Heilbrigðismál - 01.01.1962, Blaðsíða 4

Heilbrigðismál - 01.01.1962, Blaðsíða 4
BOLUSOTT Svo segir í Fitjaannál, anno 1635: „Þá var góður vetur í víðustum stöðum til veðráttu og fiskur nógur syðra það ár. En sökum heyleysis var hræðilegur pen- ingafellir syðra, eystra og vestra, svo eng- inn vissi stórunr meiri. Úr Borgarfirði og austur að Rangá, var samantaiið að dáið liefðu 12 hundrað kúa, undir Eyjafjöllum færleikar 153. í Skálholti var mælt, að eftir lifað hefði 7 færleikar; einnig hrun af naut- um vestra. Þá skeði formyrkvan mikil og hræðileg á heilu tungli, bæði svört og rauð, 21. Februarii. Item formyrkvan sólarinnar 2. dag Agusti. Þann vetur sást vígahnöttur frá norðri til suðurs. Það sumar kom út bólan með miklu mannfalli, sú þrettánda hér. Dó margt fólk fyrir innan 19 ára, og sumir eldri, sem ekki höfðu fengið fyrr bóluna . . . Það sumar sást ormur eða ókinrl í Hvítá, optlega, millum Oddgeirshóla og Arnar- bælis. í Juniómánuði um vorið, fyrir Jóns- messu, missti sólin 3 kveld alla sína birtu og varð rauð sem blóð. Mikill þjófnaður í Ölvesi. ITöfðu þjófar sinn aðdrátt á Nesjum í Grafningi. Þeir stálu 4 gömlum nautum, 22 sauðum, 5 fjórðungum smjörs. Einn af þeim hengdur, annar hýddur og markaður, fleiri hýddir. Bóndinn í Nesjum var ogsvo hýddur og markaður fyrir samhylling og hýsing. Á þessu ári deyði einn gamall maður, að nafni Thomas Parr, sem var 152 ára ganr- all. Þegar hann var 102 ára gamall, átti hann barn laungetið ,en þá hann var 120 ára giptist hann í annað sinn. Hann var fæddur 1483 í því greifadæmi Salopia (á Bretlandseyjum). Ainio 1636. Þann vetur var mikið mann- fall af bólusótt, sérdeilis við sjóinn. Á Hval- nesi voru jarðaðar 90 manneskjur, en á Út- skálum 180. Þá urðu 3 skiptapar í Vestmannaeyjum; einn tólfæringur og 2 teinæringar; drukkn- uðu 45 menn. Þann 18. mai kom upp eldur í Heklu, fjórtándi, gerði mikinn skaða jrar um kring og var uppi allt sumarið og þó lengur. Stóðu 13 eldar úr fjallinu svo talið varð; heyrð- ust dunur þaðan, einninn kom dimma og rnistur austur um sveitir með öskufalli svo tók fyrir jörð, dó peningur og varð nytja- laus.“ Þessi tíðindi frá fyrri hluta 17. aldarinn- ar segja sína sögu. Þannig var ástandið á ís- landi fyrir 326 árum. Það er margt sem skeður á þessu rúma ári, sem rakið er. Harðindi og fjárfellir, fjöldi manna ferst í sjó og vötnum. Eldgos dynur yfir með ösku- falli um allt land og hagleysi um mitt sum- ar. Ránsflokkar vaða uppi, joótt r'efsing sé hörð, — uppfesting, húðstrýking, brenni- merking. Teikn og undur sjást á himni. Og svo kemur bólan í landið, stórabóla, bólan mikla. Þetta er sögð 13. bólukoman í landið, og talað er um 14. Heklu-gosið ]rá svo sögur fari af. Bólusóttin er bara ein af mörgum plágum sem herja á landsfólkið. Næst áður hafði bólan gengið yfir fyrir 20 árum, en oftast leið lengri tími á milli. Talið er, að bólan hafi fyrst komið í landið árið 1206. Mannskæðustu bólufaráldrar munu hafa gengið 1430 og 1707—-1709, en um fyrri far- aldurinn segir svo í Setbergsannál: „1430. Bóla konr á ísland, kölluð mikla bóla. Varð mikið mannfall um allt land, svo víða eyddust bæir. Þá hafði ekki hér á landi gengið bóla síðan 1378 . .. Skrifað er, að í þessari sótt hafi burt dáið 8000 manns hér á landi.“. 4 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.