Vesturland

Árgangur

Vesturland - 03.07.1965, Blaðsíða 2

Vesturland - 03.07.1965, Blaðsíða 2
2 Miklar framhvæmdir á Pafreksíirði - Ræít við Jóhannes Ániason, sveitarsljóra Veslf jarðadeild VERNDAR stofnuð - Ljist stórhSfðinglegri gjöf Mikil gróska er nú í fram- kvæmdum á Patreksfirði og nágrenni. Nýlega hefur verið sagt frá flugvaUargerðinni í Sandodda við Sauðlauksdal, en þar er verið að gera liðlega 1500 metra langa flugbraut og 50 metra breiða, og að auki eitthvað styttri þverbraut. Miðar því verki vel áfram og er fjöldi bíla að aka ofaní- burði á völlinn. Mun verða mikil atvinna við það í sumar og fram á haust. Þá hefur éinnig verið sagt nokkuð frá vegaframkvæmd- um í Tálknafirði og á Hálf- dán, en í sjálfu kauptúninu, Patreksfirði, eru miklar fram- kvæmdir hafnar og leituðum við því nýlega til Jóhannesar Árnasonar sveitarstjóra Pat- rekshrepps, og báðum hann að segja frá framkvæmdum á vegum hreppsfélagsins. — Hafnargerðin er aðal- framkvæmdin lun þessar mundir. Vinna hófst í byrjun júní og í sumar er ákveðið að lengja hafnarbakkann út með innsiglingunni um 60 metra. Var byrjað fyrst á uppgreftri úr innri höfninni, sem stendur enn og er efnið flutt í upp- fyllingu fyrir ofan og framan væntanlegan hafnarbakka. — Verður síðan rekið niður stál- þil frá þessari uppfyllingu, sem verið er að gera. Við það verk verður notaður krani, sem kom seint í júní. Nú eru tveir kranar notaðir við upp- gröftinn í innri höfninni, ann- ar í eign heimamanna, en sá stærri frá Þungavinnuvélum hf. í Reykjavík. Vinna við uppgröftinn er í fullum gangi og eru fjórir bílar við að aka efninu fram í uppfyllinguna. Verk þetta er unnið af Vita- málaskrifstofunni, sem tekið hefur að sér að sjá um fram- kvæmdir. Verkfræðingur af hálfu Vitamálaskrifstofunnar er Jónas Elíasson, sem hefur á hendi verkfræðilega umsjón, en verkstjóri á staðnum er Skúli Jónsson. Efnið í stálþilið er þegar komið á staðinn og væntanlega verður byrjað að reka það nið- ur í júlí. Með þessum nýja hafnar- bakka verður innsiglingin miklu tryggari og viðlegu- piáss og athafnasvæði hafnar- innar stækkar mjög. Þegar verkinu er lokið, verður hafn- arbakkinn meðfram innsigl- ingunni orðinn 175 metra langur og geta þá tvö stór skip legið við hann og fengið afgreiðslu samtímis. Með því að grafa út í innri höfninni er stækkað snúningsrými og geta þá stærri skip snúið þar miklu hægar en áður, og mjög rýmkar í höfninni. Auk þess er byrjað að grafa upp með væntanlegri fram- lengingu á stálþilinu í austur- horni hafnarinnar að ofan- verðu, en þar er áformað að lengja þihð um 45 metra og stækka athafnasvæði bátaflot- ans. Hefur þó enn ekki feng- izt samþykki vitamálastjóra fyrir því, að reka niður stál- þilið þar á þessu ári. Þetta er fyrsta árið, sem unnið er að hafnargerð hér á Patreksfirði samkvæmt hinni nýju samgönguáætlun Vest- fjarða. 