Vesturland - 26.01.1949, Blaðsíða 4
XXVI. árgangur 26. janúar 1949. 5. tölublað.
Malastj arna.
Ný halastjarna, kölluð „1948“ var Ijósmynduð í nánd við
stjörnuna Spica í stjörnumerkinu Virgo 10 nóvember aí' stjörnu-
fræðingum í stjörnuturninum á Mount Palmor í Califafmíu.
Stjörnufræðingar telja þessa nýju halastjörnu þá skærustu
síðan Halleys halastjarnan sást 1910.
Átta ísfirðingum boðið til Roskilde
í sumar.
Ókeypis uppihald á meðan dvalið verður
þar í bænum.
Ákveðið hefur verið að efna til keppni í skotfimi
í Roskilde næsta sumar, og hefur átta Isfirðing-
um verið boðin þátttaka í mótinu. Fulltrúar frá
öðrum vinabæjum Isafjarðar á Norðurlöndum
munu sækja mótið.
Tvær myndir.
Vorið 1946 voru samþ. lög á
Alþingi um útrýmingu heilsu-
spillandi húsnæðis, í kaupstöð-
um og kauptúnum. Meirihluti
bæj arstj órnar Isaf j arðar samþ
í fjárhagsáætlun, 15. febr., áð-
ur en lög þessi gengu í gildi,
32 þús. kr. framlag til væntan-
legrar löggj afar um þetta efni.
4—5 mán. eftir að lögin tóku
gildi var byrjað að grafa fyrir
stórhýsi með 12 fyrsta flokks
íbúðum. Nú i vor, þremur ár-
um eftir að lögin voru sett,
verða þessar íbúðir væntanlega
fullbúnar. Isafjörður er eini
bærinn á landinu utan Reykja-
víkur sem hafizt hefur handa
um útrýmingu heilsuspillandi
húsnæðis samkv. lögunum.
Árið 1931 voru samþ. lög á
Alþingi um verkamannabú-
staði. Þáverandi meirihluti
bæj arstj órnar Isafj arðar, Al-
þýðuflokkurinn sveikst um að
greiða lögákveðið framlag til
byggingarsj óðs verkamanna
skv. þeim lögum í 10 ár. Loks
1944 eða 13 árum eftir að lög-
in um verkamannabústaði
voru sett voru fyrstu 16 íbúð-
imar fullgerðar. Flestir ef ekki
allir aðrir kaupstaðir Jandsins
voru þá löngu búnir að reisa
fjölda verkamannabústaða. T.
d. má nefna, að Hafnarfjörður
er nú búinn að byggja yfir 80
íbúðir, en það er hlutfallslega
miðað við íbúatölu bæjanna
um þrisvar sinnum fleiri íbúð-
ir, en hér á Isafirði. Ólíklegt er
þó að þörfin á verkamannabú-
stöðum sé meiri í Hafnarfirði.
— Þétta kallar Birgir Finnsson
hina raunhæfu stefnu Alþýðu-
flokksins í húsnæðismálum.
Þessar tvær inyndir sýna
ljóslega muninn á vinnubrögð-
um núverandi og fyrrverandi
ráðamönnum jiessa bæjar í
húsnæðismálunum.
------0------
Hannibal gleymdist?
Er Alþingi kom saman til
fundar 21. þ.m. var frá því
skýrt í þingfréttum og innlend-
um fréttum útvarpsins, að 11
nafngreindir utanbæjarþing-
menn væru ókomnir til þings.
Hvorug fréttin taldi Hannibal
Valdimarsson, sem þá var
staddur hér á Isafirði, ókom-
inn til þings. Annað hvort hef-
ur skrifstofa Alþingis gleymt
að Hannibal væri þingmaður,
eða þá að hún telur hann ekki
utanbæjarþingmann, heldur
húsettan Reykvíking. Er síðari
skýringin mjög eðlileg, þar
sem hann er fluttur með allt
sitt hús og hafurtask inn í
Kleppsholt.
------0------
1 bréfi frá Roskilde, sem bæj
arstjóra barst fyrir skömmu
varðandi keppni í skotfimi,
sem í ráði er að efna til þar í
bæ nú í sumar á vegum Skot-
mannasainbands Sj álands og
Skotfélags Roskilde, segir á
þessa leið:
„Samkvæmt upplýsingum
frá Norrænafélaginu höfum
við fengið að vita, að Isafjörð-
ur hefur nú gerzt vinabær Ros-
kilde á sama hátt og Tönsberg
í Noregi, Linköping í Svíþjóð
og Joensuu í Finnlandi.
