Vesturland - 01.12.1955, Side 1
w \y & mm sss a/essrFwzxíiH sam m iFsarm»SMmtNR
XXXn. árgangur. Isafjörður, 1. desember 1955. 14,—15. tbl.
fflutdeildar- og arðskiptafyrirkomulag
í atvinnurekstri íslendinga.
t'íngsályktunartillaga:
Tengja ísafjörð, Bolungavík og Hnifs-
dal með sjáifvirku símakerfi.
Þeir Sigurður Bjarnason, Gunn-
ar Thoroddsen og Magnús Jónsson
hafa fyrir nokkru lagt fram á Al-
þingi eftirfarandi þingsályktunar-
tillögu:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta rannsaka og
gera tillögu um, hvar og hvernig
megi bezt koma á hlutdeildar- og
arðskiþtifyrirkomulagi í atvinnu-
rekstri íslendinga og á hvern hátt
þing og stjórn geti stuðlað að eíl-
ingu slíks fyrirkomulags. Skal rík-
isstjórnin hafa samráð við fulltrúa
frá samtökum atvinnurekenda og
launþega um þetta undirbúnings-
starf, er skal lokið eins fljótt og
möguleikar eru á.“
í greinargerð fyrir tillögunni
segir m. a.:
„Hagsmunaárekstrar gerast nú
stöðugt tíðari milli vinnuveitenda
og verkalýðs í hinu íslenzka þjóð-
félagi. Efnahags- og afkomugrund-
völlur þjóðarinnar verður við þess-
ar deilur ótraustari. Engra úrræða
má því láta ófreistað til þess að
sætta vinnu og fjármagn, koma á
friði milli þeirra, sem stjórna at-
vinnutækjunum, og þeirra, sem
vinna við þau. Mjög líklegt verður
að telja, að stórt spor væri stigiö
í þá átt með því að gera verka-
mennina, sjómennina eða iðnaðar-
mennina að meðeigendum og með-
stjórnendum í atvinnufyrirtækjun-
um, þar sem því verður við komið.
Að því takmarki stefnir þessi til-
laga.“
„Hér skal atvinnufyrirkomulagi
þessu lýst nokkuð. Arðskiptifyrir-
komulagið gengur út á það að
veita starfsmönnum fyrirtækjanna
hlutdeild í arði þeirra. Er það eitt
út af fyrir sig mjög þýðingarmik-
ið ati’iði og mjög til bóta frá því,
sem nú er víða. Oft er samfara
arðskiptingunni eftirlit og nokkur
stjórnaríhlutun af hálfu verka-
mannanna. En hlutdeildarfyrir-
komulagið sjálft miðar að því að
veita starfsmönnum fyrirtækjanna
áhrifavald í fyrirtækjunum, ekki
einungis með þeim hætti að gera
þá hluttakandi í arði fyrirtækj-
anna; heldur með því að gera þá
beinlínis að meðeigendum þeirra.
Yfirleitt er það stefnumið þeirra
manna, sem berjast fyrir þessu
máli, að allir verkamenn fyrirtækj-
anna hafi hluttöku í arði þeirra,
eignist hluti í þeim og hafi íhlut-
un um stjórn þeirra eða eftirlit
með henni. Má í sem styztu máli
segja, að grundvallarsetningar
þessa fyrirkomulags séu:
1. að verkamennirnir fái auk
hinna föstu launa einhvern hluta
í arðinum;
2. að þeim gefist kostur á að
safna arðhluta sínum, eða ein-
hverjum hluta hans, til þess með
honum að eignast hluta í atvinnu-
fyrirtækjunum;
3. að þeir fái hlutdeild í stjórn
fyrirtækjanna, annaðhvort með
því: a) að eignast hlutafé og verða
á þann hátt aðnjótandi réttinda
venjulegra hluthafa, eða með því:
b) að nefnd verkamanna hvers fyr-
irtækis hafi íhlutun um rekstur
þess.
Eru þetta þær grundvallarsetn-
ingar, sem sérstaklega hefur verið
byggt á í þessu efni. En fjölbreytni
fyrirkomulagsins er svo takmarka-
laus, enda hægt að beita því við
svo til allar greinar atvinnulífs-
ins. Er fengin í þessum efnum mik-
il reynsla erlendis.“
Sjálfstæðisfélag Isfirðinga hélt
umræðufund s.l. þriðjudag um bæj-
armál og fræðslumál.
Högni Þórðarson bæjarfulltrúi
hafði framsögu um bæjarmál.
