Búnaðarrit - 01.01.1987, Blaðsíða 29
SKÝRSLURSTARFSMANNA
11
Samstarfsnefndir og nefndir
sem vinna að framgangi einstakra málaflokka.
Markaðsnefnd landbúnaðarins er samstarfsnefnd landbún-
aðarráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, Framleiðsluráðs land-
búnaðarins, Stéttarsambands bænda, Búnaðarfélags ís-
lands og Búvörudeildar S.Í.S. til að vinna að markaðsmál-
um fyrir búvörur.
Nefndin réði sér fastan starfsmann á árinu og stóð fyrir
verulegri kynningu og auglýsingum einkum á dilkakjöti.
Fulltrúi B.I. í nefndinni er Sigurgeir Þorgeirsson, sauðfjár-
ræktarráðunautur, og vísast til starfsskýrslu hans.
Endurskoðunarnefnd á reglum um kjötmat, sem var skipuð
1982, skilaði tillögum til landbúnaðarráðuneytisins á árinu.
Fulltrúi B.í. í nefndinni cr Ólafur E. Stefánsson, nautgripa-
ræktarráðunautur, en auk hans á Sigurgeir Þorgeirsson sæti
í nefndinni. Vísað er til starfsskýrslna þeirra.
Milliþinganefnd til að endurskoða jarðrœktarlög var kosin á
Búnaðarþingi 1984. Nefndin skilaði endurskoðuðum til-
lögum til Búnaðarþings 1986 og var störfum hennar þar
með lokið (sjá Bþ. 1985 og 1986). í nefndinni áttu sæti:
Bjarni Guðráðsson, bóndi, Nesi, Hermann Sigurjónsson,
bóndi, Raftholti, og Sigurður Þórólfsson, bóndi, Innri-
Fagradal.
Milliþinganefnd til að endurskoða búfjárræktarlög var kosin
á Búnaðarþingi 1985. Nefndin skilaði áliti til Búnaðarþings
1986 og lauk þar með störfum. í nefndinni áttu sæti Stefán
Halldórsson, bóndi, Hlöðum, sem var formaður, Jón
Ólafsson, bóndi, Geldingaholti, og Össur Guðbjartsson,
bóndi, Láganúpi.
Milliþinganefnd til að samrœma landbúnaðarlöggjöf og gera
tillögur um félagskerfi landbúnaðarins var kosin á Búnaðar-
þingi 1985 (sbr. mál nr. 24), starfaði fram að Búnaðarþingi
1986 og skilaði álitsgerð til þingsins (sjá nánar um for-
mannafund 1986).