Heilbrigðismál - 01.01.1955, Síða 7
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
7
skellur í hárinu, sú stærsta rúmlega lófastór, svo að þetta var mjög
áberandi, þar sem pilturinn var svarthærður. Hann sagði mér, að hann
hefði orðið svona á einni nóttu, er hann lá í inflúenzu. Síðan hefi ég
ekki getað neitað þeim möguleika, að menn geti orðið skyndilega grá-
eða hvíthærðir.
Sagan segir, að Damiens, sem gerði tih-aun til að drepa Lúðvík 15.
Frakkakonung, hafi skyndilega orðið hvíthærður, meðan verið var að
pynda hann. Eins er sagt að María Antoinette hafi á fáeinum dögum
orðið hvíthærð, rétt áður en hún var tekin af lífi.
Nýlega hefir próf. F. Hoff, við háskólasjúkrahúsið í Frankfurt, skýrt
frá samskonar tilfelli. Jarphærður námumaður veiktist af sjúkdómi,
sem virtist vera inflúenza, og varð hvíthærður á einni nóttu. Um leið
og litarefnin hurfu úr hárinu, bliknuðu þau einnig í hörundi hans,
svo að húðin varð Iivít.
Próf. Hoff gerir ráð fyrir því, að það sem kallað var inflúenza hafi
í raun og veru verið heilabólga, einkum í og í kringum hypothalamus,
sem er svæðið neðan á heilanum miðjum, í kring um heiladingulinn
(hypophysis). Hinsvegar getur hann enga fullnægjandi skýringu gefið
á því, hvernig litarefnið hefir horfið. Hann lieldur að litarefnið hljóti
að hafa eyðilagzt með einhverju móti og breytzt í litlaust efni.
Við vitum, að ýmis dýr, einkum af eðlutegundum, geta breytt Iit og
gerist það fyrir áhrif tauga á litarfrumur húðarinnar, þannig að dýrið
getur sjálft ráðið, viljandi eða óviljandi, hvemig það skiptir litum.
Vafalaust geta viss efni losnað, e. t. v. fyrir taugaáhrif, sem eyðileggja
litarefni hörunds og hára fyrir fullt og allt hjá manninum. Ekki er
samt unnt að segja hverskonar efni þetta eru né hvernig þau verka.
En að hár og hörund geti skyndilega misst litinn, einnig hjá mönnum,
virðist óvéfengjanlegt.
Gjafir til Krabbameinsfélags íslands.
Nýlega hefir Krabbameinsfélagi íslands borizt hver gjöfin annarri rausnarlegri.
Frá stúkunni Þórsteini, I.O.O.F. nr. 5 í tilefni af 20 ára afmæli hennar, kr. 12.000,00.
Þessi gjöf var gefin til þess að stuðla að því, að upp verði komið miðstöð til þess að
leita að krabbameini i fólki.
Þórður Hjaltason, stöðvarstjóri í Bolungarvík, og systkini hans, Sigríður, Kristfn,
Sigurbergur, Karítas og Hildur gáfu kr. 5.000,00 til minningar um foreldra sfna,
Hjalta Einarsson frá Hvftanesi og Sigurborgu Þórðardóttur.
Hallbert Guðmundsson, Veiðileysu í Árneshreppi, gaf ásamt börnum sfnum og
barnabörnum kr. 3.800,00 til minningar um föður sinn, Guðbrand Guðbrandsson,
hreppstjóra f Veiðileysu.