Vesturland

Volume

Vesturland - 01.12.1955, Page 3

Vesturland - 01.12.1955, Page 3
VESTURLAND 3 Eiríkur Br. Finnsson, áttræður. Eiríkur Br. Finnsson verkstjóri varð áttræður þ. 10. f. m. Gat hann þá litið til baka yfir langan og farsælan æfiferil. Hann er Ön- firðingur að ætt, fæddur að Kirkju- bóli í Valþjófsdal, sonur Finns bónda Eiríkssonar þar og konu hans Guðnýjar Guðnadóttur, sem bæði voru komin af kunnum og merkum ættum hér vestra. Tæplega var Eiríkur kominn af barnsaldri er hann fór að hafa fyr- ir lífinu. Árið 1888, tæpra 13 ára, fór hann til sjós á hákarlaveiðar á kútter „Sigríði“ með Helga An- dréssyni skipstjóra, og aftur sum- arið eftir á kútter „Guðnýju" með Eyjólfi skipstjóra Bjarnasyni. Eft- ir það var hann tvö ár við nám hjá Matthíasi Ólafssyni í Hauka- dal, síðar kaupmanni þar, og sagði þá um leið skilið við sjó- mennskuna. Árið 1894, þá 19 ára gamall, gerðist Eiríkur verkstjóri hjá verzlun Á. Ásgeirssonar á Flateyri og var við það starf til ársins 1901, er hann fluttist hingað til bæjar- ins og varð verkstjóri hér í Neðsta- kaupstað hjá sömu verzlun. Hélt hann því starfi áfram óslitið með- an verzlunin var rekin, eða þar til hún var seld Hinum sameinuðu ís- lenzku verzlunum þ. 1. des. 1918. En hann var þá ráðinn verkstjóri áfram hjá hinum nýju eigendum og hélt því starfi þar til þær verzl- anir voru lagðar niður 1927. Tók hann þá Edinborgareignina hér á leigu og rak þar umfangsmikil fiskkaup og fiskverkun í tvö ár. Eftir þetta gerðist Eiríkur verk- stjóri hjá Togarafél. Isfirðinga h/f og síðan hjá togarafélaginu Val- ur h/f og var við þau störf öll þau ár, sem þessi félög störfuðu hér. Fiskimatsmaður var hann skipað- ur 1936, og hefur fengist við það starf allt fram að þessu, þrátt fyr- ir aldur sinn, enda vel ern og frár á fæti og lítil ellimörk að sjá á honum enn. Eiríkur hefir nú dvalið hér í bænum í 54 ár, og á þeim tíma áunnið sér vináttu og virðingu allra þeirra, sem komist hafa í ein- hver kynni við hann, en þeir eru orðnir margir á þeirri löngu leið, eins og eðlilegt er um mann, sem lengst af var verkstjóri hjá lang umfangsmesta atvinnufyrirtæki landsins á þeim tíma, og hafði yf- ir mörgum hundraða karla og kvenna að segja árlega. Um það leyti er Eiríkur lét af verkstjóra- störfum, var hann sæmdur ridd- arakrossi fálkaorðunnar fyrir störf sín, og var það að makleg- leikum. Dugnaður, hagsýni og frábær trúmennska hafa ávalt einkennt alla starfsemi Eiríks Finnssonar, og lætur því að líkum, að hann hafi gert sömu kröfur í þeim efn- um til þeirra er hann átti yfir að segja og var hann því af sumum talinn vinnuharður. En þrátt fyrir það munu allir þeir sem unnu und- ir stjóm hans, karlar sem konur, ávalt bera hlýjan hug til Eiríks. Eiríkur Br. Finnsson. Drenglyndi hans og aðrir mann- kostir hafa ráðið því, að hann mun engan óvildarmann hafa eignast fyrr eða síðar. Eiríkur er tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Jóhönnu Hjálmarsdótt- ur, Jónssonar prests á Stað á Reykjanesi, missti hann árið 1908, og er ekkert barna þeirra á lífi. Síðari konu sinni, Kristínu Einars- dóttur frá Hríshóli í Reykhóla- sveit, giftist hann árið 1911, og hefir hjónaband þeirra verið hið farsælasta, enda Eiríkur alltaf ver- ið frábær heimilisfaðir og þau hjón samhent í öllu. Börn þeirra sex eru öll hin mannvænlegustu. Eru þau öll farin að heiman nema elzti sonur þeirra, Jóhann fiski- matsmaður, sem heldur heimili með foreldrum sínum í hinu gamla „f aktorshúsi' ‘ N eðstakaupstaðar- ins, sem Eiríkur hefir bundið mikla tryggð við. Fánar blöktu hér við hún um allan bæinn á afmælisdaginn, og börn Eiríks, ættingjar og vinir, ut- anbæjar og innan, fjölmenntu á heimili þeirra hjóna þennan dag, til að færa hinu aldraða afmælis- barni heillaóskir, og var þar setið í góðum fagnaði fram á nótt. Þá barst og afmælisbarninu mikill fjöldi heillaskeyta víðsvegar að auk gjafa frá vinum og vanda- mönnum. Varð dagur þessi hinn ánægjulegasti í alla staði og leiddi berlega í ljós, hversu miklum vin- sældum þessi heiðursmaður á að fagna hjá samborgurum sínum. • Ég, sem þessar línur rita, kynnt- ist Eiríki strax og ég sem ungl- ingur byrjaði að starfa við Ás- geirsverzlun, en það var einu ári eftir að hann fluttist til bæjarir.s. Varð