Vesturland - 06.05.1978, Blaðsíða 2
2
^mmsm
ÚTGEFANDI:
BLAÐNEFND:
AFGREIÐSLA:
Kjördæmisráö Sjálfstæöisflokksins
í Vestfjarðakjördæmi.
Guömundur Þórðarson isafirði form.
Guðmundur Agnarsson Bolungavík.
Einar K. Guðfinnsson Bolungavík.
Halldór Bernódusson Suðureyri.
Hafsteinn Davíðsson Patreksfirði.
Að Uppsölum ísafirði sími 3232.
RITSTJÓRI: Ásgeir Jakobsson
Prentstofan l'srún hf. ísafirði.
Lifandi draugar
elta dauða grýlu
Þaö er ekki umdeilanlegt, aö of margt fólk í
okkar þjóðfélagi er láglaunafólk, og þaö er heldur
ekki umdeilanlegt, aö of margt fólk er hátekjufólk.
Launamismunurinn hefur aukizt í skjóli verkalýðs-
foringjanna, sem eru lifandi draugar margir hverjir
aö eltast viö grýlu sem eitt sinn kom aö góöu haldi
í verkalýðsbaráttunni.
Þá var verkalýönum kennt. aö ógæfan stafaöi frá
heildsölum og útgerðarmönnum, sem rökuöu aö
sér fé á kostnað ,,hins vinnandi manns.“ Þessi
nátttröll í verkalýðsbaráttunni líta ekki viö þeirri
staðreynd nútímans, aö beinar launatekjur eru
sívaxandi hluti af þjóöartekjunum og meginmáli
skiptir því núoröiö, hvernig heildarlaunatekjurnar
skiptast á milli launafólksins. Verkalýösleiötogarn-
ir breiöa eftir getu yfir launamismuninn innan
launastettanna, og þora ekki aö ráöast á mein-
semdina af pólitískum ástæöum, þeir halda áfram
aö setja alla launabaráttu á sviö meö hefðbundn-
um hætti. ,,Þaö eru atvinnurekendur, heildsalar
og ríkisstjórnin, sem stela kaupinu ykkar“. Þessa
gömlu grýlu hafa þeir stoppaö upp og bera hana
til hásætis 1. maí, þar sem þeir steyta aó henni
hnefanna og hóta henni öllu illu.
Verkalýðurinn býr aftur á móti við þá biaKöldu
staöreynd, aö vera hlutfallslega verr settur en í
byrjun verkalýösbaráttu hérlendis. Þá gátu menn
lifaö af dagkaupi sínu, ef þeir höfðu vinnu. í
margra ára góöæri hefur hallað undan vegna
falsaörar verkalýösbaráttu.
ísafjarðarkanpstaðnr
. - -----.
UTBOÐ
ísafjarðarkaupstaður óskar eftir tilboð-
um í byggingu á rotþró fyrir Holtahverfi
á ísafirði.
Útboðsgögn verða afhent á Tækni-
deiid ísafjarðarkaupstaðar, Austurvegi
2, gegn skilatryggingu að upphæð kr.
10.000.
Tilboð verða opnuð á Tæknideild
mánudaginn 22. maí 1978 kl. 14,00 í
viðurvist þeirra bjóðenda, sem þar
verða staddir.
TÆKNIDEILD ÍSAFJARÐARKAUPSTAÐAR
UNDIR MERKI
SJÁLFSTÆÐISMANNA
Stefnuskrá Sjálfstæðis-
manna í
bæjarmálum ísafjarðar
Á því Kjörtímabili sem
nú er að líða hefur bæjar-
stjórn Isafjarðar afgreitt til
fullnustu mörg stór og
þýðingarmikil mál, sem ó-
hjákvæmilega verður unn-
ið að á næsta kjörtímabili.
Sjálfstæðismenn fagna
því að bæjarfulltrúar
flokksins hafa haft forustu
um að móta svo hin
stærstu mál að fullkomin
eining hefur ríkt um end-
anlega afgreiðslu þeirra í
bæjarstjórn.
Frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins munu
kappkosta að vinna áfram
að málum á þann veg að
skapa virka samstöðu og
einingu um þýðingarmestu
afgreiðslur innan bæjar-
stjórnar.
