Vesturland

Árgangur

Vesturland - 01.12.1955, Síða 6

Vesturland - 01.12.1955, Síða 6
1H 2/essrFtnzwfíH saúGFsarmmmxm XXXII. árgangur. ísafjörður, 1. desember 1955. 14.—15. tölublað. Simdltollin verður lokuð i vetur. Gleymdu að panta efni til viðgerða og ráða smiði. Úr bæ og byggð. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína Halldóra Guðmundsdóttir, hjúkrunarkona og Jóhann Eiríks- son yfirfiskimatsmaður. Guðrún Dóra Hermannsdóttir verzlunar- mær og Þórir Þórisson Kópavogi. Hansína Vilhjálmsdóttir ísafirði og Guðlaugur Guðjónsson frá Stykkishólmi. Hjúskapur. Sigrún Halldórsdóttir (Gunn- arssonar) og Hringur Hjörleifsson voru gefin saman í hjónband af sóknarpresti 5. nóv. s.l. Afmæli. Helgi Ketilsson Odda ísafirði átti sjötugsafmæli í gær 30. nóv. Helgi er borinn og barnfæddur Is- firðingur og hefur búið hér alla ævi. Hann er greindur maður og mjög víðlesinn og vel látinn af öll- um, sem hann þekkja. Kona Helga er Lára Tómasdóttir og hafa þau hjón eignast sex börn. Frú Anna Sigfúsdóttir, kona Kristjáns H. Jónssonar verk- smiðjueigenda á í dag fimmtugs- afmæli. Frú Anna er mikil mynd- ar og dugnaðarkona og hefur tek- ið merkan þátt í félagsmálum kvenna, einkum slysavamarmálum og kvenfélagsmálum. og hefur nú um nokkur ár verið formaður Kvenfélagsins Óskar. Þau hjón Kristján og Anna hafa eignast tvö börn, sem bæði eru uppkomin. Andlát. Sigríður Guðmundsdóttir, Aðal- stræti 17 Isafirði, andaðist 19. f. m. Hún var fædd 1. ágúst 1888. Jósep Hermannsson í Hnífsdal andaðist í Sjúkrahúsi Isafjarðar 24. október eftir langa vanheilsu, nær áttræður að aldri. Jósep heitinn var um langan tíma bóndi á Atlastöðum í Fljóta- vík. Guðbjörg Sigurðardóttir lézt fyr- ir nokkru á heimili dóttur sinnar Önnu Bjarnadóttir og tengdasonar Ólafs Jakobssonar skósmiðs. Guð- björg var 85 ára að aldri. Togarasölur. ísborg seldi í Þýzkalandi s.l. föstudag 196 tonn fyrir 87300 mörk. Kirkjubyggingasjóður. Kvöldskemmtun verður í Al- þýðtihússinu í k'völd til ágóða fyr- ir : Kirkjubyggingasjóð. Til skemmtunar verður: Ávarp, ræða, einsöngur, þrisöngur kvenna, ferðaþáttur frá Ceylon, Upplestur, einleikur á trompet. Dansleikur verður kl. 11. Ágóði af skemmt- uninni rennur í Kirkjubyggingar- sjóð. 1 mörg ár hefur staðið til að gera nauðsynlegar lagfæringar á Sundhöllinni. Meirihluti bæjar- stjórnar hefur þó alltaf heykst á að framkvæma þessa viðgerð. Á s.l. vetri var þó séð að ekki væri hægt að komast lengur hjá að láta viðgerð fara fram og var ætlað að framkvæma hana nú í sumar. Undirbúningur að þessu verki gleymdist svo gersamlega að hvorki var pantað efni til viðgerð- innar eða menn ráðnir til að vinna verkið. Síðla sumars er þó byrjað að vinna nokkuð innanhúss og í bæjarstjórn er látið í veðri vaka að nú skuli settur kraftur á fram- kvæmd verksins og stefnt að því að ljúka því um áramót svo að sundkennsla gæti þá hafist. En í stað þess að hraða þessu hefur Skrifstofustjóri bæjarins Eyjólf- ur Jónsson, sagði lausu starfi sínu fyrir sex mánuðum síðan og er hann að láta af starfi nú um mán- aðarmótin. Fyrir hálfum mánuði gerðu Sjálfstæðismenn fyrirspurn á bæj- arstjórnarfundi um hvað hefði gerzt í því að fá annan mann til þessa starfs. Bæjarstjóri varð fyrir svörum og sagði hann að ekkert hefði gerzt í málinu. Fluttu Sjálfstæðismenn þá tillögu um að auglýsa starfið laust til umsókn- ar þegar í stað, þar sem þá var liðinn 51/2 mánuður af uppsagnar- tíma Eyjólfs og útilokað að kom- azt hjá því að ráða skrifstofu- stjóra, sem jafnframt er aðalbók- ari. Forseti bæjarstjórnar lagði til að tillögu Sjálfstæðismanna yrði vísað til bæjarráðs og var þaö samþykkt með 5 atkvæðum Fram- sóknarkrata gegn 4 atkvæðum Sjálfstæðismanna. Á bæjarráðsfundi nýlega var til- laga þessi tekin fyrir á ný. Matthí- as lagði til að hún verði samþykkt en Birgir og Jón Jóhannsson, (sem þar mætir í forföllum aðalmanns Framsóknar og er 18 maður á