Vesturland

Árgangur

Vesturland - 26.03.1960, Blaðsíða 6

Vesturland - 26.03.1960, Blaðsíða 6
6 VESTURLAND Laugardagur, 26. marz 1960 Minuingarsjóður séra Sigurðar Stefánssonar og frú Þórunnar Bjarnadóttur i Vignr Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, SIGURRÓSAR HELGADÓTTUR. Helgi, ólafur og Gunnar Hjartarsynir. ÞAKKARAVARP. Okkar hjartans þakklæti færum við öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og vináttu við fráfall og jarðarför unnusta mins og sonar okkar EIRIKS GUÐMUNDSSONAR, Súðavík. Guð blessi ykkur öll. Ásta Gísladóttir, Guðrún Eiríksdóttir, Guðmundur Guðnason. ÞAKKARÁVARP. Innilegt þakklæti til Grunnavíkurfélagsins fgrir hina rausnarlegu gjöf og hin vinsamlegu ummæli, og bið ég því guðsblessunar á komandi ári með þökk fgrir liðið. tíúö í Hnifsdal, 2.9. deseniber 1959. HJÁLMFRlÐUR JÓNATANSDÓTTIR. ttllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllMlilllllilllllHI Auglýsing eftir tillögfum um nöfn nýrra gatna. | | Bæjarráð ísafjarðar óskar eftir tillögum eða uppástungum frá | | bæjarbúum um nöfn á nýjum götum. | | 1. Á Gróðrarstöðvartúni (4). 1 | 2. ofan Hlíðarvegar (1), | | 3. ofan Seljalandsvegar utan við Engi (1), | | 4. á hafnarbakkanum (4). | Lóðaskrárritari gefur nánari upplýsingar. | | Tillögur óskast afhentar bæjarskrifstofunni eða sendar bæjar- 1 | ráði í pósti. | | 10. febrúar 1960. 1 | Bæjarráð Isaf jarðar. iiílllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll lll■lllllllllllllllllllllll■llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll■lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll■llllllllllllllllllllllllll Tilkynning frá Rafveitu Isafjarðar. Ný gjaldskrá, sem gildir frá 1. janúar 1960, liggur frammi á skrifstofu Rafveitunnar til athugunar fyrir rafmagnsnotendur. Rafveita Isafjarðar. ■ 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111II lllllllllllllllllll III illlllllllll IIIHI111111111111111111111111111111111111111111111111111111" Nýkomið í Verzlun DAGSBRUN Margir litir af kjólataui. Svart spejl-flauel, sérlega fallegt. Ódýr kven- og herranærföt. Krepnylonsokkar á kr. 55,00. Plast, glært. Gólfrenningar, þýzkir, breidd 90 sm. og 70 sm. Allt með gamla verðinu Höfðingleg gjöf. Ég vil fyrir hönd Kvennadeild- arinnar á Isafirði þakka þá stór- höfðinglegu gjöf, kr. 3 968,83, sem frú Steinunn Jakobsdóttir afhenti á fundi þann 29. janúar s.l. frá Átthagafélagi Sléttuhrepps. Þessi gjöf var til minningar um látna sjómenn í Sléttuhreppi. Gjöfin lýsir kærleika og tryggð þessa fólks við sitt gamla byggðar- lag. , Sigríður Jónsdóttir. Minningarsjóður þessi er stofnaður til minningar um áðurnefnd hjón af niðjum þeirra og fósturbörnum á 100. ártíðardegi séra Sigurðar 30. ágúst 1954. Tilgangur sjóðsins er að verð- launa afrek búenda innan Norður- ísafjarðarsýslu, og skal einkum tekið tillit til við verðlaunaveiting- ar úr sjóðnum eftirtalinna atriða: a. Fagra og hagfellda húsaskipun og húsagerð á býlum búenda, gott viðhald húsa og vel hirt umhverfi þeirra, svo og snyrti- lega umgengni utan húss og innan. b. Góða gerð og hirðingu mat- jurtagarða og skrúðgarða. c. Vel gerð skjólbelti af trjám og runnum um tún og akra bú- enda, svo og vel gróðursettan og varinn nytjaskóg. Má verðlauna afrek, sem lýst er í einhverjum ofangreindra staf- liða ef það þykir þess vert að dómi sjóðstjórnarinnar. í 4. gr. skipulagsskrár sjóðsins segir svo: „Stjórn sjóðsins skal árlega kynna sér hverjir maklegir eru verðlauna úr sjóðnum og neyta til þess atbeina kunnáttumanna ef nauðsyn þykir.