Heilbrigðismál - 01.01.1963, Blaðsíða 13
inu varð, eða eftirlifandi vandamenn, þeg-
ar um dánarslys er að ræða, leita réttar síns
innan eins árs, frá því er slysið varð.
Engin ákvæði eru í lögunum um hina
læknisfræðilegu hlið slysatilkynningarinn-
ar. Slysatryggingin hefur útbúið sérstök
eyðublöð fyrir læknisvottorð vegna slysa, og
er ætlazt til, að sá læknir, er annast slasaða,
riti þau vottorð. Þessi vottorð eru þrenns
konar, Læknisvottorð I, Læknisvottorð II
(Dagpeningavottorð) og Örorkuvottorð.
Læknisvottorð I ritar læknirinn strax og
hann veit, að um tryggingarskylt slys er að
ræða, og sér slasaði um, að það komist til
Tryggingastofnunarinnar ásamt slysatil-
kynningunni. Dagpeningavottorðin eru síð-
an rituð viku- eða hálfsmánaðarlega, og er
eftir þeim ákveðið um dagpeningagreiðslur
og greiðslur framhaldspeninga. Örorku-
vottorðin ritar læknirinn, þegar slasaði er
vinnufær, en um er að ræða varanlega ör-
orku. Öll læknisvottorð eru yfirfarin af
tryggingayfirlækni. Tryggingastofnunin
greiðir læknum fyrir slysatryggingarvott-
orð, og er greiðslan send eftir á fyrir árið.
Skilgreining laganna á launþega er sú,
að hver sá launþegi, sem tekur að sér vinnu
gegn endurgjaldi án þess að vera atvinnu-
rekandi, og skiptir ekki máli í því sam-
bandi, livort um er að ræða tímakaup, föst
laun, hlut eða ákvæðisvinnu. Sömu reglur
og um launþega gilda um nemendur við
iðnað, útgerðarmenn, sem sjálfir eru skip-
verjar, ökumenn á eigin ökutæfkjum og
stjórnendur aflvéla og þá, sem vinna að
björgun rnanna úr lífsháska. Hins vegar
teljast þeir ekki launþegar eftir ákvæðum
laganna, sem eingöngu taka vinnu heim til
sín eða á vinnustað, sem þeir ákveða sjálfir,
°g á að ákveða nánara um þessa skilgrein-
mgu með reglugerð. Hjón teljast bæði at-
' innurekendur, en börn þeirra yngri en 16
^ra, svo og foreldrar þeirra og fósturforeldr-
ar» teljast ekki launþegar þeirra.
Framhald i niesta blaði.
Ecidliciníngar
fyrir hcnur um sjálfsatljugun
álirjóstum
í þessum mánuði kemur út fræðslubækl-
ingur á vegum Krabbameinsfélags íslands,
sem nefnist „Leiðbeiningar fyrir konur um
sjálfsathugun á brjóstum."
Danskur læknir, Jens Foged, samdi þess-
ar leiðbeiningar, en Sigurður Sigurðsson
héraðslæknir á Siglufirði þýddi.
Þar segir m. a.: „Reynslan hefur sýnt, að
konur geta sjálfar fundið mjög smáa hnúta
í brjóstum sínum. Það er æskilegt, að kon-
ur í þeim aldursflokkum, þar sem krabba-
mein í brjósti er algengast, læri að rann-
saka brjóst sín, til þess að flýta fyrir sjúk-
dómsgreiningu og læknishjálp, því að bata-
horfur eru að jafnaði þeim mun betri, sem
sjúkdómurinn er fyrr greindur.
Mörg ár eru síðan var farið inn á þessa
braut í Bandaríkjunum, og síðan 1952 hef-
ur landssamband danskra krabbameinsfé-
lega beitt sér fyrir því, að konur tækju upp
þessa aðferð og gefið út leiðbeiningar þar
að lútandi. Það hefur verið sagt með
nokkru sanni, að hendur konunnar sjálfrar
og spegillinn hennar gætu verið eitt þýð-
ingarmesta vopnið í baráttunni gegn
krabbameini í brjósti."
fréttabréf um heilbrigðismál
13