Vesturland - 12.06.1928, Side 3
VESTURLAND.
3
■——■fnim—WBiii—..........—iii iiiii....... ■■■ 111 iiu
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum, að dóttir okkar
elskuleg, Sigurbjörg Kristjana, andaðist 4. þ. rn. Jarðarförin er
ákveðin fimtudaginn þann. 14./ frá Sjúkrahúsinu á ísafirði.
Naustum, 11. júnf 1928.
Elísabet Sigurðardóttir. Sæmundur Ásgeirsson.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
• SÓLARSMJÖRLÍKIÐ
fáið þér ætíð nýtt á borðið, það
er því ljúffengast og næringarmest.
Enda verður gjöf þessi ekki gold-
in. En innilegar þakkir viljum vér
undirrituð sóknarnefnd Hólssókn'-
ar, fyrir safnaðarins hötid, votta
heiðruðum gefendum, fyrir þessa
prýðilegu raunsargjöf til Hóls-
kirkju.
Bolungavík, 31. maí 1928.
Arngr. Fr. Bjarnason.
Kristján Ólafsson. H. Kristinsson.
Bæjarstjórnargerðir.
Bærinn gefur út víxla fyrir
náungann.
16. f. m. samþykti bæjarstjórn
eftirf arandi:
„Bæjarstjórnin samþykkir að
heimila oddvita í samráði við
fjárhagsnefnd, að ganga í á-
byrgð fyrir hönd kaupstaðarins
fyrir lánum til félagsmanna i
Samvinnuféiagi ísfirðinga til
fiskiskipakaupa samtals alt að
320 þúsund kr. í samræmi við
ábyrgðarheimild þá, er síðasta
Alþingi veitti stjórninni í þessu
skyni".
Hún mun vera nokkuð einstæð
þessi ábyrgðarheimild bæjarstjórn-
arinnar, og verður ekki sagt að
þar sé mikil varfærni við höfð.
Upphæðin er ekki skorin við negl-
ur, hvort sem miðað er við stærð
eða efnahag bæjarins. Ekki er
heldur verið að spyrja um, hvers-
konar fiskiskip kaupa á, en nú er
þó fram komið, að það er sú teg-
und fiskiskipa, sem verst hefir gef-
ist allrar útgerðar hér við Djúp,
því fá eða engin dæmi finnast til
að þau hafi borið sig hér í rekstri.
bó er það einstæðast, að bærinn
samþykkir þessa smáábyrgð, án
þess að vita, fyrir hvern hann á-
byrgist., Flestir munu vera svo
forvitnir, þegar þeir ganga í á-
byrgðir, þó smærri séu en þessi,
að þeir vilji fyrst vita, fyrir hvern
þeir ábyrgjast og til nvers eigi að
verja láninu, en slik hnýsni er
ekki að skapi meirihlutans í bæj-
arstjórn ísafjarðar.
Fyrir nokkrum dögum gaf bæj-
arfógeti út 5 víxla fyrir hönd
bæjarins, hvern að upphæð 40
þúsund kr. Samþykkjendur hafði
Samvinnufélagið útvalið. Lagði
Finnur Jónsson síðan af stað með
vfxlana.
Bæjarstjórn metur tryggingar fyr-
ir láni úr hafnarsjóði.
Hafnarnefnd lagði til við bæjar-
stjórn í vetur, að Samvinnufélag-
inu yrðu lánaðar 10 þús. kr. úr
hafnarsjóði, „með þeim kjörum, er
bæjarstjórn samþykkir og þeirri
tryggingu, er hún tekur gilda“.
Nú er bæjarstjórn búin að á-
Símlykill:
A.B.C. 5. útgáfa, til sölu í
Utbúi íslandsbanka.
kveða „kjörin" og segjahvertrygg-
ingin skuli vera. Eru kjörin 51/20/0
ársvextir og 6 mánaða uppsagn-
arfrestur, og sé lánið sjálfskuld-
arábyrgðarlán, en tryggingin (veð
má það vist ekki kallast) er skulda-
bréfið sjálft, þ. e.: ábyrgð lántak-
anda sjálfs.
f
Bæjarstjórn er nú búin að af-
marka sumarhaga kúnna, sem ein-
stakir menn í bænum eiga. Á að
króa þær allar milli Seljalandstúns
og Sjónarhæðar. (Girðing ofan
vegarins og upp ískriðurnarbeggja
megin). Til liknar fyrir útlegð
þessa úr aðalhögunum, ákvað
bæjarstjórnin að þrefalda rúmlega
hagabeitargjald fyrir þær! Mætti
það vel kallast urðargjald.