Málefnalegar umræður
og tillit til skoðana annara
sem um málin fjalla eru
grundvöllur eðlilegra
skoðanaskipta er síðar
leiða til jákvæðrar af-
greiðslu mála.
Frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins munu á-
fram vinna að málefnum
Isafjarðarbæjar á þessum
grundvelli, og heita á fram-
bjóðendur annara flokka
að koma til starfa á mál-
efnalegum grunni. Kjörorð
okkar Sjálfstæðismanna
er: Málefnalegar umræður.
Málefnaleg afgreiðsla.
Auk þeirra maia sem ao
fullu hafa verið mótuð og
komin eru í framkvæmd
munum við frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins
leggja áherslu á eftirfar-
andi mál eftir því sem að-
stæður leyfa hverju sinni.
Atvinnumál:
Grundvöllur bættra lifs-
kjara, framfara og menn-
ingarlífs eru vel rekin og
þróttmikil atvinnufyrirtæki.
Sjálfstæðismenn fagna því
sérstaklega að dugmiklir
einstaklingar og félög hafa
forustu um uppbyggingu
atvinnufyrirtækja í bæjar-
félaginu.
Sjálfstæðismenn líta
svo á að bæjarfélagið eigi
að greiða fyrir slíkum at-
vinnurekstri með því að
veita þá þjónustu er eðli-
leg má teljast, og hvetja
eindregið til áframhald-
andi aðgerða og uppbygg-
ingar , í atvinnumálum
kaupstaðarins.
i þessu sambandi viljum
við leggja áherslu á að
styðja við og efla iðnað og
iðnaðarfyrirtæki eftir því
sem kostur er.
Sjálfstæöismenn heita
því að vinna að uppbygg-
ingu iðnaðarsvæðisins í
Neðstakaupstað i sam-
vinnu við iðnaðarfyrirtæki
þau er starfa á svæðinu og
uppbyggingin skiptir
mestu máli.
Félagslegt samstarf
sveitarfélaga:
Á undanförnum árum
hefur farið mjög vaxandi
félagslegt samstarf sveit-
arfélaga á Vestfjörðum,
bæði um velferðarmál á-
kveðinna svæða svo og
fjórðungsins í heild.
Frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins telja þetta
samstarf mjög þýðingar-
mikið, og leggja áherslu á
að Isafjörður ræki sitt for-
ustuverk í þessu samstarfi
svo sem verið hefur.
Jafnframt leggjum við á-
herslu á að efla heildar-
samtök sveitarfélaga á
Vestfjörðum.
Sjálfstæðismenn fagna
þeim mikilvægu áföngum
sem náðst hafa í samvinnu
sveitarfélaganna, og munu
beita sér fyrir því að sú
samvinna verði efld eftir
því sem ástæður leyfa.
Skipulagsmál:
I tíð núverandi bæjar-
stjórnar hefur verið unnið
markviss að skipulags-
málum.
Árangurinn er mun
meira lóðaframboð til hús-
bygginga en áður var og
meiri festa íframkvæmdum
bæjarsjóðs.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins munu
beita sér fyrir því, að
skipulagsvinnunni verði
haldið þrotlaus áfram til
hagsbóta og fegrunar fyrir
bæjarfélagið.
I tíð núverandi bæjar-
stjórnarmeirihluta hefur
tæknideild bæjarins verið
efld til muna.
Árangurinn er:
Betur skipulögð og unn-
in verk bæjarsjóðs
Ódýrari hönnunarvinna
Betri nýting á tækjum bæj-
arins
Betri þjónusta við bæjar-
búa.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokks munu beita
sér fyrir enn frekari eflingu
tæknideiidar og sérstak-
lega endurnýjun vinnuvéla
og annara tækja bæjarins.
Jafnframt leggjum við á-
herslu á að undirbúnlngi
verka verði hagað svo að
komið verði við útboðum á
heilum verkum og verk-
hlutum eftfr því sem kostur
er.
Feröa og
umhverfismál:
Með auknum ferða-
mannastraumi um Vest-
firði er mikil nauðsyn á
Framhald í 3. siðti