Vesturland - 01.12.1955, Qupperneq 4
4
VESTURLAND
TIL SÖLU.
Austin vörubifreiðin I 145, módel 1946, í fyrsta flokks ásig-
komulagi, með nýrri vél, gír, fjöðrum og bremsuborðum.
Bíllinn er á góðum dekkjum. — Upplýsingar gefur
SIGURÐUR A. GUÐMUNDSSON
Aðalstræti 17, ísafirði, sími 47.
Atvinnutæki seld úr bænum.
.l■lllllllllllllt■ll■ll■!l■li■llllllllllllllllllllllllllllllll■ll■llllllillll■llllllllllllll|||||llillll■ll■llllllillll■lllll||l■)llll■lllllllllllllllllllllll■ll
Hjartans þakkir færum við safnaðarfólki og kærum vinum |
| í Vatnsfjarðarprestakalli, sem heiðruðu okkur með veglegu 1
| kveðjusamsæti og góðum gjöfum við brottför okkar úr hérað- |
| inu. Við þökkum einnig ástúðlegt samstarf og einlæga vináttu 1
i frá fyrstu kynnum. |
| Laufey og Þorsteinn Jóhannesson |
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
ijiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiIiiiiiiiiii
| Ég þakka hjartanlega vinsemd, heillaóskir, blóm og gjafir á |
| sextugsafmælinu. |
Jón Guðjónsson.
Báðir Svíþjóðarbátar Njaröar-
félagsins, Hafdís og Freydís, hafa
verið boðnir upp samkvæmt kröfu
Stof nlánadeildar s j ávarút vegsins
og hefur stofnlánadeildin auglýst
þá til sölu og hefur heyrst að Haf-
dís sé þegar seld og verði skrá-
setningarstaður hennar á Þingeyri.
Þá mun það einnig ákveðið að
Samvinnufélag ísfirðinga selji tvo
af sínum bátum Vébjörn og Gunn-
björn suður á Snæfellsnes.
Það verður að segja eins og er,
að vélbátaútgerðin hefur dregist
hér mjög saman á undanförnum
árum og útgerð þessara skipa ver-
ið starfrækt af skornum skammti
sumpart vegna skorts á sjómönn-
um og ennfremur og ekki síður
vegna fjármálaerfiðleika.
Það hlýtur að vera mönnum
mikið áhyggjuefni að sjá á bak
framleiðslutækjum, ef möguleikar
hefðu verið á því að starfrækja
þau. En bezt verður skarð þeirra
fyllt með því að skapa þeirri út-
F.O.S.1.10 ára.
F.O.S.I. félag opinberra starfs-
manna á ísafirði minntist 10 ára
afmælis síns með hófi að Norður-
pólnum 24. f. m. Félagið er stofn-
að 20. september 1945. Stofnend-
ur voru 19 starfsmenn bæjar og
bæjarstofnana og sýsluskrifstof-
unnar. • Fyrstu stjórn félagsins
skipuðu Jón A. Jóhannsson yfir-
lögregluþjónn, sem var formaður,
Baldvin Þórðarson bæjargjaldkeri
og Ragnar G. Guðjónsson, inn-
heimtumaður. Félagið hefur mest
látið að sér kveða í kjara- og
launamálum meðlima sinna og er
það innan bandalags starfsmanna
ríkis og bæja og hefur ávalt sent
fulltrúa á þing þess.
1 núverandi stjóm félagsins eiga
sæti: Guðmundur G. Kristjánsson
skrifstofustjóri, sem er formaður,
Haraldur Jónsson sjúkrasamlags-
gjaldkeri og Halldór ólafsson
bókavörður.
----oOo----
Línubátar.
Línubátar hafa fyrir nokkru
hafið róðra frá ísafirði, Hnífsdal,
Bolungavík og Suðureyri. Afli hef-
ur verið sæmilegur.
gerð sem eftir er betri skilyrði og
tryggari starfsgrundvöll en nú er.
