Vesturland - 30.06.1927, Side 3
VESTURLAND.
ð
IHig fíí iiiiániNi i Ölsein] ((
Kaupum:
Selskiun, Lambskinn og Uli.
fundum og trúaö hafa ósannind-
um hans, en sakir ofstækis ekki
lesa önnur blöð. Eru þessir aum-
ingjar næstuin brjóstumkennan-
legir þegar þeir, eftir það að hafa
vaðið fram meö stóryrðum, verða
þess áskynja, að þeir standa naktir
á hólminum, og að skjöldur þeirra
og sverð er ekkert annað en Títna-
lygar, sem ætlaðarhafa verið ófróð-
um mönnum.
Jafnvel fólk, setn lítið veit um
þjóðmál, finnur það, að þeir menn
sem bera fyrir sig blekkingar og
ósannindi, hljóta að liafa vondan
málstað og lítil frambærileg rök.
Fullyrða má, að Tíminn hafi nú
þegar tekið þann gróða sem fæst
með rógi og ósannindum, og aó
nú sé komið að skuldadögunum.
Landsmen ættu að sýna það við
þessar kosningar, hvort þeir vilja
þola tnönnum slíkan málaflutning,
setn Tíminn hefur tamið sér.
Bréf
séra Matthíasar og óprentuð
kvæði.
Eg undirritaður anglýsti fyrir
nokkru, að eg hefði í hyggju að
gefa út áður en langt um líður
óprentuð kvæði og bréf frá föður
minum til ýmsra kunninja hans.
Jafnframt skoraði eg á alla, sem
ættu í fórum sínum bréf eðakvæði,
að gera svo vel og lána mé þau
eða senda mér afrit af þeitn.
t»ó stutt sé liðið siðan, hefi eg
þegar fengið nokkurn bunka, og
býst við að safnið verði mikið
áður en lýkur.
Til þess að minna ntenn enn
betur á, að verða vinsamlega við
tilmælum minum, hefi eg hugsað
mér með nokkru millibili að birta
I nokkrum timaritum og blöðum
eitt og eitt af kvæðum þeim eða
bréfum, sem mér verða send. A
þessu byrja eg nú í dag með
einuin bréfkafla.
í gær var hr. Páll Bergsson í
Hrísey svo vænn að senda tnér
nokkur bréf, er hann átti frá föður
tnínum. Um leið og eg þakka
honum sendinguna, leyfi eg mér
að setja, hér útdrátt úr einu bréf-
anna:
„Akureyri 2. nóv. 1905.
•Elskulegi vin I
Kæra þökk fyrir þina ýsu —
þarna færðu hálfa vísu,
spyrður þínar fyrir fjórar,
feilar, nýjar, þykkar, slórar.
En ekki kann eg á að giska
áður en kryf eg tjeða fiska,
hvaða gæði gamla Braga
geymi þær í sinum maga.
Ekki’ í tnaga, heldur I höfðum,
hitti eg nóg af satnanvöfðum
óskasteinum eða kvörnum —
einstaklega vel til kjörnum.
Úr þeirn steinuin strax eg seiði
sterka töfra, þá er leiði
rfkan hlut á hverjum degi
heim til þín úr Ránar-legi;
einnig það, að ósk þln rætist,
og að hvað, setn vantar hætist,
öll þitt auðna eflist, kætist,
till þitl böl til fjandans tætist.
Lifðu sæll i Ijósi þvisu,
liíðti sæll við þorsk og jinýsu,
lifðu sæli í lofsöngsvlsu,
lifðu sæil og — nteiri ýsu.
Ekki er vakurt þótt riðið sé - á Pega-
susi.
Allir komnir npp í háttinn,
einn eg syt við hörpusláttinn
enda verð nú ýsu-þáttinn,
opin trú’ eg, stendur gáltin.
Þér sjáið, að þetta er rhnbeygla rituð
eitts og úr pennanunt fellur, annars hefi
eg sjaldan látið þá konst eítir mér
nema stöku sinnunt í bréfuin til góð-
kunningja. Þess konar er mest alt komið
fyrir katlarnef og steingleytnt. Eyrir 20
áruin gisti eg hjá góðum skólabróður, og
las hann mér lengi skrítlur úr gömlum
bréfunt. Loks spurði eg ltver hefði ort.