Rakti hann gang bæjarmálanna á
yfirstandandi kjörtímabili og þátt
Sjálfstæðismanna í því að fá meiri-
hluta bæjarstjómar í nauðsynlegar
framkvæmdir.
Guðjón Kristinsson skólastjóri
hafði framsögu um fræðslumál og
rakti hann í stómm dráttum sögu
almennrar fræðslu hér á landi og
gaf ítarlegar upplýsingar um
námsefni gagnfræðastigsins, til-
högun kennslu og prófa.
Þeir Kjartan Jóhannsson og Sig-
urður Bjarnason hafa nýlega lagt
fram á Alþingi þingsályktunartil-
lögu um að tengja Isafjörð, Bol-
ungavík og Hnífsdal með sjálf-
virku símakerfi.
Tillagan er á þessa leið:
Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta athuga
möguleika á því að setja upp
sjálfvirkar símastöðvar á Isa-
firði, í Bolungavík og Hnífs-
dal. Ennfremur að hraðað
verði nauðsynlegum ráðstöf-
unum til að bæta símasamband
þessara byggðarlaga og Vest-
fjarða í heild við aðra lands-
hluta.
I greinargerð segja flutnings-
menn, að þessir þrír staðir séu
stöðugt að verða samfelldari at-
vinnuheild. Skammt er á milli
þeirra og ganga stöðugar hi’inging-
ar á milli þeirra eins og væru þeir
allir innan sama bæjar. öllum tog-
arafiski, sem vinna skal á þessum
stöðum er landað á ísafirði. Er þá
oft mjög bagalegt, að ekki skuli
Báðar framsöguræðurnar voru
fróðlegar og ítarlegar og að þeim
gerður góður rómur.
Umræður um báðar þessar fram-
söguræður urðu nokkrar og tóku
til máls þeir: Matthías Bjarnason,
Kristján Guðjónsson, Samúel
Jónsson og auk þeirra báðir frum-
mælendur, sem svöi’uðu fyrir-
spurnum.
Að loknum umræðum var kvik-
myndasýning. Fundarstjóri var
Guðmundur B. Jónsson og fundar-
ritari Gísli Kristjánsson. Fundur
þessi var mjög ánægjulegur og
gagnlegur.
■ -oOo......
vera opið símasamband milli þess-
ara byggða allan sólarhringinn.
Bráð nauðsyn fjölsíma-
sambands.
Telja flutningsmenn víst að ekki
líði á löngu þar til sjálfvirk síma-
stöð verði sett á Isafjörð, en þá
er réttara að taka það strax til
athugunar að hafa hina bæina
einnig með í hinni sjálfvirku stöð
og ef til vill einnig Súðavík. Enn-
fremur er nauðsynlegt að fá hið
bráðasta fleiri fjölsímasambönd
frá Vestfjörðum við aðra lands-
hluta.
-----oOo----
Verður Hafnarstræti
malbikað að sumri?
Fyrir nokkru síðan fluttu Sjálf-
stæðismenn í bæjarstjórn eftirfar-
andi tillögu:
„Bæjarstjórn samþykkir að feia
bæjarstjóra að láta gera áætlun
um hvað kosta muni að malbika
Hafnarstræti (frá Túngötu), Silf-
urtorg niður Aðalstræti og Suður-
götu að bátahöfn. Einnig verði
gerð kostnaðaráætlun um stein-
steypu á þessum sömu götum.
Báðar þessar áætlanir verði síð-
an lagðar fyrir bæjarstjórn eins
fljótt og kostur er á.“
Tillaga þessi var samþykkt með
samhljóða atkvæðum allra bæjar-
fulltrúa.
Nauðsynlegt er að hraða því að
þesssi áætlun verði gerð áður en
fjárhagsáætlun verður endanlega
afgreidd í byi’jun næsta árs. Göt-
urnar hér á ísafirði eru oft í lé-
legu ásigkomulagi, en út yfir hef-
ur tekið í haust bleytan og aur-
inn, svo varla hefur verið fært um
nema í stígvélum, enda óvenjú
miklar haustrigningaf.
Þess er að vænta að bæjarstjórn
sýni áhuga fyrir því að bæta hér
um og láti þegar að vori malbika
eða steypa eftir því sem betur er
talið henta, aðalgötu bæjarins.
Slík framkvæmd myndi vissulega
vera öllum bæjarbúum að skapi.
Sjálfstæðisfélag lsfirðinga:
Ágætur umræðufundur um bæjarmál
og fræðslumál.