I tilefni þessa bjóðum við
Isafjörð Velkominn til vináttu-
samstarfs á Norðurlöndum.
Þar sein við höfum boðið
skyttum frá liinum vinabæjun-
um á Norðurlönduin að taka
þátt í samkeppni í skotfimi,
sem ákveðið hefur verið að
efna til í lok j úlímánaðar sum-
arið 1949 hér i Roskilde, vilj-
um við hér með einnig bjóða
allt að átta skotmönnum frá
Isafirði að taka þátt í mótinu.
Ekki hefur ennþá verið endan-
lega ákveðið hvaða mánaðar-
daga mótið verður haldið, en
það mun yður verða tilkynnt
innan skamms.
Það er ætlunin að keppt
verði í skotfimi á 50 m. færi
(alþjóðaskotmark), á 250 m.
færi (minna alþjóða skot-
mark); undirbúin er á sama
tíma keppni í skotfimi með
skammbyssu (Grovpistol), sem
íþróttafélag Iögreglunnar
gengst fyrir, og væri því mjög
ánægjulegt ef innan lögreglun-
ar á Isafirði væru menn, sem
hefðu æfingu í að skjóta í
mark úr hinum mismunandi
fjarlægðum.
Skotkeppnin úr 250 m. fjar-
Úr bæ og byggð.
Steinn Leós fimmtugur.
Steinn Leós, slcrifstofustjóri,
átti fimmtugsafmæli 21. þ.m.
Steinn hefur um langt skeið
starfað við bæjarskrifstofuna
og unnið þar mikið og gott
starf, enda áunnið sér traust og
virðingu allra, er við liann
hafa skipt. Hann er með af-
brigðum samvinnuþýður mað-
ur, skemmtilegur og gaman-
samur í daglegri umgengni.
Steinn liel'ur starfað mikið í
Leikfélagi Isafjarðar og leikið
í mörgum hlutverkum og leyst
þau prýðisvel af hendi. Hann
hefur á síðustu árum þráfald-
lega gegnt störfum bæjarstjóra
í fjarveru hans.
Vesturland óskar honum til
hamingju með afmælið.
Isborg
kom úr 13 daga veiðiför að-
faranótt mánudags 24. þ.m.
með fullfermi. Hún lagði strax
af stað áleiðis til Englands með
aflann.
Mænuveikin
hefur breiðzt út. Hefur orðið
vart 10—20 tilfella, þar al'
nokkur með lömunareinkenni.
Aðeins eitl tilfelli mun þó al-
varlegt. Þeir sem fyrst fengu
veikina eru á góðunr batavegi.
Ekki er líklegt að samkomu-
banninu verði létt af fyrst um
sinn.
lægð (minna alþjóða skot-
mark) er framkvæmd með
sænskum handbyssum með
opnum hjálparmiðunum og
lánum við byssur til frjálsrar
afnota við skotkeppnina. Úr 50
m. fjarlægð er frjálst hvernig
hyssuv eru notaðar. Þátttakend
ur þurla ekki að taka með sér
hyssur.
Ef til vill verður einnig tæki-
færi til þess að keppa í hrað-
skotakeppni á 250 m. færi.
I sambandi við kostnað (gist-
ingu, dvöl, veizlur o.fl.) vilj-
um við taka það fram, að á
meðan dvalið er í Roskilde eru
þátttakendur gestir okkar, og
reynt mun verða, eftir ástæðum
að útvega þeim gistingu á
einkaheimilum."
Vesturlandi er ekki kunnugt
um hvort margt er hér góðra
skotmanna í bænunr, enda hef-
ur sú íþrótt lítið verið iðkuð
hér á landi, fram til þessa, en
þeir sein hefðu áhuga fyrir að
fá fyllri upplýsingar í þessu
sambandi, geta snúið sér tjl
bæjarstjóra. Nauðsynlegt er að
geta gefið ákveðin svör um
þátttöku héðan, hvað mót þetta
sncrtir, fyrir næskomandi mán
aðarmót.