Vesturland - 06.05.1978, Qupperneq 3
y&mmn__________________:_______3
UNDIR MERKI SJÁLFSTÆÐISMANNA
bættri og aukinni aðstööu
til móttöku ferðamanna.
Sjálfstæðismenn vilja
styðja byggingu nýs hótels
á Isafirði, og þeir fagna því
að bygging þess er hafin
undir forustu áhuga-
manna.
Jafnframt mikilli umferð
ferðamanna viljum við
leggja áherslu á að bæta
umhverfisvernd og minn-
um á að umhverfisvernd er
orðin stór þáttur í lífi ein-
staklinga nú á tímum.
Sjálfstæðismenn munu
því beita sér fyrir því að
unnið verði skipulega að
bættum umgengnisháttum
á opnum svæðum í bæn-
um og bættu hreintæti.
Nauðsynlegt er að bæjar-
yfirvöld hafi forgöngu um
hreinsun bæjarlandsins,
en jafnframt er nauðsyn að
hvetja bæjarbúa til sam-
eiginlegra átaka í hreinsun
bæjarins.
Sjálfstæðismenn telja
verndun gamalla sögu-
legra minja mikilsverðan
þátt í mótun þeirrar heildar
sem að verði stefnt í þess-
um efnum, og munu vinna
að þvf að þeim verði vel
viðhaldið og upprunalegt
form þeirra varðveitt. Jafn-
hliða verði reynt að nýta
gömlu húsin í Neðsta-
kaupstað á þann hátt sem
lagt er til i tillögun húsfrið-
unarnefndar, þannig að
þau verði i framtíð bæði
fagrar sögulegar minjar og
gagnlegir og virtir staðir í
bæjarfélaginu.
Mennta og
menningarmál:
Góð skilyrði til almennrar
menntunar er ein af for-
sendum lífshamingju
hvers einstaklings, þvf ber
að efla skóla bæjarins og
alla menningarstarfsemi.
Umfram allt verður að
tryggja öllum jafnan rétt og
möguleika til náms. Auka
þarf fjölbreytni í menntun-
araðstöðu, svo að sem
allra fæstir þurfi að leita
hennar annað. Leita þarf
leiða til úrbóta varðandi
verkmenntunaraðstöðu,
með eflingu kennslukrafta
og bættrar aðstöðu í tækj-
um og húsnæði. Styrkja
ber af alefli þau lista- og
menningarfélög, sem
starfa í kaupstaðnum og
haldið skal áfram á þeirri
braut sem mörkuð hefur
verið, með því að búa þeim
varanleg starfsskilyrði.
Dagheimili
og leikvellir:
Sjálfstæðismenn telja
að bygging og rekstur dag-
vistunarheimila og gæslu-
valla sé mjög þýðingarmik-
ill þáttur í rekstri bæjarfé-
lagsins, og munu þess
vegna beita sér ákveðið í
þvf að bæta þessa þjón-
ustu svo sem kostur er.
Undirbúningi að bygg-
ingu nýs dagheimilis verði
hraðað, og stefnt að því að
byggingu þess verði lokið
sem fyrst. Hönnun hússins
er nú að mestu lokið og
ætti að takast aö auglýsa
útboð á fyrsta áfanga
verksins á næstu vikum.
Það er yfirlýst stefna Sjálf-
stæðismanna, að fjölga
beri gæslu og leikvöllum f
bænum. Stefna ber að
skipulegri uppbyggingu
þessara mála þannig að
með samræmdu skipulagi
í leikvallarmálum þá verði
þeim ætlaður staður innan
skipulagðra svæða og
heildaráætlun gerð um
byggingu þeirra.
Sjálfstæðismenn leggja
áherslu á að laða til sam-
starfs félagasamtök og
einstaklinga er vilja leggja
þessum málum lið, því al-
mennur áhugi og samtök
sem þannig myndast geta
haft mjög jákvæð áhrif á
hraða framkvæmda og í
heild á framgang málsins.
Æskulýðsmál:
Lögð verði áhersla á að
efla æskulýðsstarfssemi í
bænum, og vænta Sjálf-
stæðismenn þess að með
ráðningu Æskulýðs og
íþróttafulltrúa megi efla
þau félagssamtök sem
hafa Æskulýðsmál á
stefnuskrá sinnl.
Skipuiegri vinnubrögð í
þessum málum eru væn-
legust til árangurs.
Sjálfstæðismenn munu
beita sér fyrir því, að bæj-
arfélagið veiti þessum
málum raunhæfan stuðn-
ing.
íþróttamál:
Sjálfstæðismenn leggja
áherslu á að uppbygging
fþróttamannvirkja í kaup-
staðnum verði ekki lengur
látin sitja á hakanum, og
raunhæft sé að áætla að
þar sem leyst séu mörg
stórmál sem hafa tekið
verulegan hluta tekna bæj-
arsjóðs á liðnum árum,
geti nú í raun hafist sú
uppbygging sem á liðnum
árum hefur verið látin vfkja
fyrir öðrum almennum
framkvæmdum.
Iðkun íþrótta er orðin
stór þáttur í velferðarþjóð-
félagi, og því þarf að efla
aðstöðu fyrir hinn almenna
borgara jafnt sem keppnis-
fólk.
Á þessu ári hefur verið
ákveðið að verja 20 millj-
ónum króna til svæðisins
á Torfnesi, og það er
stefna Sjálfstæðismanna
að nú verði haldið áfram
þeirri uppbyggingu, þar til
viðunandi aðstæða fæst.
