætinumog skella sér á enn eitt ógleymanlegt æðis- gengið SÍLDARBALL!. Sem dæmi um hópa sem Fréttabréfið hefur fregnað að ætli að hittast á Nesinu eru árgangar '34-'44 og '54. Eins og annars- staðar má lesa í blaðinu (og á eftir að birtast oftar hér) er nú í gangi átak til að fá fólk fætt 1960 og síðar til að tilkynna sig í félagið. Nú er upplagt tækifæri til að stíga fyrsta skrefið í átt til skemmtilegra lífs með samsveitungum og til að sannfærast um að fólkið í félaginu er flest fætt á þessari öld. Sjáumst! ■ DAGUR l’IL AD MUNA! Aðalfundur SÍRON verður haldinn föstudaginn 12. nóv. kl. 20:00, að Hraunholti, Dalshrauni 15, Hafnarfirði-bakatil í Bykohúsinu. Enn sem fyrr er það ósk stjórnar Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni að sem flestir Siglfirðingar sjái sér fært að mæta og hafa áhrif á starfsemi félagsins. Tilgangur félagsins er: -að efla kynni og samstarf Siglfirðinga og annarra velunnara Siglufjarðar í Reykjavík og nágrenni með því að halda skemmtanir og kynningarfundi. -að vinna að menningarmálum á Siglufirði eftir því sem tilefni þykir til að efla tengsl félaganna við Siglufjörð. A aðalfundinum eru allar meiriháttar ákvarðanir er varða starfsemina teknar. Þar er kosið í stjórn og nefndirnar sem sjá um hina margvíslegu starfsemi félagsins. Tekið í spil Að loknum fundarstörfum sem taka yfirleitt skamman tíma veður tekið í spil. Þessi nýbreytni var tekin upp á þótti takast vel. Spilakvöld Siglfirð- ingafélagsins á fundinum í fyrra og árum áður voru rómuð fyrir skemmti- legheit og dæmi voru um að menn sem áttu erindi til Reykjavíkur reyndu að haga því svo til að þeir kæmust í leiðinni á spilakvöld hjá SÍRON. Vegleg verðlaun verða veitt. Þegar að spilunum sleppir er meiningin að bregða á leik og taka nokkur dansspor við undirleik einhverra hinna velspilandi siglfirsku hljóðfæraleikara sem ætíð fylgir fjör og gleði. Fjölmennum! ■ DAGUR TILAÐ MUNA!

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.