Heilbrigðismál - 01.01.1972, Blaðsíða 19

Heilbrigðismál - 01.01.1972, Blaðsíða 19
Meðferð matvæla Fjöldi sjúkdóma breiðist út frá sýklum, sem komast inn í líkamann gegnum munn- inn. Þessar lífverur geta margfaldast með furðulegum hraða í hæfilega röku og hlýju umhverfi. Fæðan, sem við nærumst á, getur orðið kjörið heimkynni fyrir þær. Sýklarnir, sem valda blóðkreppusótt, lifrarbólgu, tauga- veiki og lömunarveiki, berast með manninum sjálfum og skiljast út með úrgangsefnum líkamans. Snerting fæðutegunda með óþvegn- um höndum á sinn þátt í að útbreiða þessa sjúkdóma. Venjulegt kvef, inflúenza og berklasýklar geta hafst við í nefi og hálsi. Dýr bera með sér ýmsar skaðlegar lífverur, sem geta komizt í matvæli og smitað mann- *n á þann hátt. Flugur og meindýr, sem komast í skemmd matvæli eða önnur sýkt efni, geta borið með sér smit og valdið út- breiðslu sjúkdóma. Jafnvel ryk flytur með sér sýkla. Varnir Hreinlæti er öruggasta ráðið til að hindra útbreiðslu sjúkdóma frá matvælum. Notið undantekningarlaust sápu og vatn til að þvo hendurnar, eftir að hafa verið á sal- erni áður en þér snertið matvæli. Forðist að hósta, ræskja yður eða hnerra yfir matinn. fréttabréf um heilbrigðismál Lokið skurðum, sárum, sprungum og fleiðr- um með vatnsþéttum umbúðum. Matvœlageymsla og matvœlagerð Sýklum fjölgar bráðast í 16° og allt upp í 60° hita á C. Fæðutegundir, sem hættir til að skemmast á að geyma í kæliskápnum. Hættu- legir sýklar geta leynst í hráu kjöti. Flestir drepast þeir við suðu. En gætið þess að hrátt kjöt spilli ekki soðnu kjöti, sem ekki á að hita aftur. Séu leifar af kjöti eða kjötréttum illa hitaðar eða aðeins yljaðar, getur það valdið gífurlegri fjölgun á sýklum, sem leynast í þeim. Heima fyrir Endurskoðið öll eldhússtörfin. Þvoið matarílátin úr snarpheitu vatni. Handleikið ekki bollabarmana og rennið ekki fingrunum eftir hnífblöðunum. Notið ekki óhreinar þurkur. Notið aldrei eldhús- vaskinn til að þvo ílát heimilisdýranna eða svuntur og annan fatnað barnanna. Kemísk efni, hreinsi- og þvottaefni, skordýraeitur má aldrei hafa þar, sem þau geta spilt fæðuteg- undum. Lokaðar geymslur eða skápar ættu alltaf að vera til fyrir allan borðbúnað og matarílát, þegar þau eru ekki í notkun. Þvoið hendurnar oft og alltaf áður en þér fáist við mat. 19

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.