list- anum), lögðu til að frestað verði að auglýsa starfið. Hvað liggur hér á bak við? Um Ieið og Eyjólfur segir upp starfi sínu með sex mánaða upp- sagnarfresti, hefja meirihluta- vinna við verkið verið lögð niður um langan tíma og ekkert gert. Það er því sjáanlegt að sund- kennsla mun falla niður i vetur. Það var hægur vandi að Ijúka þessari viðgerð á Sundhöllinni á sumrinu, ef byrjað hefði verið strax í vor og haldið áfram af full- um krafti í sumar. Núverandi bæjarstjóri hefur haft með höndum undirbúning að viðgerð Sundhallarinnar síðan sumarið 1951 en þá festi hann kaup á tjörupappa á þak hússins og var hann um langt bil geymd- ur í kjallara Iþróttahússins og síð- an seldur eða ráðstafað í annað. Að öðru leyti gleymdist að panta efni fyrr en komið var fram á sumar og söinuleiðis gleymdist að ráða smiði til að vinna verkið. flokkamir karp mikið hvor þeirra skuli ráðstafa starfinu. f þessu stendur lengi og loks þeg- ar það er til lykta leitt þá byrj- ar flokkurinn sem hnossið hlaut að leita eftir manni. Enginn fyrirfannst innanbæjar, sem hafði þekkingu til þess að taka þetta að sér eða kærði sig um. Leitin hefur ekki ennþá borið árangur og þessir karlar eru ekki stærri en það að í sex mán- uði hefur þeim ekki tekizt að fá hæfan mann í þetta starf. En þrátt fyrir það að uppsagnar- frestur Eyjólfs er úti þá neita þessir menn að auglýsa starfið. Að auglýsa störf er bannað hjá núverandi bæjarstjómarmeiri- hluta, klíkustarfsemi og bak- tjaldamakk er þeim kærkomn- ast. Munið að koma fötunum til hreins- unar tímalega fyrir jól. ÞVOTTALAUGIN h/f. Tveir stólar og skemill til sölu tækifærisverð. VERZLUNIN RÚN Jón heldur uppteknnm hætti. Gamli maðurinn í bæjarstjóra- stólnum heldur áfram uppteknum hætti og fékk lögfræðing hingað frá Reykjavík fyrir mánuði síðan, til þess að innheimta hér útsvör og gera lögtök fyrir ógreiddum út- svörum hjá nokkrum gjaldendum. Aldrei er farið fram á heimild bæjarráðs til þess að ráða hingað dýra lögfræðinga. Væri fróðlegt að málgögn meirihlutans gæfu bæjar- búum upplýsingar um hvað Isa- fjarðarbær hefur greitt í þókn- un fyrir þennan innheimtustarfa. ----0O0---- Frú Rapna Pétnrsdóttir látin Frú Ragna Pétursdóttir kona Sigurðar Kristjánssonar fyrv. al- þingismanns andaðist í Reykjavík 21. nóvember s.l. á 52. aldursári. Ragna var fædd 14. ágúst 1904 að Þúfum í Reykjafjarðarhreppi, dóttir Péturs Pálssonar í Brautar- holti í Skutulsfirði. Hún ólst upp hjá föðurforeldrum sínum Páli Ól- afssyni prófasti í Vatnsfirði og Arndísi Pétursdóttir. Ragna giftist 1924 Sigurði Kristjánssyni, þá rit- stjóra hér á ísafirði og hér bjuggu þau hjón sín fyrstu búskaparár. Um 1930 fluttu þau til Reykjavík- ur og hafa búið þar síðan. Þeim varð 11 barna auðið og eru 10 þeirra á lífi. Ragna Pétursdóttir var einstök gæða og mannkostakona. Aðlað- andi viðmót, fágæt lyndiseinkunn og glæsileg persóna eru góðir eig- inleikar sérhvers manns. Alla þessa eiginleika átti Ragna heitin. Allir þeir sem henni kynntust sakna hennar, en sárastur verður harmurinn manni hennar og börn- um, en þeim til huggunar lifir hlý og björt minning ástríkrar eigin- konu og móður. Vestfirzkir vinir þeirra hjóna senda Sigurði og börnum hans innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Rögnu Pét- ursdóttir. M. Bj. ----0O0---- Nýr iniiheimtumailiir bæjarsjóös Jón Á. Jóhannsson innheimtu- maður bæjarins sagði fyrir skömmu lausu starfi sínu og ósk- aði að losna strax frá starfi. Kratar og Framsókn ákváðu að ráða Stefán Stefánsson skósmið í starfið og felldu framkomna ti!- lögu í bæjarstjórn um það að starf- ið yrði auglýst laust til umsókn- ar. í einstaka tilfellum hentar ekki að auglýsa störf, hrökk út úr ein- um bæjarfulltrúa kratanna. Enginn skrifstofnstjóri bjá bænum. Leitin hefur ennþá ekki boriö árangur. Gólfdreglar, gólfmottur, gólfteppi. VERZLUNIN RÚN

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.