Minnihlutafulltrúarnir reyndu að
fá samkomulag um það, að hag-
árnir fyrir bæjarkýrnar og „kýr
vorar“ yrðu sameiginlegir og þver-,
girðitigin ekki sett utar en við
Stakkanes, svo nokkur hagi yrði
eftir fyrir liesla, en hvorugt fékst.
Þá var lagt til af ntinnihlutafulltr.
að árgjald fyrir hagabeit hesta^
væri lækkað, er hagarnir eru að
mestu af þeim teknir, en það var
einnig felt.
Hagabeitargjald fyrir hesta er
nú alt að fimmfalt við það sem var
fyrir stríð og nál. 10°/0 af hestverði.
' I ___ \
Frá ísafÍFÖi.
Dánarfregn.
Hjónin Sæmundur Asgeirsson
og Elísabet Sigurðardóttir á Naust-
um hafa orðið fyrir þeirri sáru
sorg að missa einkadóttur sína
Sigurbjörgu, 14 ára gamla. Bana-
mein hennar var heilahimnubólga.
Iijúskapur.
Ásgeir Árnason vélstjóri og
Theodóra Tómasdóttir voru gefin
saman í hjónaband síðast liðinn
laugardag.
Dr. Alexandrine
kom að norðan á suðurleið 3.
þ. m. Með henni tóku sér far héð-
an: Frú Guðrún Pétursdóttir, frú
Herdís Jónsdóttir, ungfrú Gyða
Maríasdóttir, Sig. H. Þorsteinsson,
Jón Hróbjartssori, Haraldur Leós-
son, Finnur Jónsson, EiríkurEin-
arsson, Ólafur Guðmundss. kaup-
maður i Reykjavík, frú Berit Sig-
urðsson til Noregs og ungfrú
Sigríður Jóhannsdóttir til Dan-
merkur.
Húsmædpaskólinn á ísaftröi
tekur til starfa 1. október n. k. Námsskeiðin verða tvö, fjórir mán-
uði hvort.
Námsgreinar: Matreiðsla, þ.vottur, hreingerning herbergja,
næringarefnafræði, heilsufræði, útsaumur og baldering.
Heimavist er í skólanum. Inntökugjald 20 kr. Mánaðargjald 75
kr. er borgist fyrirfram.
Hver nemandi liafi með sér rúmtatnaö og allan klæðnað. Lækn-
isvottorð verður hver nemandi að sýná, við inntöku í skólann.
Umsóknir séu kornnar fyrir 1. okt. og stílaðar til Skólanefndar
Húsmæðraskólans, eða tiL undirritaðrar forstöðukonu sem gefur allar
nánari upplýsingar.
•
ísafirði, 1. júní 1928.
Gtyða Maríasdóttir.
*
Rakstur með R O T B A R T-rak-
vélablaði fullnægir kröfum hinna
kröfuhörðustu. Það er heimsins
besta rakvélablaðið.
Notið
slípivélina „ROTBART TANK
í heildsölu hjá Vald. Thaulow Kaupmannahötn. Biðjið kaup
mann yðar um Rotbart-blöð og Rotbart Tank.
Helgi Sigurgeirsson
gullsmiður, ísafirði
smiöar og grefur
enn.
Hávarður ísfirðingur
kom inn síðast liðinn sunnu-
dag með 137 föt lifrar.
„Súlan“.
Flugvélin „Súlan“ kemur liing-
að beint frá Reykjavík árdegis á
fimtudaginn. Fer héðan aftur beint
til Rvíkur, og tekur farþega.
Togari sekkur.
70 ÁRA REYNSLA
og vísindalegar rannsóknir
tryggja gæði kaffibætisins
V E R O
enda er hannjheimsfrægur
og hefir 9 sinnum hlot-
ið gull- og silfurmedal-
íur vegna framúrskarandi
gæða sinna. Hér á land-i
hefir reynslan sannað að
VERO er miklu betri og
drýgri en nokkur annar
kaffibætir.
Notið að eins VERO
Það marg borgar sig.
í heildsölu lijá:
HALLDÓRl EIRÍKSSYNI
Hafnarstr. 22. Reykjavlk.
Fæst í
Verslun Ólafs Pálssonar,
— Bj. Guðmundss. og
Bræöraborg.
Tógarinn „Menja“ frá Reykja-
vík sökk s. 1. laugardag. Var skip-
ið að veiðum vestur á „Hala“
er leki kom að því, og sökk það
á tveim tímum. Veður var gott
og togarar margir í náud. Varð
því ekkert manntjón.
Margar tegundir af Blóm-
sveigum og böndum. Lík-
kistur og likklæði
ódýrast hjá
Arna Oíafssyni.