Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 03.07.1965, Qupperneq 5

Vesturland - 03.07.1965, Qupperneq 5
&Q71& afcsVFIVZXXH saitlSFSSiEVISXiDOin 5 Viðkvæmii ppvarí Viðreisnarsjöði Evrðpnrððsins Það var fagnaðarefni flest- um, þegar ríkisstjómin ákvað á síðastliðnum vetri að taka lán úr Viðreisnarsjóði Evrópu- ráðsins. Vestfirðingar fögnuðu því sérstaklega, þar sem lán- ið, að upphæð 2 millj. $ eða um 86 millj. kr., á að ganga til samgöngubóta á Vestfjörð- um. Aðrir landsmenn, sem láta sig varða uppbygingu strjálbýbsins og jafnvægi í byggð landsins, fögnuðu einn- ig. Lánið frá Viðreisnarsjóðn- um er tekið til að tryggja framkvæmd á heildaráætlun um eflingu byggðar á Vest- fjörðum. Með slíkri áætlunargerð og framkvæmd eru tekin upp ný og bætt vinnubrögð til efling- ar strjálbýlinu. Ekki var það óeðlilegt, að Vestfirðir yrðu fyrst fyrir valinu, þegar haf- izt var handa í þessum efnum. En jafn eðlilegt er, að aðrir landshlutar fylgi á eftir. öll- um mátti vera fagnaðarefni lántakan hjá Viðreisnarsjóðn- um. Því bregður kynlega við, að víl og vol skuli heyrast út af lántöku þessari. Að vísu sýndi sig strax í upphafi, að hætt gat verið við alvarlegum mis- skilningi í máli þessu. Þegar tillaga mín til þingsályktunar um aðstoð frá Viðreisnar- sjóðnum, var til umræðu i sameinuðu Alþingi í apríl 1964, missást t.d. jafn athug- ulum manni og 3. þingmanni Norðurlandskjördæmis eystra, Gísla Guðmundssyni. Hann var óánægður með nafn þessa lánasjóðs. Hann taldi betri þýðingu á hinu enska heiti Resettlement Fund að kalla sjóðinn „Flóttamanna sjóð“ heldur en Viðreisnar- sjóð. Á grundvelli sinnar snjöllu þýðingar fannst honum hann finna tilgang sjóðsins. Samkvæmt því átti tilgangur sjóðsins að vera sá, að aðstoða landflóttafólk. Af miklum al- vöruþunga varaði hann Is- lendinga við að koma nálægt slíkum sjóði. Það gæti leitt til þess, að Islendingar yrðu að deila náttúrugæðum og landsréttindum með erlendum flóttamönnum, sem myndu flykkjast til landsins, ef kom- izt væri í tæri við „Flótta- mannasjóðinn". Um hugsan- lega lántöku hjá sjóðnum komst þingmaðurinn m.a. svo að orði: „Ef slíkt ber á góma, þarf áreiðanlega að fara að með mikilli gát, því að þessi fámenna þjóð má því miður ekki við því af þjóðræknis- ástæðum að veita viðtöku fjöl- inenni af öðrum þjóðernum eða jafnvel kynþáttum.“ Þessi ummæli báru vott um lofsvert hugmyndaflug. Hins vegar var þetta naumast lofs- verður málflutningur. Hér var skellt skollaeyrum við veru- leikanum. Samkvæmt sam- þykktum Viðreisnarsjóðsins frá 1956 er tilgangur sjóðsins sá, að aðstoða við úrlausn vandamála, sem stafa af til- flutningi fólks. Sjóðurinn hef- ur gegnt hlutverki sínu með því að lána til framkvæmda til að skapa fólki lífsskilyrði á þeim stöðum, sem það flytur til. En jafnframt og ekki síð- ur hafa verið veitt lán til þess að bæta samgöngur, efla at- vinnuvegi og koma upp félags- og menningarstofnunum í þeim byggðarlögum, sem eiga í vök að verjast, til þess að draga úr fólksflutningum það- an. Hér hefur verið um að ræða aðgerðir til að viðhalda jafnvægi í byggð viðkomandi