Það kom þá upp úr soðinu, að það var
frá minni ruslaskjóðu. Maðurinn var séra
Páll Sigurðsson, siðast í Gaulverjabæ.
Þér fáið hér tneð tntnar fjórar ljóða-ýsu-
spyrðttr. Það er heldur léleg ljóða-ýsa>
nærri þvi tóm erfiljóð. Ett .saint nenni
eg ekki að skaintnasl min íyrir allan fjöld-
an af þeitn. Og enn á eg 40- 50 erfiljóð
auk ótal týndra og trölhnn gefinna.
itein fáið þér 2. bindi af Herlæknissög-
uni Z. Topelíusat’ og loks leikinn Gísla
Súrsson, þvi cf þér eigið liann áður, getið
þér notað hann til einhvers annars, eg á
ærið nóg af honutn óselt — tninkun hvað
þjóðin cr barnaleg að skilja ekki þann
leik, þvi að hann er meistaralega saniinn
af enskri slúlku.
Diitimviðri i dag og logndrifa; útlitið
lfkt og í íslands innri pólitik og — á
horíum þess eyfirska höfuðstaðar. Lík-
lega er, að bæjargreyið hrynji ekki né
hvolfist kollhnýs í Pollinn úr þessu, en
„krach“ fær hann líklega, þvi alfof inargir
„svindfa sig áfratit tneð oftrú á bankana,
en hvorki kendir við trú á Drottinn, sjálfa
sig, síldina eða framtfðina".
Faðir minn átti bréfaviðskifti
við fjölda manna víðsvegár nm
land ug erlendis, og var fljólnr
að svara, þegar homnn var skrifað
til. Var þá algengt að stökur fylgdu
bréfunum og stundum lteil kvæði.
Meginið af þessum kveðskap er
því dreift víðsvegar og týnist óð-
um, því það var aðeins stöku
sinnum, sem ltann fékk tíma til
að taka afrit aí sliktt.
Akureyri 19. mai 1927.
Steingrímur Matthíasson.
Altal' að tapa.
Aðalfundur Búnaðarfélags ís-
iands var haldinn við bjórsá 25.
júní. Tr. bórhallsson hafði það
sent afsökun, er hann skoraðist
undan því að niæta á fundum í
Strandasýslu tneð Birni Magnús-
syni, að hann þyrfti að sitja þenn-
an fund, sent itann þó sjálfur gat
ráðið, hvenær haldinn yrði.
En til mikils var að vinna fyrir
Tr. á þessutn fundi. Að sönnu
velur ekki fundurinn stjórn félags-
ins, en hann velur þó í eina trún-
aðarstöðu: Hann velur sem sé
einn fulllrúa á Búnaðarþingið, og
þessa trúnaðarstöðu hefir Tr. b.
liaft. Nú varðaði mikiu að halda
tigninni og láía ekki opinbert
verða, hve traustið er horfið hjá
bændum á þessum bændafulltrúa.
Tr. stfaulc þvi skyndilega frá kjós-
endum sínum, til þess að undir-
búa endurkosningu sína. En ferð-
in varð hvorki til fjár né franta.
Honum var sparkað úr þessari
tiúnaðarstöðu og settur í ltana
harðsnúnasti andstæðingur hans,
Jón bóndi á Bessastöðum, sern
ritað hefir hvassasta ádeilu á Tr.
setn fornt. B. í. Er sú ádeila birt
i Frey. Fundurinn staðfesti liana.
Eu raunir Tr. voru ekki með
þessu allar. Fundurinn allur var
óslitið vantraust á hann og stjórn
B. í., bæði i tillögum og utnræð-
um.
Upplitun.
Skutull segir að bændum hafi
ekki sýnst hinn santeiginlegi frant-
bjóðandi bolsa og Tíntans, Finnur
Jónsson, neitt hræðilegur, þegar
þeir sáu hann. Vesturland hefir
aldrei heyrt þcss getið, að nokk-
ur máður hafi orðið hræddur við
Finn. En liitt hefir það heyrt, að
liann hafi verið orðitm mjög föl-
rauður á ytra borði, er hann kont
til bænda, jafnvel bleikur. En þeir
þöttust skilja að hann hefði bara
upplitast á yfirborðinu við útivist-
ina í sveitunum og mundu þau
klæði ekki haldgóð. bóttust og
skygnir sjá, að nærklæðin væru
ttteð sterkara lit. —
Tálvonir munu því, aðþeirhafi
fengið ást eða ágirnd á honutn.