með okkur þegar góð vin- átta og hefir haldist síðan, án þess nokkurntíma hafi fallið skuggi á. Ég vil að lokum óska þess, að Halldér M. Ólatsson frá Berjadalsá. Nokkur minningarorð. Halldór Marias Ólafsson er fæddur að Berjadalsá í Snæfjalla- hreppi, 2. nóvember 1894. Foreldr- ar hans voru Margrét Bjamadóttir og Ólafur Bjamason á Berjadalsá. Eignuðust þau hjón 5 böm, og dóu 3 þeirra í æsku, en upp komust þeir Halldór og Þorgeir, sem bú- settur er hér í bæ. Halldór Ólafsson hóf lífsstarf sitt ungur að árum. Hann byrjaði sjómennsku barn að aldri frá heimastöðvum sínum á Snæfjalla- strönd og varð formaður á bát strax á unglingsaldri og réri þá lengst af frá Bolungavík. Halldór fluttist frá Berjadalsá til Hnífsdals 1926, en hingað til Isafjarðar fluttist hann árið 1931 og var hér búsettur í 20 ár, en þá fluttist hann til Reykjavíkur far- inn að heilsu, og þar bjó hann til dauðadags 12. september s.l. Halldór stundaði sjómennsku lengst af ævi sinnar, fyrst á ára- bátum, síðan vélbátum og togur- um. Löngum átti hann eigin bát og stundaði róðra af kappi og elju- semi, sem honum var ríkulega í blóð borin. Seinni búsetuár sín hér á Isafirði var Halldór verkstjóri hjá útgerð Björgvins Bjamasonar. Öll störf sín rakti Halldór af trúmennsku og skyldurækni. Hús- bóndahollusta hans var með fá- dæmum. Öllu því, sem aðrir trúðu honum fyrir, fór hann með eins og hver og einn getur bezt gert fyrir sjálfan sig. Strax barn að aldri var hann hamhleypa til vinnu og hirti þá ekki um að gæta krafta sinna og heilsu sem skyldi, enda bilaði heilsan of snemma og þessi vinnusami dugnaðarmaður varð síðustu árin að láta sér nægja að horfa á aðra vinna. Ég sá hann oft síðustu árin niður við höfn- ina syðra, þegar fiskilandanir stóðu yfir. Útgerðin, fiskurinn og vinnan átti hug hans allan. Halldór Ólafsson var þéttur á velli og þéttur í lund. Hann var fastur fyrir í skoðunum, hafði áhuga fyrir stjórnmálum og kunni góð skil á þeim. Hann átti sínar eigin skoðanir og lét ekki aðra skipa sér hverju trúa skuli í þeim efnum. Halldór kvæntist 13. desember æfikvöld Eiríks vinar míns Finns- sonar megi verða bjart og frið- sælt og hann fái að njóta góðrar elli. Um leið þakka ég honum fyr- ir hans löngu og traustu vináttu og fyrir margar glaðar og góðar liðnar stundir. Bið ég svo honum, konu hans og börnum allrar far- sældar á ófarinni æfi. J. Gr. Sigurður J. Dablntann umdæmisstjóri látinu. Sigurður J. Dahlmann umdæm- isstjóri Pósts og síma hér á Isa- firði andaðist að Sjúkrahúsi Isa- fjarðar 19. nóvember s.l. Sigurður var fæddur á Seyðisfirði 31. marz 1899 og voru foreldrar hans Ingi- björg Jónsdóttir og Jón J. Dahl- mann. Minningarathöfn um Dahlmann fór fram í ísafjarðarkirkju 26. þ. m. að viðstöddu miklu fjöl- menni. Lík hans var flutt til Reykjavíkur til brennslu. Sigurður J. Dahlmann var kvæntur Guðlaugu Jónsdóttur frá Tannstaðabakka og hafa þau hjón eignast fjögur börn og er það yngsta tólf ára. Siguröar Dahlmanns verður nán- ar minnst síðar hér í blaðinu. 1922 Ólöfu Fertrantsdóttir frá Grunnavík og eru börn þeirra þessi: Bjarni, Guðbjörg, Gunnar, Ólafur, Ingólfur, Margrét og Ragn- heiður. Auk þess ólu þau hjón upp Margréti Friðbjörnsdóttir, sem bú- sett er hér í bæ. Það var ærið starf og ekki heiglum hent að koma þessum stóra bamahóp upp. En þeim Ólöfu og Halldóri tókst með dugnaði og guðsvilja að annast uppeldi barna sinna og koma þeim vel til manns. Með Halldóri ólafssyni er í val- inn fallinn góður og traustur drengur, vinsæll og virtur af sam- ferðarmönnum sínum, sem sakna hans sárt. Konu hans, börnum og bróðir og öðru vandafólki sendi ég innilegar samúðarkveðjur. En þó Halldór sé horfinn héðan, þá lifir ennþá hjá öllum og þó sér- staklega hjá þeim, sem þekktu hann bezt, ljúfar minningar um heilsteyptan og góðan mann, sem á lífsbraut sinni verðskuldaði að vera kallaður sæmdarmaður. Guðs- blessun fylgi þessum drengilega vestfirzka sjómanni á hans nýju leiðum. M. Bj. GÓÐ ÍBÚÐ TIL SÖLU. Neðri hæð húseignarinnar Tún- götu 17 ásamt hálfum kjallara og tilheyrandi leigulóð er til sölu. Allar upplýsingar gefur JÓN GRÍMSSON Aðalstræti 20. Stúlka óskast ÞVOTTALAUGIN h/f. Plötur, plötuspilararnir komnir. VERZLUNIN RÚN

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.