Alþýðumaðurinn - 06.06.1933, Side 5
Aukablað 8. Júli 1933.
ALÞÝÐUMAÐURINN
5
lisverkiiðjÉilan.
Um fátt er nú meira talað en hina
svo nefndu Ríkisverksmiðjudeilu, enda
ekki við öðru að búast, þar sem svo
mikið er í húfi ef vandræði hljótast af.
Pað er fyrir löngu viðurkent, að
rekstur verksmiðjunnar ber sig ekki ef
greiða þarf 3 kr. fyrir hverja klukku-
stund. Þessvegna er það í flestum til-
fellum ókleift að starfrækja verksmið-
juna yfir helgidaginn. Par sem starfs-
tíminn er sjaldan Iengri en 10 vikur,
og venjulegast nægilegt hráefni fyrir-
liggjandi, er það augljóst mál, að mikla
áherslu verður að leggja á það að
framleiða sem allra mest. Er það því
hverjum manni augljóst, sem eitthvað
vill um málið hugsa, að 36 tíma helgi-
dagur er verksmiðjunni mjög óhag-
slæður.
Ríkisverksmiðjustjórnin hefir boðið
það til samkomulags, að greiða hxta
Verkamannafélagsins að öðruleyti en
því, að helgidagurinn yrði stytiur úr
36 tímum niður í 24 tíma, og 4^/a
tími af þessari styttingu fétli undir
mánaðarkaupið, þannig að þeir menn
sem vinna á föstum vöktum, vinni 54
tíma á viku fyrir mánaðarkaupinu eins
og allir aðrir verkamenn í bænum,
að undanskyldum þeim, sem vinna í
bæjarvinnu. — Petta ósamræmi, sem
er á /nilli þeirra manna, sem vinna á
vöktum og hinna, stafar af því, að
þegar helgidagurinn var settur 36
tímar þá voru ekki nema 5 nætur í
vikunni, sem féllu undir mánaðar-
kaupið í vaktavinnu.
Verksmiðjustjórnin fór með þetta
mál til verkamannafélagsins, sem hins
rétta samningsaðila. En í stað þess að
ræða málið með kurteysi og alvöru,
var stjórnin ausin illyrðum, og jafnvel
hafi við orð að láta hana út úr saln-
um, þótt fundurinn væri nokkrum
mínútum áður búinn að leyfa henni
fundarsetu. Pað var ekki fyr en eftir
þennan fund, og einn eða tvo aðra,
að verkamenn verksmiðjunnar urðu
þess fullvissir, að stjórn verkamanna-
félagsins og þeir, sem með henni
réðu, voru á góðum vegi með að
sigla þessu máli í strand, og þeir tóku
ekki málið í sínar hendur fyr en eftir
margítrekaðar en árangurslausar til-
raunir til þess að fá stjórn verka-
mannafélagsins til að líta á það með
sanngirni. —
Nokkru seinna samþykkti verka-
mannafélagið að stytta helgidaginn
niður í 24 tíma gegn því, að allir
verkamenn verksmiðjunnar yrðu ráðn-
ir gegnum ráðningaskrifstofuna, en þar
sem forráðamenn verksmiðjunnar munu
ekki hafa óskað neitt sérstaklega eftir
því, að Aðalbjörn, Gunnar og Pór-
oddur, réðu því hverjir ynnu við
verksmiðjuna, þá var þessu ekki sint.
enda hefir reynslan verið sú með skift-
ingu bæjarvinnunnar, að þar hefir
liturinn verið tekinn fram yfir rétt-
lætið.
Vinnustöðvun sú, sem framkvæmd
var með ofbeldi við Ríkisverksmiðjuna
1. Júlí, þar sem 58 menn unnu fyrir
fullan taxta, var ekki gerð með hag
verksmiðjumannanna fyrir augum, held-
ur til þess, að reyna að kúga þá til
hlýðni við þá menn, sem framkvæmdu
stððvunina.
Stjórn yerkamannafélagsins hef.r al-
veg brugðist skyldu sinni í þessu máli.
