Vesturland - 16.06.1974, Page 8
Fyrsti fundur bœjar-
stjórnar Bolungarvíkur
Fyrsti fundur hinnar ný-
kjörnu bæjarstjórnar Bolung-
arvíkur var haldinn í ráðhúsi
Bolungarvíkur laugardaginn
1. júní s.l.
Á fundinum var Ólafur
Kristjánsson málarameistari
kosinn forseti bæjarstjórnar.
1. varaforseti var kosinn Guð-
mundur Agnarsson skrifstofu-
maður og annar varaforseti
Hálfdán Ólafsson vélstjóri.
í bæjarráð voru kjörnir
Guðmundur B. Jónsson vél-
smíðameistari, Ólafur Krist-
jánsson og Valdimar L. Gísla-
son leigubílstjóri.
Guðmundur Kristjánsson,
sem verið hefur sveitarstjóri
Hólshrepps um skeið, var nú
kosinn fyrsti bæjarstjóri hins
nýja kaupstaðar og hlaut
hann atkvæði allra bæjarfull-
trúa til starfsins.
Ólafur Kristjánsson
forseti bæjarstjórnar.
Ekki var kosið í nefndir á
þessum fyrsta fundi, enda
ekki búið að setja bæjar-
stjórninni fundarsköp.
17. júní ú Isaiirði
Hátíðahöldin á þjóðhátíðar-
daginn hefjast á ísafirði með
því að safnazt verður saman
í Neðstakaupstað kl. 13,30.
Þar mun Jóh. Gunnar Ólafs-
son fyrrverandi bæjarfógeti
og sýslumaður flytja ávarp og
Sunnukórinn syngur undir
stjórn Ragnars H. Ragnar.
Þá verður afhentur minn-
ingarsteinn um Ásgeir Ás-
geirsson kaupmann. Síðan
verður skrúðganga upp að
barnaskólanum og verða skát-
ar bæjarins í fararbroddi.
Hátíðinni verður haldið
áfram á bamaskólalóðinni og
hefst með ávarpi. Hátíðaræð-
una flytur Hannibal Valdi-
marsson fyrrv. ráðherra, Fjal'l-
konan kemur fram og þjóð-
söngurinn verður sunginn.
Þá dansa telpur undir
stjórn Bryndísar Schram, Ól-
afur Jónsson óperusöngvari
syngur, Kvenfélagið Hlíf
sýnir þjóðdansa, Jón B. Gunn-
laugsson flytur skemmtiefni
og Sunnukórinn syngur undir
stjórn Ragnars.
Strax að l'okinni þessari
dagskrá verða opnaðar mynd-
listarsýningar. í gagnfræða-
skólanum verður sýning á
verkum Jóns Hróbjartssonar
og verkum í eigu Listasafns
ísafjarðar. í barnaskólanum
sýna nokkrir félagar úr mynd-
listarsamtökunum SÚM.
Merki dagsins verður selt
á götunum.
Clœsilegur fundur
kvenna á Flateyri
Sjálfstæðiskvennafélögin á
ísafirði og í ísafjarðarsýslum
efndu til kjósendafundar í
samkomuhúsinu á Flateyri á
föstudagskvöldið og var fund-
urinn mjög fjölsóttur. Komu
á hann konur frá ísafirði,
Hnífsdal, Bolungarvík, Suður-
eyri Þingeyri og Flateyri.
Frummælendur á fundinum
voru þær Sigurlaug Bjarna-
dóttir frá Vigur og Hildur
Einarsdóttir, Bolungarvík. —
Fluttu þær framsöguræður
um stjórnmálaviðhorfið og
um þátt kvenna í íslenzkum
stjórnmálum. Fundarstjóri
var Jónína Ásbjörnsdóttir.
Að loknum framsöguræðum
urðu miklar og fjörugar um-
ræður og tóku þessar konur
til máls: Gunnhildur Guð-
mundsdóttir, Ósk Ólafsdóttir,
Þorbjörg Bjarnadóttir, Inga
Jónsdóttir, Geirþrúður Charl-
esdóttir, Lovísa Ibsen, Anna
Magnúsdóttir, Áslaug Ár-
mannsdóttir og Unnur Gísla-
dóttir.
Að fundinum loknum þáðu
fundargestir kaffiveitingar,
sem sjálfstæðiskonur á Flat-
eyri sáu um af mikilli rausn.
Á fundinum ríkti mikill
sóknarhugur og voru fundar-
konur einhuga um að vinna
sterklega að því að efla hag
Sjálfstæðisflokksins við þing-
kosningarnar 30. júní og gera
sitt ýtrasta til þess að koma
Sigurlaugu Bjarnadóttur á
þing.
Hvers vegna við kjós-
um Sjálfstæðisflokkinn
Undanfarin ár hef ég haft
öllu meiri áhuga á listum en
pólitík, enda þótt ég hafi
alltaf haft sjálfstæða skoðun
á þeim málum og ekki látið
villa mér sýn. Nú sé ég
brostinn hlekk í íslenzkum
stjórnmálum — efnahagsmál-
in. Þau hafa hreinlega
gleymzt og allt hefur verið
látið reka á reiðanum.
Hvernig færi fyrir húsmóð-
ur á stóru heimili sem léti
launin ganga til þurrðar á
miðjum mánuði?