1 sumar er ætlunin að vinna fyrir 4 miiljónir króna, en alls eru veittar 17 millj. kr. til hafnarframkvæmda í Pat- rekshöfn á samgönguáætlun- inni. Á næsta ári er ætlunin að vinna fyrir 3 millj. kr., þá fyrir 4 millj. kr. og loks fyrir 6 milljónir króna á árinu 1968. Ætlunin er að ljúka þeim framkvæmdum, sem nú er unnið að, fyrir haustið, en gerð hefur verið heildaráætlun fyrir höfnina, hvemig henni verði lokið og hvað það muni kosta, og er unnið í samræmi við þá áætlun með þessum fjárveitingum. Þá er að víkja að fram- kvæmdum við gatnagerð. í júníbyrjun var byrjað að grafa upp kafla af Aðalstræti á Vatneyri og undirbyggja götuna fyrir malbikun. Þarf að skipta um skólplögn á kafla, þar sem fyrir var elzta skólpleiðsla, sem lögð var á vegum hreppsins á árunum fyrir stríð. Er ráðgert að mal- bika um 300 metra langan kafla af Aðalstræti og verður það fyrsti götuspottinn, sem malbikaður er á Patreksfirði. Lögð hafa verið drög að því að fá afnot af malbikunar- tækjum ísafjarðarkaupstaðar til þessa verks. Þá verður haldið áfram að endurbyggja og lagfæra nokkrar aðrar götur. Um þessar mundir er verið að ljúka við að gera bama- leikvöll við svonefndan Klif- klett. í fyrra var sett þar undirlag og í vor var hafizt handa um frekari framkvæmd- ir. Völlurinn hefur verið girt- ur og sléttaður og borið ofan í hann, og sáð verður gras- fræi í hluta hans. Þá er lokið að reisa skýli fyrir gæzlukonu, en völlurinn verður starfrækt- ur sem gæzluvöllur af hrepps- félaginu. Er þetta fyrsti barnaleikvöllurinn, sem gerður hefur verið í bænum, en áður hafa aðeins verið nokkrar ról- ur á opnu svæði. Þama verða yfirleitt öll leiktæki, sem not- uð eru á nýjustu leikvöllum. Hér hefur verið talin mikil nauðsyn á því að þetta kom- ist upp og vakti Lionsklúbbur Patreksfjarðar máls á nauð- syn þess að koma upp bama- leikvelli og hefur stutt þetta mál og félagar hans lagt fram vinnu við girðingu og fleira. Hafliði Jónsson garðyrkju- stjóri í Reykjavík hefur teikn- að og skipulagt völlinn. Um byggingaframkvæmdir er það að segja, að áformað er að byrja á byggingu lögreglu- stöðvar og slökkvistöðvar. Að byggingu lögreglustöðvarinn- ar standa Patreks-, Tálkna- fjarðar-, Rauðasands- og Barðastrandarhreppar á móti ríkissjóði samkv. lögum um héraðsfangelsi, en slökkvi- stöðvarbygingin, sem verður áföst, er byggð af Patreks- hreppi einum. Hefur þessum byggingum verið valinn stað- ur á Geirseyri, rétt utantil við frystihúsið. Þá hefur verið veitt bygg- ingarleyfi fyrir mjólkurstöð, sem Mjólkursamlag Vestur- Barðastrandarsýslu hyggst koma upp við Þórsgötu á Vatneyri og verður það hús um 170—180 fermetrar að flatarmáli. Þá er áformað að reisa efnalaug og þvottahús, en ekkert slíkt þjónustufyrir- tæki hefur hingað til verið starfandi í kauptúninu til þessa. I sumar verður byrjað á smíði einbýlishúss á vegum hreppsins, sem byggt er skv. lögunum um útrýmingu heilsu spillandi húsnseðis, og ein- staklingur hyggst byrja á öðru einbýlishúsi, og eru þá alls 8 íbúðarhús í smíðum á Patreks- firði. Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllíillllllllllllllllllllllll Þroskandi leikföng! Plast-mekkanó. Lítið í gluggana. NEISTI hf. tsafirði miin 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 Stofnuð hefur verið Vest- fjarðadcild félagsskaparins VERNDAR og var stofnfund- urinn haldinn í Skátaheimil- inu á fsafirði s.l. miðvikudag. Var þar jaínframt tilkynnt um stórhöfðinglega gjöf lijón- anna Þorbjargar Valdimars- dóttur og Jóns Kristjánssonar byggingameistara til félags- skaparins á eignum í Hnifs- dal og Eyrarhreppi. Stofnfundurinn á ísafirði var f jölsóttur, en til hans boð- uðu þær frú Þóra Einarsdótt- ir, formaður VERNDAR, og frú Sigríður J. Magnússon, sem á sæti í stjóm félagsins. Fundarstjóri var Marías Þ. Guðmundsson framkvstj. 