Hún hefír aldrei skýrt fyrir mönnum
um hvað eiginlega er deilt, en hins-
vegar ekki sparað sióryrðin. Petta
hefir verið kölluð »svívirðileg launa-
lækkunarárás* og þeir menn, sem
unnið hafa að skynsamlegri lausn
deilunnar, nefndir glæpamenn af verstu
tegund, og til smekkbætis notuð um
þá flest þau illyrði, sem íslensk tunga
hefir yfir að ráða. Og ekki nóg með
það, heldur hefir formaður félagsins
skýrt Alþýðusambandsstjórninni rangt
frá ýmsum atriðum. Það er því aug-
Ijóst mál, að frá hálfu kommúnista er
þetta mál sótt meir af kappi en for-
sjá. —
Hér er því um tvent að ræða: taxta
verkamannafélagsins eða samn ng þann,
sem verkamennirnir gerðu við verk-
smiðjusfjórnina. Pað er því rétt að
taka hvorttveggja til athugunar.
Sé kaup þeirra manna, sem fyrir
lágmarkslaun vinna á föstum vöktum,
reiknað eftir taxta verkamannafélagsins,
verður útkornan þessi yfir vikuna:
Mánaðarkaup...............kr 75.00
Eftirv. 3 tímar í 5y2 sólarhr.
= 16V* tími á 1,80 . . - 29.70
Kr. 104,70
~ Pat að auki er greitt 3 kr. fyrir
hvern tíma, sem unr.inn er i helgidaga-
vinnui Verksmiðjan bræðir 2300 mál
á sólarhring = 12650 mál á viku.
Slöðvuð í 36 tíma.
Sé kaupið greitt eftir samkomulagi
því, sem verkamennirnir og verk-
smiðjustjórnin hafa komið sér saman
um, verður upphæðin yfir vikuna
þessi: —
Mánaðarkaup..............kr. 75.00
Eftirv. 3 tfmar í 6 sólarhr.
= 18 tímar á 1,80 . . — 32,40
Kr. 107,40
Helgidagavinna 3 kr. á tímann, —
Verksmiðjan bræðir 13800 mál yfir
vikuna, stöðvuð yfir helgidaginn, 24
tíma. —
Miðað við 10 vikna starfstíma verö-
ur útkoman þessi:
Taxtinn: Kaup kr. 1047,00. Keypt
síld 126500 mál á kr. 3,00. = kr.
379500,00, -
Samkomulagið; Kaup kr. 1074,00.
Keypt sild 138000 mál á kr. 3,00 =
kr. 414000,00.
Par að auki helgidagavinna og önn-
ur aukavinna, sem er nokkurn veginn
jafn mikil, hvort sem verksmiðjan er
stöðvuð í 36 eða 24 tíma.
Kommúnistar reyna að slá á veika
strengi hjá sjómönnum. og ætfa á
þann hátt að ná þeim inn í sínar her-
búðir. Hér á Siglufirði hat'a veik
þeirra í garð sjómanna talað svo ár-
um skiftir, og hefi ég áður skrifað
um það mál í Alþýðublaðið. Nú eru
verkin byrjuð að tala á ný. Pað er
lagt verkbann á tryggasta og besta
atvinnufyrirtækið í bænum. Eiua at-
vinnufyrirtækið, sem tryggir verkamönn-
um tveggja mánaða vinnu, og með
þvt reynt að koma í veg fyrir, að sjó-
menn geti selt síld til verksmiðjunnar
fyrir 34500 krónum meira en ella, og
svo er hrópað út um alt landið og
sjómenn eru beðnir að stánda með
kommúnistum í þessari deilu !! Pað
er lagt verkbann á sarna atvinnufyrir-
tæki og 58 menn reknir frá vinnu,
sem greidd er samkvæmt tfxta, og með
því reynt að knýja það í gegn, að
verkamennirnir fái nokkrum krónum
minna á viku en þeir hafa sjálfir sam-
ið um. Til þess að gera mennina á-
nægða með þessar dásamlegu ráð-