lands. Lánveitingar Viðreisn- arsjóðsins hafa einkum miðast við verkefni sem þessi, þ.e. vegna tilflutninga fólks innan síns eigin lands. En í samþykktum sjóðsins er tekið fram, að undir hlut- verk hans heyri einnig aðstoð vegna tilflutninga fólks, sem flytur til síns eigin ríkis frá landssvæðum, sem viðkomandi ríki hefur misst vegna breyt- inga á landamærum. í fram- kvæmd hefur aðstoð sjóðsins við slíkt fólk verið fólgin í lánveitingum til V-Þýzkalands vegna fólksflutninga frá A- Þýzkalandi. Þessar lánveiting- ar áttu sér einkum stað fyrstu starfsár sjóðsins. Hins vegar heyrir ekki undir verksvið sjóðsins aðstoð við fólk, sem flúið hefur frá einni þjóð til annarrar. Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna hefur það hlutverk að sinna slíku fólki. Frá þessu skýrði ég ræki- lega í umræðum á Alþingi og leiðrétti misskilning Gísla Guðmundssonar. Sá mæti mað- ur hefur að sjálfsögðu viljað hafa það, sem sannara reynd- ist. Ekki hefi ég síðan heyrt, að hann teldi þjóðerni okkar stefnt í voða með lántöku hjá Viðreisnarsjóðnum. En svo er að sjá sem til séu þeir, sem ekki vilja láta sér segjast. Til þess bendir for- ustugrein Alþýðublaðsins 4. apríl s.l. Þar segir m.a.: „Aðeins eitt atriði varðandi Vestfjarðaáætlunina hefur valdið undrun Iandsmanna. Það er lántaka lijá Flótta- mannasjóði Evrópuráðsins, og þykir mörgum illa viðeigandi af Islendingum að seilast til slíltra stofnana, sem hljóta að hafa ærin verkefni brýnari á sínu sviði. Þetta er því miður ekki eina dæmið um slík vinnubrögð og væri betur að þau hyrfu á sama tíma, sem Alþingi hefur samþykkt að hefja athugun á liugsanlegri aðstoð við vanþróaðar þjóðir.“ Hér virðast hugarórar um flóttamenn móta umsögn blaðsins. Talað er um, að Við- reisnarsjóðurinn hafi öðrum hnöppum að hneppa en að lána hingað. Málið er sett í samband við aðstoð við van- þróaðar þjóðir. Þetta kemur eins og skollinn úr sauðar- leggnum. Það er skrýtin skoð- un, að ekki sé jafn nauðsyn- legt að stuðla að jafnvægi í byggð landsins hér eins og í öðrum löndum, sem sjóðurinn lánar til. Sjóðurinn lánar hér til hliðstæðra framkvæmda og annars staðar. Starfsemi Við- reisnarsjóðsins kemur ekkert við vanþróuðum þjóðum. Þær Evrópuþjóðir, sem standa að Viðreisnarsjóðnum, eru ekki venjulega taldar til svokall- aðra vanþróaðra þjóða. Engar aðrar þjóðir geta fengið lán úr sjóðnum en þær, sem eru aðilar að honum. Þetta á ritstjórn Alþýðu- blaðsins að vita og er því vorkunnarlaust að gera sig ekki að viðundri í máli þessu. Slíkt hefði gjarnan mátt láta stjórnarandstöðunni einni eft- ir. 1 ritstjórnarpistli Tímans „Á víðavangi“ 5. júní s.l. er fjallað um framkvæmdaáætlun Vestfjarða. Þar segir m.a.: „Það fjárinagn, sem til þessa er varið, er þó ekki stórmann- lega fengið. Það er fengið samkvæmt beiðni úr Flótta- mannasjóði Evrópuráðsins, neyðarsjóði . . . Út af fyrir sig má segja, að sama sé, livaðan fjármagnið kemur, en ýmsum finnst aðferðin ekki stórmannleg og jafnvel niður- lægjandi. A.m.k. gengur sú ríkisstjórn varla bein í baki, ef liún er þá upprétt, sem fer frgm á slíkar ölmusur í bezta árferði.