Stefnt verði að því að verk-
áætlun vegna iþróttasvæð-
isins á Torfnesi fyrir árið
1978 standist. Sjálfstæðis-
menn fagna þeim umræð-
um sem fram hafa farið
milli bæjarfélagsins og rík-
isins, um byggingu nýs
íþróttahúss.
Bætt aðstaða til íþrótta
er öllum til heilla.
Heilbrigðismál:
Sjálfstæðismenn fagna því
að framkvæmdahraði við
byggingu nýs sjúkrahúss
og heilsugæslustöðvar
hefur staðist samkv. áætl-
un.
Sjálfstæðismenn vilja enn
á ný ítreka að mikil nauð-
syn er á<að áætlun um næstu
verkáfanga verði teknir hið
fyrsta og þá tekið tillit til
þess alvarlega ástands,
sem nú ríkir í heilbrigðis-
málum Isafjarðarsvæðis-
ins.
Sjálfstæðismenn heita
því að vinna að bættri heil-
brigðisþjónustu eftir því
sem tök eru á, og skora á
stjórnvöld að veita það
fjármagn sem þarf til þess
að nýta megi nýju heilsu-
gæslustöðina sem allra
fyrst.
Málefni aldraðra
Sjálfstæðismenn fagna
því að bygging dvalarheim-
ilis aldraða er hafin og
tryggt er fjármagn til á-
framhaldandi fram-
kvæmda.
Sjálfstæðismenn leggja
áherslu á að þjónusta við
aldraða verði bætt, bæði
meö aukinni heimilisað-
stoð og með bættum að-
búnaði á núverandi elli-
heimili. Sjálfstæðismenn
fagna þeim almennu og já-
kvæðu undirtektum sem
fram hafa komið síðan
bygging dvalarheimilis
aldraða hófst, og þakka
mjög mikilvægan stuðning
fjölmargra aðila við mál-
efnið.
Bygging
íbúðarhúsnæðis:
Sjálfstæðismenn leggja
áherslu á mikilvægi fé-
lagslegra ákvarðana um
byggingu íbúðarhúsnæð-
is, en telja þó að framtak
einstaklinga beri að efla á
þessum sviðum sem öðr-
um.
Sjálfstæðismenn munu
beita sér fyrir því að bygg-
ingaláfnasjóður Isafjarðar
verði efldur, og á þann hátt
hvatt til frekari bygginga-
framkvæmda og bygginga-
hraði aukin.
Orkumál:
Frambjóðendur Sjálf-
stæðisf lokksins fagna
þeim áföngum sem náðst
hafa í orkumálum fjórð-
ungsins á síðustu árum,
Bæði á sviði rannsókna,
rafvæðingar og skipulags
orkumála.
Það er álit frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins að
heimastjórn Vestfirðinga í
orkumálum sé mikilsverð-
ur áfangi í lausn þess
vanda sem við er að fást.
Ábyrg samstjórn heima-
manna og ríkisvaldsins er
líklegust til leysa úr þeim
miklu verkefnum sem
framundan eru í orkumál-
um fjórðungsins, og því
fögnum við stofnun Orku-
bús Vestfjarða. Eftirfarandi
atriði teljum við þýðingar-
mest til lausnar í orkumál-
um Vestfjarða:
A: Haldið verði áfram
skipulegri leit að jarð-
varma í námunda við þétt-
býlisstaði á Vestfjörðum.
Stefnt verði að ajúpborun á
þeim svæðum sem jarð-
fræðingar telja líkur á að
árangurs megi vænta.
B: Vesturlína verði lögð
svo sem áætlanir Alþingis
og ríkisstjórnar segja fyrir
um. Orkubú Vestfjarða
byggi upp raforkumarkað-
inn með skipulegum hætti
svo sem með byggingu
fjarvarmaveitna þar sem
full hagkvæmnni er að, en
síðar geti slíkar stöðvar
notað raforku tll hitunar ef
jarðvarmi fæst ekki.
D: Vegna landfræðilegra
staðhátta og á vissum tím-
um einangrunar ber að
stefna aö því að á hverjum
þéttbýlisstað á Vestfjörð-
um verði til nægjanlegt
varaafl er komi í veg fyrir
vandræði er skapast þegar
flutningur orku bregst
hvort heldur er vegna bil-
ana eða af öðrum ástæð-
um.
Frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins heita því
að styðja alla víðleitni er
fram kemur til að bæta úr
orkumálum Vestfjarða, og
hvetja alla sveitarstjórnar-
menn til þess að standa
trúan vörð um þann á-
kvörðunarrétt sem nú er í
þeirra höndum með Orku-
búi Vestf jarða.
Hafnarmál
Sjálfstæðismenn telja
að undirstaða frekari upp-
byggingar Isafjarðar séu
bætt hafnaraðstaða þannig
að hún fylgi örtvaxandi
skipastól bæjarbúa.
Sjálfstæðismenn leggja
því áherslu á að unnið
verði að gerð áætlana um
framtíðaruppbyggingu ísa-
fjarðarhafnar og fram-
kvæmdum skipað í áfanga
er samrýmast best þörf
skipastólsins og fjarhags-
getu hafnarsjóðs.
Æfingabúningar
fyrir unglinga, margir litir
verð frá kr. 8.300.
Fótboltapeysur
í litum ensku liðanna
verð frá 3560.
Fótboltaskór
Stærðir nr. 33 tii 45
verð kr. 2.960 til 11.950.
Bókaverslun Jónasar Tómassonar
Sportvörudeild — Sími 3123
Aðstoðarmaður
óskast í bakarí,
einnig
afgreiðslumaður.
Gott kaup fyrir
duglegt fólk
Upplýsingar í
Gamla bakaríinu