Ég vil sterka stjórn á þeim
málum sem og öðrum, sem
snerta sjálfstæði þjóðarinnar
og eðlilega uppbyggingu til
lands og sjávar.
Ég tel mikið lán að fá frú
Sigurlaugu Bjarnadóttur frá
Vigur í framboð fyrir Vest-
firði. Konur vita oft betur
hvar skórinn kreppir að en
karlmenn. Og hún mun sinna
af áhuga og heilum hug að
okkar málum hér vestra. Það
er mín sannfæring.
Guðrún Vigfúsdóttir,
ísafirði.
Vegna þess að ég treysti
Sjálfstæðisflokknum einum til
þess að leysa þau vandamál,
sem skapazt hafa í þjóðfélag-
inu. Hann hefur ötula og
trausta menn í forystu.
Hann hefur sannað það, að
aðeins undir hans forystu er
hægt að stjórna svo vel sé.
Og ef maður virðir fyrir sér
kaldar staðreyndir heimsmála
og landsmála, cg hugsar um
öryggi þjóðarinnar, þá held
ég að valið sé auðvelt 30.
júní næstkomandi.
Þess vegna kýs ég D-list-
ann, og hvet alla Vestfirðinga
til að gera slíkt hið sama.
Anna Magnúsdóttir,
Suðureyri.
Vestfirzkar konur! Þegar
ég var spurð álits varðandi
framboð Sjálfstæðisflokksins
í höndfairandi alþingiskosn-
ingum kom mér einkum
þrennt í hug.
í fyrsta lagi: Hafið þið
veitt því athygli, að Sjálf-
stæðisflokkurinn er sá eini,
sem sýnt hefur okkur þann
sóma hér á Vestfjörðum, að
láta konu skipa baráttusætið
á lista sínum, og sem jafn-
framt er eina konan, sem
komið getur til með að verða
kjörinn fulltrúi okkar hér á
næsta Alþingi.
f öðru lagi: Hafið þið gert
ykkur grein fyrir því, að und-
anfarin ár höfum við barizt
fyrir jafnrétti á sem flestum
sviðum þjóðlífsins og höfum
að vísu náð umtalsverðum
árangri, þó enn sé langt í land
svo okkar takmarki verði náð.
Þetta verður því eitt af okkar
gullnu tækifærum vegna þess,
að fleiri konur í bæjar- og
sveitarstjórnir og fleiri konur
á þing, er eitt af brýnustu
stefnumálum okkar.
í þriðja lagi: Sú kona, sem
skipar þetta sæti fyrir okkar
hönd, frú Sigurlaug Bjarna-
dóttir frá Vigur, er vestfirzk
kona. Kona úr okkar hópi,
komin af góðum ættum og
vel menntuð. Kona, sem hefur
unnið mikið og gott starf í
félags- og sveitarstjómarmál-
um, sem borgarfuliltrúi í
Reykjavík, en kemur nú til
starfa fyrir okkur Vestfirð-
inga með heilum cg óskiptum
huga, hún lofar ekki gulll og
grænum skógum, en segir:
,.Ég mun gera mitt bezta“, og
bví getum við treyst.
Ég hefi átt þess kost að
kynnast frú Sigurlaugu lítil-
lega. já ég segi lítillega því
miður, því þau kynni segja
mér að þar fari einlæg kona,
traust cg heilsteypt, persónu-
lei'ki, sem við getum verið
stoltar af, allar konur, hvar
í flokki sem við stöndum.
Ég skcra þvi á ykkur allar
vestfirzkar kcnur, látið það
verða ykkar baráttumál í
næstu alþingiskosningum, að
með samstilltu átaki eignumst
við enn einn fulltrúa úr okk-
ar röðum á Alþingi íslend-
inga.
Stöndum allar saman, kjósum
D-listann og stuðlum þannig
að kjöri frú Sigurlaugar
Bjarnadóttur frá Vigur hinn
30. júní næstkomandi.
Sigrún Þorleifsdóttir,
Suðureyri.
Framboðs-
fundirnir
SAMKOMULAG hefur orðið
um sameiginlega framboðs-
fundi í Vestfjarðakjördæmi.
Fundimir verða haldnir
sem hér segir:
Sunnudagur 16. júní: Kl.
15,00 í Árnesi og á Hólma-
vík og kl. 20,30 í Króks-
fjarðarnesi. Þriðjudagur 18.
júní: Kl. 15,00 í Reykjanesi
N.-ís. Fimmtudagur 20. júní:
Kl. 20,30 á Patreksfirði og
í Tálknafirði. Föstudagur 21.
júní: Kl. 20,30 á Bíldudal og
á Þingeyri. Laugardagur 22.
júní: Kl. 15,00 í Súðavík og
kl. 20,30 á Flateyri. Sunnu-
dagur 23. júní: Kl. 20,30
í Bolungarvík og Suðureyri
í Súgandafirði. Mánudagur
24. júní: Kl. 20,30 á ísafirði.
Þeim fundi verður útvarpað.
Ræðutími hvers flokks
verður 45 mín. og skiptist
hann í þrjár umferðir —
20 mín., 15 mín. og 10 mín.
Að lokinni fyrstu umferð
verður fundarmönnum heim-
ilað að bera fram fyrir-
spurnir til framsögumanna
og er hámarkstími, sem
leyfður er fyrir hverja fyrir-
spum, 3 mín.