“ Hér er talaö um ölmusur. Og rétt er það, að ekki er stór- mannlegt að fara fram á ölmusur og jafnvel getur það verið niðurlægjandi. En hvers vegna er hér talað um ölmus- ur? Lán það, sem Viðreisnar- sjóðurinn lánar Islendingum, er með 6,6% vöxtum til 15 ára, en afborgunarlaust fyrstu 5 árin. Þetta eru hliðstæð kjör og sjóðurinn veitir öði’um ríkj- um, sem hann lánar. Þetta eru að vísu hagkvæm kjör, en allmikið vantar á, að ölmusa geti talizt. Þá er talað um Viðreisnar- sjóðinn sem neyðarsjóð. Ekki er það þó svo, að nokkur neyð sé að eiga skipti við stofnun þessa. Hins vegar var Við- reisnarsjóðurinn stofnaður til að bæta úr þörfum, sem tald- ar voru brýnar. Þær þjóðir, sem eru aðilar að Viðreisnar- sjóðnum, lögðu fram fjármagn sem stofnframlag til sjóðsins. Starfsemi Viðreisnarsjóðsins er samhjálp aðildarríkjanna um úrlausn tiltekinna vanda- mála. ísland er aðili að þessum samtökum. Island hefur tekið á sig sinn skerf byrðanna með því að leggja fram sitt fjár- framlag til sjóðsins. Hvað get- ur þá mælt á móti því, að ís- land noti sinn rétt til aðstoð- ar? Er ísland meira fjármála- veldi en t.d. Vestur-Þýzkaland og ítalía, sem hafa fengið m'esta aðstoð frá Viðreisnar- sjóðnum? Þessum spurningum þarf ekki að svara. Það er augljóst. En aðrar spumingar vakna. Hvers vegna þessa viðkvæmni gagnvart Viðreisnarsjóðnum? Hvers vegna að rangtúlka til- gang og starfsemi Viðreisnar- sjóðsins? Þorvaldur Garðar Kristjánss. Frá starfsemi Sjálfsbjargar Aðalfundur Sjálfsbjargar, Isafirði var haldinn fimmtu- daginn 15. apríl. Formaður fé- lagsins, Ingibjörg Magnúsdótt- ir, flutti skýrslu um störf fé- lagsins á árinu. Fara hér á eftir helztu atriði hennar. Reglulega voru haldnir fé- lags- og skemmtifundir og vinnukvöld vikulega, þar sem unnir voru munir á árlegan jólabazar félagsins. Auk happ- drættis-, merkja- og blaða- sölu, sem félagið annaðist á vegum landssambandsins, efndi það til fjáröflunar með bingókvöldum og varð það helzta tekjulind félagsins á- samt áðurnefndum jólabazar. I lögum félagsins segir, að markmið þess skuli vera m.a. að efla félagsleg kynni og skemmtanalíf meðal fatlaðs fólks, og í því skyni hefur verið efnt til sumarmóta Sjálfsbjargarfélaganna, en á s.l. ári komu félögin saman að Reykjum í Hrútafirði og var þátttaka frá ísafirði góð að vanda. 1 félaginu eru nú 127 félag- ar; þar af 65 virkir og 62 styrktarfélagar, en heilbrigt fólk getur gerzt styrktarfélag- ar og greiðir það sama árs- tillag og virkir félagar hverju sinni. Nýlega var stofnaður Styrktarsjóður Sjálfsbjargar á ísafirði og er tilgangur hans að taka þátt í ferðakostnaði félaga, sem leita sér lækninga utanbæjar eða öðrum kostn- aði, sem Tryggingarstofnunin eða Sjúkrasamlagið greiðir ekki. Vinnuver, verzlun og ör- yrkjavinnustofa Sjálfsbjargar og Berklavarnar, hefur nú Framhald á 6. síðu. Stjórn Sjálfsbjargar: (Talið frá vinstri) Pálína Snorradóttir ritari, Sigurður Th. Ingvarsson vararitari, Ingibjörg Magnúsdóttir formaður, Guðmundur Guðmundsson gjaldkeri, Helga Marsellíusdóttir varafor- ma,ður.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.