Vesturland - 01.12.1933, Page 1
VESTURLAND
X. árgangur.
Fullveldisdagurinn.
Í dag höldum vér hátíðlegt 15
ára afmæli fullveldis vors.
Enn er fullveldi landsins ungl-
ingur, sem horfir vonaraugum tíl
manndómsáranna.
Vonaraugum um marga og bjarta
sigra.
Því var spáð af sumum, áður en
vér fengum fullveldið, að vér
myndum litt kunna með slíkan
dýrgrip að fara. Því miður hafa
þessar spár við undanfarna reynslu
fengið það mikið gildi, að þær ættu
að verða oss til varnaðar.
Fullveldið er frelsi þjóðarinnar
til þess að ráða öllum sínum mál-
um og vér megum ekkert aðhafast,
sem geti skert það.
Þrátt fyrfr flokkabaráttu og inn-
b^'rðis deilur er það mál málanna,
sem aliir eiga að sameinast um.
Grundvöllur þess, að fullveldið
sé ekki skert, er sá, að við séum
öðrum þjóðum sem óháðastir um
hin sérstöku málefni okkar. Og er
þar æðsta boðorðið, að ánetjast
ekki um of af erfendum skulda-
fjötrum, þótt úr gulli séu.
Þeir fjötrar eru oft ginnandi og
glitrandi fagrir í fyrstu. Og þeir
líkjast mjög fjötrinum Gleipni í þvi,
að þá má oft sveigja og teygja
um tima, en engir fjötrar læsa fast-
ara, þvi fyr en varir kemur að
skuldadögunum og gjaldið er kraf-
ið af skuldunautnum eða önnur
friðindi i þess stað, ef til eru.
Enginn sannur íslendingur ósk-
ar þess, að þessir fjötrar hertaki
þjóð sína og hefti eða eyðileggi
fullveldi hennar. En því miður hefir
veríð stefnt svo óvarlega í þessa
átt nú um stund, að brýningar um
árvekni og afturhvarf í þessum
efnum er full þörf.
Ættjörðin okkar má enn helta
Ísafjörður, 1. des. 1933.
ung og litt numin. Hún hefir sýnt
okkur, sem nú lifum og störfum,
skýrara en nokkru sinni fyr ýmsa
kosti sina og margbreytt óleyst
verkefní. Þjóðin má án kviða trúa
á eldgömlu ísafold til þróunar og
þroska fyrir sig og niðja sína, ef
þjóðin þroskast i hreysti og ötul-
legum störfum, sem miða að al-
mennri hagsæld, og sníður störf
sín og stefnu við þær aðstæöur,
sem landið bendir til og eru við
sérstakt hæfi okkar sem íslendinga.
Þótt nú skyggi í álinn er eng-
in ástæða til þess að æðrast.
Einmitt úr þessu er þjóðinni
vandalaust að meta til fulls full-
veldi sitt og vorkunnarlaust að
átta sig svo á stefnunni, að hin
rétta stefna sé tekin um þetta mál
málanna.
Sú yfirvofandi hætta sem getur
legið fyrir um að ver fari í máli
þessu á að knýja þjóðina til
sameiningar og kenna henni
nauðsyn þess, að gæta vel að
fjöreggi þjóðarinnar, fullveldinu.
Við höfum nú nýlega fengið
afgreiddar frá löggjafarþingi
þjóðarinnar miklar umbætur í
lýðræðisátt. Þessum auknu rétt-
indum almennings fylgja líka þær
skyldur, að hver einstaklingur
gæti sem bezt alls þess, sem
snertir heiður og hagsæld þjóð-
arinnar, skoði fullveldið og frels-
ið sem sinn eiginn dýrgrip, sem
hann sé reiðubúinn að verja
gegn þeim öflum og stefnum,
sem vilja rýra eða ræna honum,
hvort heldur slíkt kemur fram í
einu eða öðru.
Þjóðarfylkingin íslenzka er fá-
menn og fyrirferðalitil I mann-
mergðarfylkingu stærri þjóðanna.
Til þess að hún haldi stöðu og
stefnu móts við þær, eigum vér
aðeins eitt meðal, það er meiri
þroska til þess að standa saman
í þéttri fylkingu, hvenær sem
39—40. tölublað.
hættufyrirboðar nálgast, sem ógna
kynnu hinu unga fullveldi. Frels-
inu til þess að lifa sem frjáls
þjóð f frjálsu landi.
Fullveldisdagurinn er nú orð-
inn löghelgaður háttðisdagur þjóð-
arinnar. Verður hans og minnst
nú i öllum kaupstöðum landsins,
en að sjálfsögðu glæsilegast í
höfuðborginni, þar sem aflið til
menningar og tramsóknar þjóðar-
innar er mest og sterkast. Varðar
ávalt miklu um það fordæmi, sem
höfuðborgirnar gefa, en ekki sfzt
hér á landi, þar sem í höfuðborg-
inni býr meira en fjórði hluti
þjóðarinnar.
í dag verður lagður hornsteinn-
inn í stúdentagarðinn, garð hinna
ungumentamanna þjóðarinnar.sem
öðrum frekar, sem væntanlegir
leiðtogar þjóðarinnar, taka við
þeirri skyldu ðg ábyrgð, að leiða
þjóðina fram til sigurs á fullveld-
isbrautinni.
Ekki lítið við haft.
Talið er að F. J. leiki sér að
því að skrifa um ritstj. Vesturl. i
Nýja dagblaðið í Reykjavik og
svara þvi aftur í Alþýðublaðinu,
en H. V. endurprentar svo krás-
irnar í Skutli með sínu venjulega
„rósaútflúri", þegar ritstj. Vestur-
lands á í hlut. Er auðséð á öllu,
að þeir hafa ekki litið við, vesl-
ingarnir.
Eldgos.
Vart hefir orðið við eldgos á há-
lendinu nálægt Dyngjufjöllum. Er
talið að eldgos þetta sé all-um-
fangsmikið, enransókn áútbreiðslu
eldsins hefir ekki veriðgerð enn þá.
Öfsaveður
af suðaustri var hér í nótt.en gekk
sfðan til suðvesturs. Gerði veður
þetta ýmsar skemdir i Hnifsdal og
véibátinn Svan sleit upp af höfn-
lnni þar. Er verið að leita hans í dag.