Verkkaup.
Björn Bl. Jónsson, eitt af flón-
um þeint, er fylla dálka Alþýðu-
blaðsins, hafði ntikið við að út-
breiða óhróður þann, er Héðinn
flutti á þingi um Jóh. P. Jónsson
skipherra á Óðni. Að því loknu
fór liann til Vestmannaeyja og
,bauð sig þar fram til þingmensku.
Uuldu Vestmenneyingar honum
rógburðarverkkaupið refjalaust.
Var þar enginn maður svo blygð-
unarlaus að leggja Birni liðsyrði,
en Sig. skáld Sigurðsson barfram
í tillögufonni áskorun til hans um
það að taka framboðið aftur. Var
sú áskorun samþ. tneð miklunt
atkvæðafjölda.
Á fundi þessum, sent var mjög
fjölmennur, var og samþ. i einu
hljóði traustsyfirlýsing til skip-
herrans á Óðni.
Frá ísaflFÖi.
„Dronning AlexaiidrineB
hið veglega Dieselmótorskip
Sameinaða gufuskipafélagsins kom
hingað fyrstu ferð á miðvikudags-
morguninn.
Með skipinu var sagt að væru
á 6. hundrað farþega.
Meðal farþ. hingað: afgreiðslu-
maður félagsins Jóh. kaupmaður
borsteinsson, Sigurgeir Sigurðsson
Síldartunnur,
Krydd
Og
Lymborgarsalt,
væníanlegt um ntiðjan júlí.
Halldór B. Halldórsson.
Kaupakonu
vantar á gott héimili. Talið við
afgreiðsluna.
prófastur, Maguús og Anna Thor-
steinsson, Jón S. Edwald, konsuil,
Sigfús Danielsson verslunarstjóri,
Jón bórólfsson kaupnt. Guðrn. J.
frá Mosdal, Ól. Kárason kaupm.
og frú, Gunnar Axelson, Jón b.
Ólafsson sntiður.
Skipstjórinn hr. Frandsett bauð
nokkrutn bæjarbúutn til morgun-
verðar og sýndi þeiitt alt skipið og
útbúnað þess.
Brúttóstærð skipsins er 1854tons
með 2100 hk. Dieselvél. Gang-
hraði var á reynsluferð þess
14 rnílur.
Farþegarúm eru fyrir 95 í I.
farrými og 44 í II. farrými. Sér-
stakt pláss er ætlað fyrir konung
vorn og drotningu á væntanlegum
heimsóknarferðum þeirra til íslands.
Allur útbúnaður skipsins er mjög
fullkominu og vandaður.
Dánarfregnir.
Maður féll út af vélbát ísleifi
25. Júní og drukknaði. Hann hét
Hákon Guðmundsson ungur mað-
ur og efnilegur ættaður úr Dýra-
firði.
Anna Tómásdóttir, föðursystir
Bárðar G. Tóinássonar skipaverk-
fræðings, borbj. Tómassonar og
þeirra systkina lést 27. júní.
Jón Þorvaldsson frá Krossum
lést 27. júní. Hann var 86 ára að
aldri og dvaldi hjá syni slnunt
Jóni Eyfirðingi kaupm. í Bolung-
arvík.
Guðbjörg Guðmundsdóttir hús-
freyja héðan frá ísafirði Iést á
sjúkrahúsi í Reykjavík 26. júní.
Sildveiði.
M. k. ísleifur fekk 160 tn. síldar
í hringnót út af Horni 24. júní.
Margir ísfirsku bátanna búast
nú á veiðar.
Hávarður ísfirðingur er að búa
sig á síldveiðar. Hann leggur afla
sinn á land á Hesteyri.
Enskt herskip,
Doon, kom hér inn á höfnina.
Komu yfirmenn þess snöggvast 1
land lil viðtals við breska konsul-
inu, Tr. Jóakimsson.
Bæjargjaldkeri
biður þess getið, að mánaðar
dráttarvextir falla á fyrri helming
útsvara 3. júlí n. k. og síðan
mánaðarlega 3. dag hvers mán-
aðar. Sama gildir um útsvör, er
kærð hafa verið.