Hér á Isafirði hefur þáttur vél-
bátaútgerðarinnar farið síminnk-
andi á undanförnum árum, en hlut-
deild togaraútgerðar farið mjög
vaxandi. Framleiðsla fiskiðnaðar-
ins hefur mestmegnis verið komið
undir togurunum, þeim togurum
fyrst og fremst, sem hér eiga
heima, og einnig aðkomu togurum
sem hafa lagt hér á land töluvert
fiskmagn. Þörfin fyrir þriðja tog-
arann er orðin brýn og því máli
þarf að hrinda í framkvæmd, sem
allra fyrst.
---oOo----
Tilkynning frá áfengis-
varnarráði:
Sala á áfengi
frá Áfengisverzlun ríkisins 1./7.—
30./9. 1955: Selt í og frá Reykja-
vík kr. 22.564.461,00. Selt í og frá
Seyðisfirði kr. 766.577,00. Selt í
og frá Siglufirði kr. 2.044.823,00.
Samtals kr. 25.375.861,00. Annan
ársfjórðung seldi verzlunin fyrir
kr. 20.581.866,00. Fyrsta ársfjórð-
ung nam salan kr. 17.346.421,00.
Fyrstu þrjá ársfjórðungana nam
salan kr. 63.304.168,00, en allt ár-
ið 1954 nam salan alls rúmum 84
millj. kr., en þess skal geta, að
verðhækkun fór fram á áfengum
drykkjum á þessu ári.
---oOo----
Nlðnrsuðuve rksni ið j -
an h.f. flytnr i
nýtt húsnæði
Niðursuðuverksmiðjan h.f. hefur
byggt nýtt húsnæði fyrir starfsemi
sína. Er hús þetta byggt á Torf-
nesi og er stærð þess um 350 fer-
metrar að flatarmáli. Húsið er ein
hæð, hlaðið úr vikursteini og hef-
ur bygging þess staðið yfir fjóra
mánuði.
Um 100 manns geta unnið þar
í einu. Vinnusalur og allt fyrir-
komulag í húsinu er mjög vandað
og vel fyrirkomið.
Verksmiðjan tók til starfa í hinu
nýja húsnæði 24. nóvember. Fram-
kvæmdastj. Niðursuðuverksmiðj-
unnar h.f. er Böðvar Sveinbjarn-
arson.
Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Innilegt þakklæti til allra sem vottuðu vináttu og samúð
við fráfall og jarðarför
SIGRIDAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Aðalstræti 17, ísafirði.
Guðmundur E. Sæmundsson.
Við þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður
okkar, tengdamóður og ömmu, Sigríðar Kristjánsdóttur.
Sérstaklega þökkum við sjúkrahúslækni Úlfi Gunnarssyni,
umhyggja þá og alúð er hann sýndi henni í langri og erfiðri
legu.
Ennfremur Hermaníu Brynjólfsdóttur og Ingibjörgu Einars-
dóttur auðsýnda vinsemd.
Böm, tengdabörn og barnabörn.
Vantar kvenfólk og karlmenn til starfa í frystihúsi voru í
vetur. — Fæði og húsnæði.
Upplýsingar gefa Gísli Þorsteinsson og Þorsteinn Sigurðsson.
Fiskiðjan h.f.
Vestmannaeyjum.
A9ALFDNDUI
KAUPFÉLAGS ÍSFIRÐINGA
verður haldinn í Templarahúsinu á ísafirði sunnudaginn 4. des-
ember næstkomandi og hefst kl. 1 e. h.
Dagskrá samkvæmt féiagslögum.
Isafirði, 23. nóvember 1955
STJÓRNIN.
"iMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiiiJiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii niiiijiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiin i iiijiuiini M m i iii iii iiiuiniii
M líður að jólum.
Nýkomið: Veggfóður, ennframur allir |
| litir af gummímálningu og Hörpusilki.
( Guömnndur E. Sæmundsson og synir. |
........................................