“ Stjóm þessa sjóðs er skipuð þremur mönnum eins og hér segir: Prófastinum í Norður-lsafjarðar- sýslu, einum manni er sýslunefnd Norður-ísafjarðarsýslu kýs og manni tilnefndum af niðjum fram- angreindra hjóna, og skal hann búsettur vera innan Norður-ísa- f jarðarsýslu, meðan þess er kostur. Eins og skipulagsskrá sjóðsins ber með sér er hér um merkilega sjóðstofnun að ræða, sem heldur uppi þýðingarmiklum og merkileg- um athöfnum á sviði landbúnaðar, til eflingar þeim og framkvæmda, helguð minningu héraðshöfðingja þeirra, er minningarsjóurinn er tengdur, mætti hann verða búnaði héraðsins til framfara og eflingar, og öflug hvatning þeirra er hugsa til framfara í búnaði. Sjóður þessi er ræður yfir all- miklu f jármagni, er þess megnugur að veita ein hæstu verðlaun, er slíkir sjóðir taka til hér á landi. Þó þessi merkishjón séu flestum samtiðarmönnum þeirra kunn, líður óðum að því að hin yngri kynslóð og upprennandi, viti ekki mikil deili á athöfnum þeirra og áhugamálum, þykir því rétt að drepa örfáum orðum að minningu þeirra. Séra Sigurður var Skagfirðing- ur að ætt, fæddur 30. ágúst 1854, gerðist ungur prestur og tók að sér prestþjónustu í ögurþingum, og þjónaði því prestakalli alla sina prestskapartíð með miklum dugn- aði og skörungsskap. Varð hann brátt landskunnur kennimaður og prédikari, ritaði mikið um trúmál og kirkjumál, þá sat hann um langt skeið á Alþingi, sem fulltrúi Norður-ísfirðinga og Isafjarðar- kaupstaðar, og varð þar brátt mik- ill og kunnur þingskörungur, sem lét sig miklu skipta og hafði mikil afskipti af margvíslegum fram- faramálum, bæði á sviði landbún- aðar og sjávarútvegs, og hafði frumkvæði um lagasetningu margra framfaramála á sviði þess- ara höfuðatvinnuvega þjóðarinnar. Fór mikið orð af skörungsskap hans á þessu sviði, og ýms orða- tiltæki hans í þeim málflutningi landskunn. Þó hafði hann eigi minni af- skipti af héraðsmálum, var m.a. einn af stofnendum Kaupfélags Is- firðinga hins eldra, og var lengi í stjórn þess og mikill ráðamaður. í sýslunefnd Norður-ísafjarðar- sýslu átti hann mjög lengi sæti og lét þar sem annars staðar margt til sín taka og var mikill ráða- maður í héraði. í Vigur bjó hann um langt skeið, og hóf snemma margvíslegar umbætur 1 búnaði, bæði í túnrækt, matjurtarækt og húsabótum og varð athafnamaöur á þessu sviði. Þá gegndi hann um marga ára- tugi hreppsnefndar- og oddvita- störfum í sveit sinni, af dugnaði og hagsýni. Formaður Búnaðarsam- bands Vestfjarða var hann lengi og sat á búnaðarþingum. Frú Þórunn Bjarnadóttir kona séra Sigurðar var fædd 15. júní 1855 ættuð af Akranesi. Hún var mesta atgerfiskona og húsmóðir. Féll það í hennar hlut að sjá um fjölmennt heimili og heimilis- stjórn, því langdvölum dvaldi séra Sigurður fjarri heimili sínu, bæði á Alþingí og við önnur störf utan heimilis síns, og fórst henni það allt með miklum myndarbrag og skörungsskap, svo og uppeldi barna sinna og fósturbarna, af mikilli ástúð og umhyggju. Sam- hliða búskap þeirra var jafnan rek- inn og stundaður sjávarútvegur frá heimili þeirra. Er hér aðeins stiklað á helztu viðfangsefnum þessara héraðs- höfðingja. Sjóður þessi, sem hér hefir verið lítillega minnst, á að styðja, og mun vafalaust gera það, að eflingu áhugamála þeirra, og mun því um ár og - aldir minna á þau, og verkefni hans verða öflug lyftistöng og búnaðarframförum í þessu hér- aði, sem skipulagsskrá kveður svo skýrt á um.. Páll Pálsson.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.