Heilbrigðismál - 01.12.1949, Qupperneq 2

Heilbrigðismál - 01.12.1949, Qupperneq 2
á verksmið'juframleiðslunnij þar sem ný efni eru framleidd, og líkams- starfseminni. í verksmiðjunni þarf að sjóða með sýrum, síðan eim- hreinsa með einni suðunni eftir aðra, stundum við mörg hundruð stiga hita, leysa upp í vinanda og ýmsum efnum og eima á ný áður en efnið er fengið. Og á meðan á þessu gengur ætlar hávaðinn og skröltið að æra mann. Það yrði eitthvað skrítið ef jaínmikið gengi á innan í okkur fyrir hvert efni sem þar er framleitt. í stað þess fer öll þessi inargbrotna framleiðsla í líkama okkar fram hávaðalaust við lágan hita, án þess að nokkurntíma þurfi að' sjóða nokkuð. Hvernig má þetta ske? Allar efnabreytingar líkamans fara fram fyrir áhrif sérstakra, voldugra efna, sem verka við lágan hita. Þessi efni eru kölluð enzym eða ferment. Á íslenzku hafa þau verið kölluð kveikjur, en það er naumast heppilegt nafn, af því að það gefur í skyn bruna. En enzymið, sem líta má á sem einskonar „lifandi efni“, verkar þannig að það ræðst á hverja efniseind og breytir henni á sína vísu. Ef við látum t. d. ger út í sykurblöndu við lágan hita, ræðst enzym gersins á hverja sykureind og breytir henni í eind af vínanda. Enzymið eyðist ekki við þetta, því að það ræðst á hverja eindina (molekyle) af annarri, unz allur sykur er orðinn að vínanda. Enzymin geta furðu margt, sem önnur efni geta ekki. Tökum t. d. harðsoðið egg. Við getum ekki leyst það upp með sýrum eða suðu eða neinum vanalegum efnum. En ef við tökum magasafa úr lieil- brigðum manni og setjum eggið út í hann við 37° hita, þá líður ekki á löngu unz eggið er fullkomlega uppleyst. Emzymið í magasafanum hefur ráðizt á hverja eind eggjahvítunnar og klofið hana niður í ein- faldari eggjahvítusambönd, sem eru uppleysanleg í vatni. Þannig hef- ur þá enzymið breytt egginu í einfaldari sambönd, sem líkaminn get- ur notað sér, líkt og kona rekur upp röndótta peysu og fær úr henni rautt, svart og hvítt band, sem hún getur notað til að prjóna úr sokka eða vettlinga. Enzym stjórna meltingu, öndun, vöðvastarfsemi og í raun og veru hverskonar starfsemi allra lifandi vera. Segja má með sanni, að lífið sé skipuleg starfsemi mörg hundruð enzyma og að sjúkdómar sé truflun á starfsemi þeirra. Nú þekkja menn yfir 40 enzym, sem tekizt hefur að vinna efnafræðilega hrein, sem krystalla. ÖIl eru þau eggjahvítuefni (protein). Ef við gætum vitað og skilið hvernig enzym líkamans hjálpa írumunum til að tengja saman eggjahvítuefni úr einfaldari eggjahvítu- pörtum, þá mundum við vita meira um skilyrðin fyrir eðlilegum vexti líkamsvefjanna — og þá jafnframt sennilega fræðast um skilyrðin fyrir óeðlilegum vexti, eins og æxlisvexti. Mai-gir halda að lausn krabbameinsgátunnar sé fólgin í auknum skilningi á þessum hlutum. 2

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.