Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2011, Page 6

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2011, Page 6
Andvari vcnar ca alek - vikdl leés R. Ólascndr vú listdkcnund Hcllu HdrdUsdéttur ^ Hinn 15. desember árið 1966 var vígt nýtt sjúkrahús á Siglufirði. í anddyri þess var þá einnig afhjúpuð fyrsta „freskan" á Islandi, mikið myndverk eftir Höllu Haraldsdóttur sem næstu fjóra ára- tugina var það fyrsta sem tók á móti þeim sem inn komu. I hug- um margra öðlaðist myndin ákveðinn virðingarsess strax í upphafi, varð síðan eins konar tákn hins nýja og glæsilega húss og um leið einkenni þess. Verkið vakti verðskuldaða at- hygli margra þeirra sem þarna áttu leið um, enda magn- að verk og hlaðið boðskap. Þrátt fyrir að það hafi verið pantað af byggingar- aðilum sjúkrahússins og fjárhagur listakon- unnar ekki verið upp á marga fiska á þess- um tíma, þáði Halla ekki greiðslu fyrir framlag sitt. Hún gaf myndina til minningar um ömmu sína Margréti Guðmunds- dóttur, sem á sínum tíma var fyrst allra til að gefa fé í söfnun vegna fyrirhugaðrar byggingar nýs sjúkrahúss. Tákn múrristunnar er lœknagyðjan Eir með Asklepiosarstafinn í hönd. Vinstri hlutinn er hjúpaður skugga sorgar þar sem regnskýin fella tár yfir þjáningum mannkynsins. Þokukennd sorgin hylur hluta gyðjunnar sem deilir óvissunni og kvíð- anum með mannfólkinu. Við fætur gyðjunnar liggur veikur svanur sem hlýtur lcekningu við snertingu hennar. Andvari vonar og gleði birtist í líki fuglsins á hcegri hlutanum, þar sem sólin skín og fcerir okkur birtu og gleði. Við höfum hlotið bata, njótum heilbrigðis og göngum fagnandi á vit lífsins. Neðsti hluti verksins er tengdur í eina heild af heilsujurt- unum ópíumvalmúa, digitalis og fjallagrasi. Þetta er mannlíf ð sjálft í gleði sinni og sorg, lífi og dauða. Múrristan er 2 x 3 metrar að stcerð og gerð á sléttan steinvegg úr upphleyptri stein- steypu sem síðan er lituð. Þannig lýsir lista- konan Halla Haralds- dóttir verki sínu sem eitt sinn prýddi anddyri Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar. En ekkert er óumbreytanlegt og lágmyndin á veggnum gegnt útihurðinni tekur ekki lengur á móti þeim sem þarna eiga leið um. Læknagyðjan með stafinn er þó enn á sínum stað, og alveg jafn kirfilega greypt í vegginn og hún hefur verið allar götur frá sköpun sinni og upphafi. Hvað gerðist, gæti maður spurt sig og svarið er vissulega ekki flókið. Síðla árs 2009 var tekin í notkun rúm- lega eitt þúsund fermetra viðbygging við HS, við það breyttist aðalinngangurinn sem nú er á öðrum stað í byggingunni. Vistarverur gyðjunnar eru nú baksviðs ef svo mætti segja, á fáförnu einskis manns landi og sjúkrahúsið hefur komið djásni sínu fyrir undir mælikeri þar sem alltof fáir líta það augum. Hvort sem þarna hefur óvart orðið skipulagsslys eða listinni einfaldlega fórnað á altari hagræðing- arinnar að hætti 2007-lífsstílsins skal ósagt látið. En þeir sem hafa lifað og reynt nærast oft á for- tíðarþránni og ég viðurkenni fúslega að ég sakna

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.