1 upphafi fundarins flutti frú Þóra yfirlitserindi um stofn- un, tilgang og starf félagssam- takanna VERNDAR. Voru þau stofnuð árið 1959 og standa að þeim um 100 félög og um 600 einstaklingar að auki. Megintilgangur félags- ins er að liðsinna og aðstoða ýmsa þá menn, sem gerzt hafa brotlegir við lög og stuðla að því að þeir geti á nýjan leik orðið góðir samborgarar. Hef- ur félagið unnið mjög marg- háttað mannúðarstarf á þessu sviði og hefur frú Þóra Ein- arsdóttir haft þar mesta for- ystu allt frá upphafi. Lýsti frú Þóra yfir því, að tilgang- urinn með boðun þessa fundar væri að stofnsetja fyrstu deild félagsins utan Reykja- víkur, og yrði það deild fyrir Vestfirði með aðsetri á ísa- firði. Þá sagði hún frá mjög höfð- inglegri gjöf, sem félagssam- tökin VERND hafa nýlega hlotið og kvað stjórn samtak- anna hafa samþykkt á fundi sínum í Reykjavík að afhenda þeirri Vestfjarðadeild, sem nú ætti að stofna, þessa gjöf til umráða og ráðstöfunar. I gjaíabréfi, sem dagsett er í Reykjavík 22. júní s.l., er Iýst yfir því, að til minningar um hjónin Björgu Jónsdóttur og Valdimar Þorvarðarson út- gerðarmann og kaupmann í Hnífsdal, liafi þau hjónin Þor- björg Valdimarsdóttir og Jón Kristjánsson byggingameistari frá Hnífsdal, sem nú eru bú- sett I Reykjavík, ákveðið að gefa félagsskapnum VERND eftirtaldar eignir: Heimabæ II, húseign og jörð, 6 hundruð að fomu mati, en þarna er um að ræða stærsta húsið í Hnífsdal, þrí- lyft steinhús með þremur íbúðum. Einnig efri hæð í liúseigninni Heimabær V, og loks jörðina Fremri-Hnífsdal í Eyrarhreppi, 8 hundruð að fornu mati. I gjafabréfinu er sett það skilyrði, að fasteignirnar verði nýttar á vegum VERNDAR til hagsbóta fyrir þau málefni, sem VERND berst fyrir eða kann að berjast fyrir hverju sinni. Þó skal VERND heimilt að leigja eða Iána fasteignim- ar eða hluta úr þeim fyrir starfsemi á sviði annarra mannúðarmála en þeirra, sem VERND beinlínis berst fyrir, svo sem til rekstrar unglinga- heimilis, barnaheimilis eða elliheimilis o.s.frv. Frú Þóra Einarsdóttir sagði, að með þessari miklu gjöf opnuðust stórkostlegir mögu- leikar og lýsti þeirri von sinni, að gjöfin yrði hvatning til átaka. Frú Sigríður J. Magnússon talaði um starfsemi VERND- AR á undanförnum árum og nokkrar umræður urðu um þessi mál. Var síðan gengið til stofnunar Vestfjarðadeildar VERNDAR og höfðu 47 manns skráð sig sem stofnfé- lagar. Var deildinni kosin stjórn og eiga sæti í henni Rannveig Hermannsdóttir, Oktavía Gísladóttir, Hafsteinn O. Hannesson, Marías Þ. Guð- mundsson, Kristján Jónsson, Þórður Sigurðsson og Lnga Ingimarsdóttir, en til vara Halldór Pálsson, Jón Þórðar- son og Daníela Jóhannesdóttir. Stofnfundurinn sendi gef- endunum þakkir og virðingu fyrir hina verðmætu gjöf, sem hjónin hafa fært félagsskapn- um VERND. Leikur ekki á tveim tung- um, að þessi stórhöfðinglega gjöf þeirra hjónanna Þor- bjargar Valdimarsdóttur og Jóns Kristjánssonar bygginga- meistara verður til mikillar eflingar fyrir mannúðarstarf- semi hér um slóðir þótt enn sé með öllu óráðið á hvem hátt nýtingu þessara eigna verður hagað.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.